Bændablaðið - 04.10.2018, Síða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201828
LÍF&STARF
Mynd / einkasafn
Svínabændurnir í Laxárdal 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi:
Lífið snýst um svínin, kjötvinnsluna,
kornið og Pizzavagninn
Laxárdalur er stór fjallajörð í
uppsveitum Árnessýslu í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi, sem liggur að
Stóru-Laxá. Á jörðinni er tvíbýli.
Á Laxárdal 1 er búið með kýr en
á Laxárdal 2 búa þau Björgvin
Þór Harðarson og Petrína Þórunn
Jónsdóttir með svínabú, ásamt
foreldrum Björgvins, þeim Herði
Harðarsyni og Maríu Guðnýju
Guðnadóttur, sem bæði eru fædd
1953.
Á bænum Laxárdal 2 eru líka
nokkrar kindur og hestar ásamt
hundum og köttum á báðum
bæjunum. Björgvin Þór er fæddur
1975 og Petrína 1974. Börn þeirra
eru Auðunn Magni (f. 2003), Guðný
Vala (f. 2004) og Sindri Snær (f.
2009). Tvær elstu dæturnar eru
fluttar að heiman en það eru þær
Hjördís Bára Sigurðardóttir (f.
1992), gift Sindra Snæ Bjarnasyni
og Rakel Ósk Sigurðardóttir (f.
1993), gift Berat Bulan. Barnabörn
Björgvins og Petrínu eru Heiðdís
Björk Sindradóttir, 5 ára og Arnþór
Elí Sindrason, 3 ára. Laxárdalur
er landmikil jörð sem liggur hátt
og undirlendi er ekki mikið. Hver
blettur sem hægt er að nýta fyrir tún
er slegin. Björgvin Þór og Petrína
svöruðu nokkrum spurningum
blaðsins.
1.000 dýr í húsunum
– Svínabúskapurinn, hvað eru þið
með margar gyltur og hvað er
mikið í húsunum ykkar þegar allt
er tekið með og hvernig er að vera
svínabændur í dag?
„ Við erum með um 160 gyltur og
ætli það séu ekki að jafnaði um 1.000
dýr í húsunum á hverjum tíma, þetta
er náttúrlega eins og annar búskapur.
Það er heilmikið í kringum þetta,
að sinna dýrunum og sjá til þess að
allt gangi þar eins og best verður á
kosið. Það er alltaf gefandi að vinna
með dýrum. Engir tveir dagar eru
eins á svona búi. Það er misjafnt
hvaða dagur er hvernig vinnan er.
Eftirspurn eftir svínakjöti hefur verið
vaxandi á undanförnum árum og við
svínabændur reynum að mæta því
eins og hægt er og aðstæður leyfa,“
segir Petrína.
Rækta korn á 230 hekturum
– Þið ræktið ykkar eigið fóður ofan í
svínin ykkar. Hvað kemur til og hvað
erum við að tala um þar?
„Já, við byrjuðum að fikra okkur
áfram með kornrækt í kringum
árið 2000, prófuðum að rækta í
Laxárdal og eins að kaupa korn af
öðrum. Það var svo 2007 sem við
hófum kornrækt í Gunnarsholti á
Rangárvöllum. Þar er nægt land
til staðar og landið liggur mun
lægra og staðsetningin hentar
vel til kornræktar. Við byrjuðum
frekar smátt en jukum við ræktað
land nokkuð hratt og höfum oftast
verið með í kringum 230 ha. En
það er heldur minna núna vegna
þess hversu vorið var blautt,“ segir
Björgvin og bætir við að allt fóður
sem þau framleiða sé þurrkað, þá
geymist það vel yfir langan tíma án
þess að gæðin rýrni. „En heima á
búinu er kornið malað og blandað
saman, t.d. hveiti, bygg og repja fer
allt í mölun og er svo blandað saman
ásamt vítamíni og próteingjafa sem
er soja- eða fiskimjöl. Fóðrið fá dýrin
annaðhvort þurrt, eins konar mjöl,
eða því er blandað saman við vatn
og þá er þetta eins og bygggrautur.“
Hollar fitusýrur í svínakjötinu
– Er ekki frábært að rækta sín eigin
svín með sínu eigin fóðri?
„Jú, það er náttúrlega mjög
skemmtilegt að geta sagt að kjötið
sé alið á íslensku fóðri allt að 70 til
80%. Fyrir nokkru síðan létum við
gera könnun á fitusýrusamsetningu
okkar kjöts samanborið við annað
íslenskt svínakjöt. Út úr því kom að
það er meira af ómega 3 fitusýrum
í okkar kjöti og líka er meira af
fjölómettuðum fitusýrum. En þessar
fitusýrur eru hollari en mettaðar.
Þetta er vegna þess að við erum
að gefa íslenskt fóður og repjan er
önnur af líklega bara tveim jurtum
sem geta framleitt ómega 3 fitusýrur,
annars er það eingöngu í sjávarvangi
þar sem hægt er að fá ómega 3,“
segir Petrína.
Kjötvinnsla í Árnesi
– Þið opnuðuð kjötvinnslu í Árnesi
í sumar. Af hverju var ákveðið að
fara þá leið og út á hvað gengur
starfsemi kjötvinnslunnar?
„Eftirspurnin eftir kjöti frá okkur
var orðin mikil og við seldum
eingöngu í hálfum skrokkum og það
hentaði ekki öllum. Neytandinn var
oft að leita eftir ákveðnum vörum
sem við gátum ekki sinnt þar sem
við höfðum ekki aðstöðu til. Einnig
er eftirspurn eftir vörum Beint frá
býli og vörum sem neytandi getur
rakið alla leið að aukast mikið.
Við vinnum aðeins lítinn hluta af
ræktuninni í kjötvinnslunni. Við
reynum eftir fremsta megni að sinna
þörfum viðskiptavinarins,“ segir
Petrína. Hún segir að kjötvinnslan
hafi gengið miklu betur en þau höfðu
reiknað með. „Við fáum heilmikið
af fólki til okkar sem kemur langa
leið. Það mega allir koma og versla
í kjötborðinu okkar. Einnig erum við
með vörur í Bjarnabúð í Reykholti,
Litlu Melabúðinni á Flúðum og í
Versluninni Borg í Grímsnesi og í
Villt og Alið á Hellu.“
Jólin í undirbúningi
Það er meira en nóg að gera í
kjötvinnslunni þessa dagana
við að undirbúa jólin og græja
hamborgarhryggi og taka á móti
pöntunum frá fólki. Þá hefur
beikonið og skinkan frá Laxárdal
slegið í gegn, enda langvinsælustu
vörur kjötvinnslunnar. Þær innihalda
engan sykur, aðeins salt.
„Einnig erum við með kryddaða
grísastrimla, snitsel, pepperoni,
kótelettur, hnakkasneiðar,
bógsteikur, purusteikur og margt
fleira. Við erum alltaf að læra
eitthvað nýtt og prófa okkur áfram.
Við framleiðum skinku, pepperoni,
beikon og pulled pork fyrir
Pizzavagninn, sem er hitt fyrirtækið
okkar,“ segir Björgvin Þór.
Rekjanleikinn þekktur
– Svínakjötið ykkar þykir sérstaklega
gott og þið seljið mikið af því.
Hverju þakkið þið þetta góða bragð
og vinsældir kjötsins?
Petrína svarar því. „Ég held að
það felist í gæðum kjötsins, vegna
þess að dýrin eru alin á íslensku fóðri.
Einnig er rekjanleikinn þekktur og
fólk veit hvaðan maturinn kemur
sem við við eru að bjóða upp á. Til
er orðatiltæki á ensku en lauslega
þýðist það: „Þú þarft að vita hvaðan
maturinn þinn kemur og hvað hann
borðar“.“
Pizzavagninn 14 ára gamall
– Þið eruð líka með Pizzavagn.
Hvenær ákváðuð þið að fara út í
slíka starfsemi og hvernig virkar
vagninn?
„Við opnuðum Pizzavagninn
12. júní 2004 og er hann því orðinn
14 ára. Petrína hafði unnið á
pitsustöðum á höfuðborgarsvæðinu
og kunni vel til verka. Við erum
með súrdeigspitsubotna sem við
búum til sjálf, við hættum að nota
gerbotna árið 2014 og hefur það
gefist mjög vel. Einnig blöndum
við sósuna sjálf. Kjötvörurnar eru
úr eigin framleiðslu í kjötvinnslunni.
Allir ostar, sveppir, paprika, tómatar
og klettasalat eru allt úr íslenskri
framleiðslu. Markmið okkar hefur
alltaf verið að vera sem mest með
íslenska framleiðslu,“ segir Björgvin
Þór, en þau ferðast með vagninn í
uppsveitum Árnessýslu allar helgar.
„Við erum á Flúðum, Brautarholti,
Borg, Laugarvatni, Reykholti og í
Björgvin Þór og Petrína hafa gaman af vinnunni sinni, ekki síst nýju kjötvinnslunni í Árnesi sem gengur ljómandi
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Mynd / einkasafn
Mynd / einkasafn