Bændablaðið - 04.10.2018, Page 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201816
Við Íslendingar lítum gjarnan á
okkur sem stóra sjávarútvegsþjóð,
þótt þess sjáist kannski ekki merki
í hinu alþjóðlega samhengi. Við
getum alla vega fullyrt að við séum
stórir miðað við höfðatölu.
Eins og títt er um smáþjóðir erum
við Íslendingar talsvert uppteknir af
því að bera okkur saman við aðrar
þjóðir á öllum hugsanlegum sviðum,
ekki síst ef samanburðurinn er okkur
hagstæður. Við gleðjumst yfir því
að vera í hópi hamingjusömustu
þjóða heims, hérlendis mælist
spilling minni en víða annars staðar,
lífskjörin eru sögð með því besta
sem þekkist, og svo framvegis.
Sjávarútvegurinn hefur lengst
af verið burðarásinn í íslensku
efnahagslífi (þótt ferðaþjónusta
hafi skotist fram fyrir hann í
gjaldeyrisöflun á allra síðustu árum)
og íslenskur sjávarútvegur skipar sér
í fremstu röð á alþjóðavísu, eins og
forsætisráðherrann okkar orðaði það
í ræðu í síðustu viku. En hversu stórir
og mikilvægir erum við Íslendingar
á þessu sviði í samanburði við aðra?
Stærstu fiskveiðiþjóðir
Nærtækast er að byrja á að skoða
hvar í röðinni við erum í hópi stærstu
fiskveiðiþjóða miðað við aflamagn
(fiskeldi undanskilið). Lengi vel var
Ísland í 10.-15. sæti á lista Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO) yfir heimsaflann
eftir löndum en á árinu 2016 var það
komið niður í 19. sæti. Breytingin
stafar aðallega af samdrætti í
loðnuafla hér við land. Þegar best lét
í loðnuveiðum komst heildarfiskafli
Íslendinga vel yfir 2 milljónir tonna
(svipað og í Noregi). Heildarafli
Íslendinga árið 2016 var hins vegar
tæplega 1,1 milljón tonna á sama
tíma og heimsaflinn var 92 milljónir
tonna. Hlutur Íslands var því 1,2%
af heimsaflanum þetta tiltekna
ár. Kínverjar eru langlangstærsta
fiskveiðiþjóð heims með 17,7
milljónir tonna á árinu 2016 sem er
19,6% af heild (sjá töflu).
Norðmenn eru 9. mesta
fiskveiðiþjóð heims og fengsælastir
þjóða í Vestur-Evrópu með
2,3 milljónir tonna árið 2016.
Íslendingar koma þar næst á eftir í
þeim heimshluta en eru samt aðeins
hálfdrættingar á við Norðmenn.
Spánverjar eru svo nokkru neðar á
listanum og síðan Danir.
Aflaverðmæti á mann
Íslendingar eru sem sagt önnur
stærsta fiskveiðiþjóðin í Vestur-
Evrópu sem er hreint ekki svo slæmt.
Ef við beitum svo höfðatölureglunni
sem okkur er svo töm í svona
samanburði kemur í ljós að hvergi
eru sköpuð meiri verðmæti í
sjávarútvegi á hvern íbúa en á
Íslandi, ef Færeyjar eru undanskildar.
Aflaverðmæti á Íslandi á árinu 2015
svaraði til 468 þúsund króna á hvert
mannsbarn. Í Færeyjum, þar sem
allt byggist á fiski en þjóðin er
fámenn, var þessi tala 1,1 milljón
íslenskra króna. Þessar þjóðir
hafa algjöra sérstöðu meðal þjóða
í Vestur-Evrópu. Til samanburðar
má nefna að aflaverðmæti á hvern
Norðmann var 46 þúsund krónur
(þ.e. einn tíundi miðað við Ísland),
í Danmörku og Írlandi 10 þúsund
krónur á hvert mannsbarn í hvoru
landi og í Bretlandi aðeins 2 þúsund
krónur á mann.
Ríkisstyrkir víðast hvar
Þetta sýnir auðvitað hversu þungt
sjávarútvegur vegur í efnahagnum
á Íslandi og í Færeyjum samanborið
við hin nágrannalöndin.
Þótt Norðmenn veiði
tvöfalt meira af fiski
en Íslendingar er
sjávarútvegur þar í
landi ekki sú meginstoð
efnahags sem hún er
hérlendis. Raunar er
hlutverk sjávarútvegsins
í Noregi fyrst og fremst
það að halda uppi byggð
í Norður-Noregi. Í
hinum löndunum sem
nefnd voru er mikilvægi
sjávarútvegs ennþá minna
í efnahagslífinu og víða
þurfa þessar atvinnugreinar
háa opinbera styrki til þess
að halda sér gangandi.
Fram hefur komið að
íslenskur sjávarútvegur sé
sá eini í OECD-löndunum
sem greiðir veiðigjöld.
Færeyingar hafa nú einnig
tekið upp veiðigjöld á
ákveðnar fisktegundir en
aðrar ekki. Nánast alls
staðar annars staðar er
sjávarútvegur ríkisstyrktur.
Samherji í 40. sæti
En hversu stór
eru stærstu
í s l e n s k u
sjávar útvegs-
f y r i r t æ k i n í
alþjóðlegum samanburði?
Hér á landi er gjarnan
talað um þau stærstu,
eins og Samherja,
sem sjávarútvegsrisa
og vissulega má það
til sanns vegar færa á
íslenskan mælikvarða. Á
vef Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi (SFS)
kemur fram að Samherji
sé eina íslenska fyrirtækið
á lista yfir 100 stærstu
sjávarútvegsfyrirtæki
heims og skipi þar 40.
sætið. Rétt er þó að minna
á í þessu sambandi að
stór hluti af starfsemi
Samherja felst í útgerð
og fiskvinnslu erlendis.
Samanlagðar tekjur
dóttur- og samstarfsfélaga
í fimmtán löndum innan
samstæðu Samherja námu
um 77 milljörðum króna
í fyrra. Þótt Samherji sé
stór í okkar augum bliknar
hann þó í samanburði
við allra stærstu
sjávarútvegsfyrirtæki
heims sem eru m.a. frá Japan,
Taílandi, Noregi, Spáni, Kína,
Suður-Kóreu og Bandaríkjunum.
Stærstu risarnir
Þrettán stærstu sjávarútvegs_
fyrirtæki heims ráða yfir 11-16%
heimsaflans eða 9-13 milljónum
tonna, að því er fram kemur í
skýrslu Arion banka sem unnin var
í samvinnu við Sjávarklasann árið
2015. Stærst þessara fyrirtækja,
Maruha Nichiro, er með yfir 100
starfsstöðvar í fimm heimsálfum.
Árstekjur þess árið 2014 námu yfir
1.000 milljörðum íslenskra króna
og starfsmenn voru ríflega 12.000
talsins. Til samanburðar má nefna að
um 8.000 manns starfa í fiskveiðum
og fiskvinnslu hérlendis og
útflutningsvermæti greinar-
innar nam tæpum 200
milljörðum króna á síðasta ári.
Tekjur þessa eina fyrirtækis
nema sem sagt fimm sinnum
hærri upphæð en tekjur allra
sjávarútvegsfyrirtækja á
Íslandi samanlagt.
Hvergi ráðandi afl
Þótt Íslendingar séu að sönnu
ekki umsvifamiklir í sölu
sjávarafurða á heimsmarkaði
með sín 1% af sölunni
samanborið við Japani með
39%, Bandaríkjamenn með
12% og Norðmenn með 10%
(að meðtöldum eldisfiski) er
hlutur Íslands í ákveðnum
tegundum og á ákveðnum
mörkuðum umtalsverður.
Þetta á til dæmis við um
frystan og ferskan þorsk
í Bretlandi og Frakklandi
og saltfisk á Spáni. Ekki
er þó þar með sagt að
Íslendingar séu ráðandi
afl í verðlagningu þessara
afurða því verðið ræðst af
framboði og eftirspurn á
þessum mörkuðum. Ekki
aðeins eru þessar vörur í
samkeppni við samsvarandi
afurðir frá öðrum löndum
heldur keppa þær einnig við
aðrar fisktegundir og aðrar
matvörur um hylli neytenda.
Stór þótt lítil sé
Á einu sviði má þó segja
að Ísland, þótt lítið sé,
hafi vakið á sér athygli í
alþjóðlegum sjávarútvegi.
Þótt Íslendingar sjálfir deili
hart um ágæti íslenska
fisksveiðistjórnunarkerfisins
og margir finni á því stóra
galla verður ekki horft framhjá
því að erlendis er gjarnan
litið á kerfið sem fyrirmynd
að góðum stjórnunarháttum
í fiskveiðum. Hér er nýting
fiskistofnanna sjálfbær
og ráðamenn fara nánast
undantekningarlaust að
veiðiráðgjöf fiskifræðinga.
Kvótakerfið hefur stuðlað
að hagræðingu og aukinni
arðsemi með fækkun
fiskiskipa og vinnslustöðva,
þrátt fyrir svipaðan afla og
fyrr. Sjávarútvegurinn hefur
fætt af sér hátæknifyrirtæki
sem framleiða vélar og búnað
sem leitt hafa til stóraukinnar
sjálfvirkni sem aftur hefur skilað
sér í aukinni hráefnisnýtingu
og arðsemi. Nýjasta skrefið er
svo líftækniiðnaður sem vinnur
verðmætar lyf- og heilsuvörur úr
fiskúrgangi sem áður var fleygt.
Því má í vissum skilningi
segja að við Íslendingar séum stór
sjávarútvegsþjóð, þótt lítil sé.
Hversu stórir (litlir) erum við?
Á Íslandi hafa fundist og
verið skrásettar um 2.000
tegundir sveppa en þá eru
fléttur ekki taldar með.
Flestir þessara sveppa eru
svo smávaxnir að þeir sjást
ekki með berum augum.
Af þeim ríflega 2.000
tegundum sveppa sem fundist
hafa á Íslandi eru milli 30 og 40
stórsveppir taldir hæfir til átu
en eru þó miseftirsóknarverðir.
Til stórsveppa teljast sveppir
sem sjást með berum augum.
Stór hluti matsveppa telst til
kólfsveppa, t.d. lerkisveppur
og kúalabbi.
Ef safna á sveppum til átu
er mikilvægt að vanda valið og
neyta aldrei sveppa sem ekki
hafa verið greindir hæfir til
neyslu. Þrátt fyrir að hér á landi
vaxi fáir eitraðir sveppir er
aldrei of varlega farið og óþarfi
að fara út í tilraunastarfsemi.
Til að greina sveppi er gott
að hafa góða bók við höndina.
Byrjendum er ráðlagt að læra
að þekkja nokkrar algengar
tegundir til að byrja með,
t.d. kúalubba, furusvepp og
gorkúlu, en láta aðra sveppi
eiga sig í fyrstu. Smám saman,
eftir því sem þekkingin eykst,
er svo nýjum tegundum bætt
við í söfnunarferðum.
Villtir íslenskir matsveppir
eru allir hattsveppir en
lögun hattsins getur verið
mismunandi, til dæmis
hvelfdur, flatur eða kúlulaga
svo dæmi séu tekin. Ef litið er
undir hatt ýmissa stórsveppa
eru þar annaðhvort fanir eða
pípur og lítið mál er að þekkja
þær í sundur. Undir hatti
pípusveppa er röð lóðréttra
pípa sem minna einna helst á
svamp. Fansveppir hafa aftur á
móti lóðrétt blöð eða fanir sem
liggja undir hattinum.
Sveppir skjóta upp kollinum
síðsumars í ágúst og fram eftir
hausti í september, jafnvel fram
í október ef vel viðrar. Mest
er um þá í skóglendi og hefur
tegundum matsveppa fjölgað
með aukinni skógrækt en
þeir finnast einnig í mó- og
graslendi.
Best er að tína sveppi 3 til
4 dögum eftir rigningu og í
þurru veðri því annars eru þeir
slepjulegir viðkomu.
Sveppir eru bestir á meðan
þeir eru ungir og óskemmdir af
áti snigla eða skordýra. Þegar
sveppir eru tíndir skal taka
neðst um stafinn, snúa honum
varlega og losa þannig frá
jarðveginum. Einnig má skera
þá lausa með beittum hníf.
Ráðlegt er að tína sveppi
í ílát sem loftar vel um körfu
eða kassa, en aldrei í plastpoka
eða plastílát því þá rotna þeir.
Gott er að skera neðsta hlutann
af stafnum burt. Hreinsa skal
allt lauf og óhreinindi af um
leið og sveppirnir eru tíndir
og er ráðlegt að fjarlægja
allar skemmdir strax. Ef til
stendur að þurrka sveppina
er gott að skera þá í tvennt til
að sjá hvort þeir eru maðkaðir.
Möðkuðum sveppum verður
að henda og er best að gera
það á staðnum.
Þeir sem safna sveppum
ættu að venja sig á að ganga
vel um sveppamóinn og
hvorki taka upp né sparka
um koll sveppum sem ekki
er ætlunin að safna. Sveppir
eru nauðsynlegur hluti af
hringrás náttúrunnar og engin
ástæða til að skemma þá að
ástæðulausu. /VH
Kónguló, kónguló
vísaðu mér á
sveppamó
STEKKUR
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Mynd / HKr.
1. Kína 17.704
2. Indónesía 6.515
3. Bandaríkin 5.077
4. Indland 4.830
5. Rússland 4.527
6. Perú 3.956
7. Japan 3.400
8. Víetnam 2.796
9. Noregur 2.289
10. Filippseyjar 2.079
11. Síle 2.029
12. Mjanmar *1954
13. Tæland 1.678
14. Kórea 1.630
15. Bangladess 1.644
16. Malasía 1.509
17. Mexíkó 1.437
18. Marokkó *1365
20. Tævan 988
21. Spánn *973
22. Danmörk *869
23. Kanada 852
24. Argentína 808
25. Nígería 700
NYTJAR HAFSINS