Bændablaðið - 04.10.2018, Qupperneq 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201830
LÍF&STARF
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði
Hafðu
samband
568 0100
www.stolpigamar.is
Gámurinn
er þarfaþing
Þurrgámar
Hitastýrðir gámar
Geymslugámar
Einangraðir gámar
Fleti og tankgámar
Gámar með hliðaropnun
Til leigu eða sölu: Gámahús og salernishús
Færanleg starfsmannaðstaða
Bos gámar og skemmur
„Það vantar tilfinnanlega hús-
næði í sveitarfélaginu. Hér hefur
sáralítið verið byggt af íbúðar-
húsnæði í áraraðir,“ segir Snorri
Finnlaugsson, sveitar stjóri í Hörg-
ár sveit. Tveir þéttbýlis kjarnar
eru í Hörgársveit, á Hjalteyri og
við Lónsbakka, og stendur til að
byggja ný íbúðarhús á báðum
stöðum í nánustu framtíð.
Rúmlega 600 íbúar eru búsettir
í Hörgársveit, sem er næsta
sveitarfélag norðan Akureyrar,
teygir sig norður að Fagraskógi við
mörkin að Dalvíkurbyggð og innan
þess eru Öxnadalur og Hörgárdalur
þar sem mörk sveitarfélagsins eru
á móti Akrahreppi við Grjótá á
Öxnadalsheiði. Hörgársveit varð til
árið 2010 þegar Arnarneshreppur
sameinaðist Hörgárbyggð, en það
sveitarfélag varð til með sameiningu
þriggja hreppa, Glæsibæjarhrepps,
Arnarneshrepps og Skriðuhrepps
árið 2001. Hörgársveit er að
stærstum hluta dreifbýli þar sem
stundaður er hefðbundinn búskapur.
Líflegt á Hjalteyri
Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur
samþykkt að gefinn verði 50%
afsláttur af gatnagerðargjaldi
samkvæmt gildandi gjaldskrá á
10 lausum einbýlishúsalóðum við
Brekkuhús á Hjalteyri. Þær lóðir
eru í brekkunni ofan við eyrina.
Snorri segir að til viðbótar standi
til að byggja þrjú hús á eyrinni
sjálfri, hús sem hefðu yfir sér
„gamaldags“ yfirbragð í takt við
þann tíðaranda sem ríkti þegar hús
voru byggð á Hjalteyri á liðinni öld.
„Við eigum einnig lausar fjórar lóðir
undir frístundahús á þessu svæði
við Hjalteyri og þær hafa notið
vinsælda,“ segir Snorri.
„Staðan í sveitarfélaginu er góð
hvað varðar lausar lóðir, framboðið
er nægt og það er skortur á húsnæði.
Við hlökkum til að sjá hver viðbrögð
verða við auglýsingu um þessar
lausu lóðir og væntum þess að
þau verði góð,“ segir hann. „Við
reynum ævinlega að hafa tiltækar
byggingarhæfar lóðir fyrir þá sem
vilja byggja.“
Nýtt hverfi reist á Lónsbakka
Í hinum þéttbýliskjarna sveitar-
félagsins, á Lónsbakka, stendur
einnig til að taka til hendinni og
reisa ný hús við götu sem hlotið
hefur nafnið Reynihlíð. Fyrir eru á
svæðinu hús við tvær götur, Birkihlíð
og Skógarhlíð, og þar er ein laus lóð.
Um þessar mundir er sveitarfélagið
að óska tilboða í gatnagerð og
veitulagnir og verða þau opnuð upp
úr miðjum september.
„Við gerum ráð fyrir að unnið
verði við þessa jarðvegsvinnu í
vetur og að næsta vor verði í boði
fyrstu byggingarhæfu lóðirnar í nýju
hverfi,“ segir Snorri. Í fyrsta áfanga
þess er gert ráð fyrir að reisa 7 rað-
og parhús, með alls 16 íbúðum og
einnig þrjú fjölbýlishús. Þau verða
misstór, frá fjórum og upp í 12 íbúðir
í hverju.
Íbúar um 400 þegar hverfið
verður fullbyggt
Snorri segir að uppbyggingu í
Reynihlíðarhverfinu verði skipt upp
í alls þrjá áfanga. Fullbyggt verða 90
íbúðir í hverfinu og íbúar í kringum
400 talsins í Lónsbakkahverfinu í
heild. „Það kemur í ljós innan tíðar
hver viðbrögð verða, við byrjum á
að kanna þau áður en hafist verður
handa við næstu skref, en í næsta
áfanga er t.d. gert ráð fyrir smærri
íbúðum sem ákveðin eftirspurn er
eftir. Þetta verður því fjölbreytt
hverfi, blanda af smærri íbúðum í
fjölbýli, rað- og parhús og einnig
einbýlishús,“ segir Snorri.
Samstarf við leigufélög er fýsilegt
Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur
einnig samþykkt að huga að því
að auka framboð af leiguhúsnæði í
sveitarfélaginu. Það á nú þrjár íbúðir
í útleigu sem fyrst og fremst eru
fyrir starfsmenn Þelamerkurskóla.
Bæði á að skoða hvort sveitarfélagið
geti ýtt undir aukið framboð með
beinni þátttöku eða með öðrum
leiðum, svo sem í samstarfi við
aðra. Snorri segir að leigufélög,
m.a. Búfesti, hafi sýnt áhuga á
að reisa íbúðir í sveitarfélaginu
og að þau mál séu á vinnslustigi.
„Sveitarfélagið sjálft er í sjálfu sér
ekki á þeim buxununum að reisa
húsnæði til útleigu á eigin vegum,
en okkur gæti þótt fýsilegur kostur
að eiga samvinnu um slíkt verkefni
við félög sem starfa á því sviði,“
segir hann.
Byggja upp iðnaðarsvæði
Iðnaðarhverfi hefur undanfarin
misseri verið í uppbyggingu á svæði
skammt norðan við Húsasmiðjuna.
Tvö hús eru þegar risin á því svæði,
búið að úthluta tveimur lóðum sem
eru tilbúnar en framkvæmdir enn
ekki hafnar á þeim. Þá eru að sögn
Snorra enn til tvær lausar lóðir á
því svæði. Hann segir að margs
konar starfsemi sé í gangi á hinu
nýja iðnaðarsvæði, bílaviðgerðir,
vélaverkstæði, þar sé flutnings-
og vörubílaþjónusta, jarðverktaki
og ökuskóli. „Það eru þarna m.a.
fyrirtæki sem þurfa gott pláss
fyrir sína starfsemi og sjá sér hag
í að koma sér fyrir á þessu nýja
iðnaðarsvæði okkar,“ segir hann.
Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri í Hörgársveit, á nýju byggingasvæði
þéttbýliskjarnans á Lónsbakka. Verkefninu verður skipt upp í þrjá áfanga,
fullbyggðar verða þar 90 íbúðir og um 400 íbúar. Svæðið er alls tæplega 27
alls 16 íbúðum og einnig þrjú fjölbýlishús. Myndir / MÞÞ
Húsnæði skortir í Hörgársveit og hefur sáralítið verið byggt af íbúðarhúsnæði
þar í áraraðir. Hér er þó eitt í byggingu, við Skógarhlíð á Lónsbakka.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Uppbygging á döfinni í þremur byggðakjörnum í Hörgársveit við Eyjafjörð:
Ný 90 íbúða stækkun Lónsbakkahverfis
– Tíu einbýlishúsalóðir auglýstar á Hjalteyri og samþykkt að gefa þar 50% afslátt af gatnagerðargjöldum