Bændablaðið - 04.10.2018, Page 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 20188
FRÉTTIR
Sláturhús Vesturlands í Borgarnesi:
Stefnt að rekstri allt árið
Slátrun hjá Sláturhúsi Vesturlands
í Brákarey í Borgarnesi hófst í
síðustu viku. Nokkrir bændur
á Vesturlandi tóku við rekstri
sláturhússins fyrir rúmu ári síðan,
ráku það í síðustu sláturvertíð til
áramóta sem þjónustusláturhús
og stefna nú að heilsársrekstri.
Þorvaldur T. Jónsson, bóndi í
Hjarðarholti í Stafholtstungum í
Borgarfirði, er í forsvari fyrir þá
fjóra bændur sem ætla að halda
starfseminni áfram og segir
hann að þeir séu komnir með
langtímaleigusamning.
„Við gerum ráð fyrir að byggja
þarna upp heilsárs starfsemi,
einkum í stórgripaslátrun fyrir
hross, nautgripi og svín eftir þörfum.
Eingöngu er slátrað í verktöku, að
minnsta kosti til að byrja með, en
við gerum ráð fyrir að byggja upp
einhverja sölustarfsemi sem þjónar
þeim bændum sem skipta við
sláturhúsið.
Við vonumst til að fleiri bændur
komi að rekstrinum og stefnum á að
stofna félag utan um hann.“
Sláturkostnaður er
5.000 krónur á dilk
Sláturkostnaður í haust er, að sögn
Þorvaldar, 5.000 krónur á dilk og
6.000 krónur fyrir fullorðið fé.
Hægt er að slátra að minnsta
kosti 80 dilkum á dag hjá Sláturhúsi
Vesturlands, en um 1.400 fjár var
slátrað í síðustu sláturtíð frá um
65 bændum.
Bændur þurfa sjálfir að koma
með gripina að sláturhúsinu. /smh
Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Mynd / smh
Íslenski kjötmarkaðurinn:
Hlutdeild innflutts
kjöts fer vaxandi
Innflutningur á kjöti og unnum
kjötvörum hefur farið vaxandi
undanfarin ár. Þegar skoðuð eru
síðustu 3 ár sést aukning á öllum
vörum öðrum en nautakjöti en þar
hefur innlend framleiðsla aukist
eftir slakt ár 2015.
Nær allur innflutningur á kjöti
og kjötvörum er af úrbeinuðu kjöti.
Ef sá innflutningur er umreiknaður
í kjöt með beini til samræmis við
hvernig innlendar framleiðslu- og
sölutölur eru settar fram, skýrist
myndin enn frekar.
Hér á eftir er notast við sömu
umreikniaðferðir og notaðar voru
í skýrslu starfshóps um tollamál á
sviði landbúnaðar til sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra frá
desember 2014.
Hlutdeild innflutnings í
alifuglakjötssölu, svínakjötssölu
og nautakjötssölu, þegar búið er
að umreikna innflutning í kjöt með
beini eftir þessum aðferðum, hefur
þróast eins og sést á mefylgjandi
töflum.
Þannig var hlutdeild innflutts
alifuglakjöts á síðasta ári 19% og
var orðið 13% á fyrstu sjö mánuðum
ársins 2018.
Í svínakjötinu var hlutfall
innflutts kjöts umreiknað með
beini 27% á árinu 2017. Var það
hlutfall komið í 24% eftis fyrstu sjö
mánuðina 2018.
Í nautakjötinu var hlutfallið 22% í
fyrra og var komið í 21% á fyrstu sjö
mánuðum yfirstandandi árs.
Margfaldur innflutningur miðað
við tollkvóta ESB og WTO
Rétt er að undirstrika að inn-
flutningur þessara kjöttegunda er
margfaldur í magni á við það sem
tollkvótar í samningum við ESB
og WTO kveða á um. Stórfelldur
innflutningur, einkum á svína- og
nautakjöti, er á lægri tollum sem
opnað er fyrir þegar skilgreindur er
skortur á markaði samkvæmt XII
kafla búvörulaga. /EB
2015 2016 2017
Tonn Tonn Tonn
Nautakjöt 1.048 674 796
Svínakjöt 559 976 1.361
Alifuglakjöt 920 1.183 1.308
Reykt og saltað kjöt 138 175 189
Ostar 266 327 487
Pylsur 49 62 146
Unnar kjötvörur 255 225 476
Innflutningur helstu tollkvótavara
Alifuglakjöt tölur í tonnum
Sala á Heildarsala Innfl.
Ár Innlendu Innfluttningur með beini % af heild
2015 16%
2016 18%
2017 19%
2018* 13%
Svínakjöt tölur í tonnum
Sala á Heildarsala Innfl.
Ár Innlendu Innfluttningur með beini % af heild
2015 13%
2016 21%
2017 27%
2018* 24%
Nautakjöt tölur í tonnum
Sala á Heildarsala Innfl.
Ár Innlendu Innfluttningur með beini % af heild
2015 33%
2016 20%
2017 22%
2018* 21%
Innfl. Tollkvóti Innfl. Tollkvóti Innfl. Tollkvóti
Nautakjöt 1.048 195 674 195 796 195
Svínakjöt 559 264 976 264 1.361 264
Alifuglakjöt 920 259 1.183 259 1.308 259
Reykt og saltað kjöt 138 60 175 60 189 60
Ostar 266 234 327 234 487 234
Pylsur 49 50 62 50 146 50
Unnar kjötvörur 255 136 225 136 476 136
2015 2016 2017
Nýsköpunarstefna
mótuð fyrir Ísland
Ráðherra nýsköpunarmála,
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
hefur skipað stýrihóp um mótun
heild stæðrar nýsköpunarstefnu
fyrir Ísland, en stefnan skal liggja
fyrir ekki síðar en 1. maí 2019.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá skrifstofu ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
kemur fram að í stýrihópnum
sitji fulltrúar atvinnulífs, háskóla-
og vísindasamfélags, tækni-
og sprotasamfélags og þeirra
stjórnmálaflokka sem eiga sæti á
Alþingi.
Verkefnisstjórn annast
daglega vinnu
Fyrirspurn var lögð fyrir skrifstofu
nýsköpunarráðherra, þar sem spurst
var fyrir um forsendur tilnefninga
fulltrúa í hópinn og hvers vegna
fulltrúum landbúnaðarins hefði ekki
verið boðið að borðinu. Í svarinu
kemur fram að hlutverk stýrihópsins
sé fyrst og fremst að skilgreina
meginstoðir nýsköpunar fyrir Ísland,
en útfæra ekki tilteknar hugmyndir.
„Stýrihópurinn mun þannig
einblína á umhverfi nýsköpunar
almennt. Hins vegar mun sérstök
verkefnisstjórn annast daglega
vinnu við stefnumótunina þar sem
aðal áhersla verður lögð á að halda
utan um og skipuleggja starf faghópa
á mismunandi sviðum – og þar á
meðal til dæmis í matvælaiðnaði og
landbúnaði. Aðkoma að þeirri vinnu
verður mjög opin fyrir alla þá sem
hafa áhuga á að leggja þar eitthvað af
mörkum,“ segir enn fremur í svarinu
frá skrifstofu ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra.
Formaður verkefnastjórnarinnar
er Þórlindur Kjartansson og Sigríður
Valgeirsdóttir er verkefnisstjóri.
Stýrihópinn skipa eftirfarandi
fulltrúar:
• Guðmundur Hafsteinsson, formaður, tilnefndur
af ráðherra
• Ari Kristinn Jónsson, tilnefndur af Samstarfsnefnd
háskólastigsins
• Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, tilnefnd af þingflokki
Sjálfstæðisflokks
• Davíð Helgason, án tilnefningar (frumkvöðull)
• Eyjólfur Guðmundsson, tilnefndur af Vísinda- og
tækniráði
• Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum
atvinnulífsins
• Helga Valfells, án tilnefningar (Crowberry Capital)
• Hjálmar Gíslason, tilnefndur af þingflokki Pírata
• Inga Sæland, tilnefnd af þingflokki Flokks fólksins
• Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, tilnefnd af
þingflokki Samfylkingar
• Jón Steindór Valdimarsson, tilnefndur af þingflokki
Viðreisnar
• Kristján Hall, tilnefndur af þingflokki Miðflokks
• Líneik Anna Sævarsdóttir, tilnefnd af þingflokki
Framsóknarflokks
• María Bragadóttir, tilnefnd af Samtökum
iðnaðarins
• Ólafur Þór Gunnarsson, tilnefndur af þingflokki
Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs
• Ragnheiður Magnúsdóttir, tilnefnd af Vísinda- og
tækniráði
• Sigurður Hannesson, tilnefndur af Samtökum
atvinnulífsins
• Steinunn Gestsdóttir, tilnefnd af Samstarfsnefnd
háskólastigsins
• Tryggvi Hjaltason, tilnefndur af Samtökum
iðnaðarins. /smh
Mynd / HKr.