Bændablaðið - 04.10.2018, Side 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 29
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 18. október
Árnesi.“ Dagskrá vagnsins er gefin
út á Facebook-síðu Pizza vagnsins.
Óvissan er slæm
– Staða íslensks landbúnaðar
núna 2018, hvernig líst ykkur á
hana og hvernig finnst ykkur málin
þróast?
„Það sem hefur verið slæmt
undanfarin ár er óvissan, sérstaklega
í þeim greinum sem ekki eru
ríkisreknar. Stjórnmálamenn koma
og fara og almennt hafa þeir minni
skilning á matvælaframleiðslu og
hvað það er sem skiptir máli til
að hún geti vaxið og dafnað. Það
eru miklar áskoranir í framleiðslu
matvæla núna á næstu áratugum og
manni finnst að Íslendingar ættu að
vera með í því, ekki bara einblína
á það að flytja hingað inn ódýra
vöru sem stenst ekki samanburð
við íslenskar vörur ef tekið er tillit
til gæða og kolefnisfótspors. En
verðið er kannski lægra í bili. Það
verður ekki lengi og mig grunar að
næsta sumar þá fari matvælaverð,
allavega í Evrópu, að hækka,“ segir
Björgvin Þór.
30% innflutt svínakjöt
Það er mikið flutt inn af svínakjöti.
Er það ekki slæmt fyrir svínabændur
eins og ykkur og er eitthvað hægt að
gera í þeirri stöðu?
Björgvin Þór segir að innflutn-
ingur hafi aukist mikið síðustu ár
og má segja að öll sú neysluaukning
sem orðið hefur á svínakjöti sé borin
uppi af innflutningi. Hann segir
að 25 til 30% af heildarneyslu á
svínakjöti á Íslandi sé innflutt. „Það
væri hægt að framleiða þetta allt hér
á landi en þá verða stjórnvöld að
skapa þær aðstæður að hægt sé að
ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir.
Þá er ekki hægt að búa við að
stjórnmálamenn taki illa ígrundaðar
skyndiákvarðanir varðandi tollamál
og hafi svo enga langtímastefnu um
það hvernig umgjörð á að vera um
landbúnað á Íslandi,“
Björgvin Þór segist að sjálfsögðu
vona að svínabúskapur verði áfram
sterkur á Íslandi og að svínabú verði
áfram víða um land. Honum finnst þó
alveg eins líklegt að búum fækki og
kannski verði bara tvö til þrjú stór bú
með allan markaðinn í næstu framtíð.
Lífið í Laxárdal
– Að lokum eru hjónin spurð út í lífið
í Laxárdal, hvernig er hefðbundinn
dagur hjá fjölskyldunni?
„Þetta er nú í nokkuð föstum
skorðum. Foreldrar mínir sjá um
svínahúsið að miklu leyti en ég
kem þar einnig þegar ekki stendur
fyrir dyrum sáning eða þresking.
Petrína sinnir kjötvinnslunni og ég
aðstoða hana þar einn til tvo daga
í viku. Í svínahúsinu er takturinn
þannig að gyltur gjóta í annarri
hverri viku og þá er vinnuvikan
skipulögð í samræmi við það. En
ég sé einn um kornræktina og er
með einn mann með mér í mestu
vinnutörnunum,“ segir Björgvin
Þór og vill hafa þessi lokaorð: „Að
vinna í landbúnaði þar sem maður
hefur tækifæri á að vinna við allt
ferlið frá akri í maga er gríðarlega
fjölbreytt og margbreytilegt. Eftir að
hafa unnið við þetta í þennan tíma
þá er hætt við því að manni fyndist
„venjuleg“ störf verða ansi einhæf
eftir skamman tíma.“ /MHH
Sáning á vetrarhveiti 2016, Auðunn Magni Björgvinsson plægir og Björgvin
Þór er að sá. Mynd / einkasafn
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | | 20 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 7 0
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Giant D337T HD er sú vél
sem við höfum selt mest af.
Þessi vél höfðar vel til
íslenskra bænda sem og
minni verktaka.
nn
an er ótrúlega
duglegur miðað við stærð.
Hann getur nánast lyft eigin
þyngd, þess vegna er hann kallaður
nn
Mikil lyftigeta - Aflmiklir - Stöðugir - Úrval aukahluta
Nettur en öflugur skotbómulyftari
a
n a an n a
Gunnbjarnarholti,
801 Selfoss
Sími 480 5600
Verðum á sýningunni
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018
í Laugardalshöll 12. - 14. október