Bændablaðið - 04.10.2018, Side 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201814
Vantar fleiri unga veiðimenn
„Auðvitað þarf miklu fleiri unga
veiðimenn og gefa þeim tækifæri
til að renna fyrir fisk, það er heila
málið,“ sagði veiðimaður sem ég
hitti um daginn og þetta voru orð
að sönnu.
Fyrir skömmu fékk ég mér
labbitúr úti á golfvelli og þar voru
ungir golfspilarar að æfa sig, mjög
ungir, kannski 7 til 8 ára, og þeir lifðu
sig inn í æfinguna. Þeir vönduðu sig
við að hitta kúluna og gekk vel. Þetta
vantar í veiði, fleiri unga veiðimenn
sem fá tækifæri til að renna fyrir fisk.
Fátt er skemmtilegra en að vera
úti og veiða, renna fyrir fisk og fá
hann til taka agnið.
Stangveiðifélag Reykjavíkur
hefur boðið upp á þennan veiðiskap í
Elliðaánum nokkrum sinnum á sumri
og færri komist að en vilja. Þetta
eykur áhugann hjá veiðimönnum,
svona þarf að gera miklu meira.
Þá fáum við fleiri unga veiðimenn
snúna frá tölunum og fara út að gera
eitthvað sem skiptir máli.
Veiðimaður einn fór núna á
haustmánuðum á veiðislóð til að
reyna að ná sér í lax því ekki hafði
hann náð neinum í allt sumar.
Sama hvað hann hafði reynt og
reynt til að fá fisk.
Hann byrjaði að renna og veiða,
tíminn leið en enginn fiskur vildi
bíða á hjá vininum. Það var undir
kvöld og ekkert var að gerast,
enginn fiskur. Allt í neinu sér hann
hreyfingu ofarlega í hylnum þar
sem hann renndi og var fljótur til
að kanna hvað þetta væri.
Þetta var ekki lax, eins og hann
hafði vonað, heldur dauð önd sem
flaut niður ána. Hann var fljótur að
stinga fengnum í poka og hélt síðan
heim til sín laxlaus en með annan
feng.
Konan hans var ekki heima og
hann kom veiðinni fyrir í vaskinum.
Hann fór upp í og sofnaði fljótt.
Þegar hann vaknaði um morguninn
var konan frekar skrítin á svipinn
og sagði fátt. En sagði þetta; „er
fiskurinn kominn með vængi?“ og
sagði ekki meira.
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
BÍLAR
Kæli- & frystibúnaður
frá Carrier í miklu úrvali.
Fyrir allar gerðir af sendi- og flutningabílum.
HURÐIR
Hentar afar vel fyrirtækjum
í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði.
fyrir kæla
KÆLI & FRYSTI
BÚNAÐUR
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
HLUNNINDI&VEIÐI
Kaldur heiðagæsamorgun í Víðidal.
„Nesið er í miklu uppáhaldi hjá
mér og ég reyni alltaf að fara
þangað 2–3 sinnum á sumri,“ segir
Ómar Gunnarsson er hann rifjar
aðeins sumarið upp fyrir okkur.
„Þar er einhver kyngimögnuð
orka sem hefur góð áhrif á mig og
veiðisvæðin eru einstök. Náttúran og
litbrigði hennar og fuglalífið þar er
engu líkt. Hvar annars staðar mætir
maður uglu á leið sinni í hyljina og
sér fálka sveima yfir ánni og í bland
við allar andategundir? Ég kem
alltaf endurnærður á líkama og sál
úr Nesinu. Ég nota mikið af flugum
frá Pétri Steingríms í Laxárnesi og
finnst gaman að spá og spekúlera
saman litaharmoníu náttúrunnar og
vatnsins við flugunnar.
Ein af mínum uppáhaldsflugum
er t.d. Green Condrad en ég landaði
fyrir um fjórum árum síðan 101 cm
fiski á einkrækju nr. 12 á Stíflunni.
Þegar maður ber Green Conrad við
litatóna umhverfisins á Stíflunni þá
smellpassar eitthvað saman í mínum
huga. Hún fer alltaf undir hjá mér
þegar ég fer þangað og hef oft reist
fiska á henni í tregfiskeríi.
Ég var núna að koma úr minni
þriðju ferð í sumar fyrir skömmu á
Nesið í Aðaldal. Veiðin var frekar
treg, en ég náði að landa einum
brjáluðum 87 cm hæng á Suðureyri
á Low water Night Hawk flugu frá
Pétri Steingríms. Laxinn var almennt
tregur að taka og því setti ég Low
water-útgáfuna undir og náði að
festa í fiskinum. Annars virkuðu
betur í þessari ferð flugur með gulu
ívafi því vatnið var þörungaríkt og
grænn undirtónn í því.“
Tók Munre Killer í
ljósaskiptunum
„Eiður Péturs, veiðifélagi minn,
landaði síðan 95 cm hrygnu á
Hólmavaðsstíflunni en hún tók
Munre Killer í ljósaskiptunum.
Það sem var stórkostlegt við
þessa veiðiferð var að upplifa gleði
10 ára sonar Eiðs, Guðmundar
Inga, sem fékk 85 cm hrygnu á
Hólmavaðsstíflunni en það var
maríulaxinn hans. Laxinn tók
fluguna Skriðuflúð nr. 10 sem
Níls Folmer hannaði. Fiskurinn
tók rétt ofan við brotið á stíflunni
og straujaði fljótlega niður hylinn
og fram af brotinu. Þar tekur við
nokkuð stíft vatn og ekki gáfulegt
að reyna að landa fiski þar fyrr en
kemur að dauðu vatni í vík, ca 800
m neðar, þar sem honum var landað.
Daginn eftir setti Guðmundur Ingi í
75 cm hæng á Skriðuflúð á fluguna
Þokkadís eftir Níls Folmer og
landaði þar með sínum öðrum laxi
í ferðinni. Við karlarnir stóðum og
brostum hringinn og görguðum af
gleði með stráknum.
Á leið heim úr Nesinu stoppaði
ég við í Víðidalnum en þar beið
skotveiðifélagi minn, hann Ási
málari, sem hafði boðið mér í
gæsaveiði, sagðist vera búinn að
finna tún sem væri fullt af heiðagæs
og ekki í boði annað en að vaða strax
í þá veiði, annars væri hætta á að
fuglinn færi suður yfir heiðar. Við
stilltum upp gervigæsum um kvöldið
og lögðum okkur. Vöknuðum síðan
kl. 4.30 um nóttina og þegar ég leit
út um gluggann var norðan 12–14
m/s, 0°C hiti og slydduhraglandi
– maður lætur ekki veðrið hafa
áhrif á veiðigleðina, hugsaði ég, og
klæddi mig í tvær lopapeysur undir
veiðijakkann.
Í ljósaskiptunum fengum við
gríðarstóran hóp yfir okkur, það
var gæs 360° kringum okkur og
adrenalínið í botni. Sumar voru í
réttri aðflugsstefnu og því í fínu
skotfæri en á sekúndubroti vissi
maður ekki hvert maður ætti að
beina rörinu … upp úr níu lágu 26
heiðagæsir í valnum og morguninn
fullkomnaður. Tími til kominn
að halda heim á leið og ganga frá
laxveiðidótinu sínu,“ sagði Ómar
í lokin.
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Víða veitt í sumar á stöng og byssu
Hraunsá. Mynd / María Gunnarsdóttir
Vantaði heila göngu í veiðiárnar
„Við erum að veiða laxa töluvert
þótt það sé komið yfirfall á
Jökluna, mjög góð veiði bara,“
sagði Þröstur Elliðason er við
ræddum við hann um veiði-
sumarið.
„Hrútafjarðará hefur verið allt
í lagi í sumar og það hefur veiðst
svipað og í fyrra. Breiðdalsáin er
að bæta sig aðeins á milli ára,“
sagði Þröstur enn fremur.
Veiðisumarið er að taka enda,
Eystri og Ytri Rangárnar eru efstar
eftir þetta sumar. Síðan kemur
Þverá í Borgarfirði með flotta og
jafna veiði.
Smálaxinn lét lítið sjá sig á
vissum svæðum landsins og það
er áhyggjuefni fyrir marga. Þetta
á við Norðurlandið og aðeins
fyrir austan. Hvað hefur skeð veit
enginn, svona er bara veiðin.
„Það eru að veiðast vænir laxar
hérna í Laxá í Dölum, eftir að
öllum fiski var sleppt, og það er
verulega jákvætt,“ sagði Haraldur
Eiríksson er við hittum hann við
Laxá í Dölum fyrir skömmu.
Eina sem vantaði var regn í
Dölunum en það kom lítið, heldur
aðeins kuldi. En svona er bara
veiðin, það er ekki á vísan að róa
frekar en fyrri daginn.
María Gunnarsdóttir rennir fyrir laxa á Vesturlandi fyrr í sumar. Mynd / G.Bender
Enginn fiskur, bara önd