Bændablaðið - 04.10.2018, Page 41

Bændablaðið - 04.10.2018, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 41 Áttu hugmynd þar sem mjólk kemur við sögu? Hér er tækifæri til að fá stuðning Auðhumla og Matís ætla að vinna saman að því að efla vöruþróun og rannsóknir. Opið er fyrir allskonar hugmyndir og eina skilyrðið er að kúamjólk gegni lykilhlutverki. Sérstök áhersla er lögð á að veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem fela í sér nýsköpun úr mjólkurpróteinum og/eða sérstöðu íslenskrar mjólkur. Kostur er ef hugmyndin stuðlar að jákvæðum umhverfisáhrifum og aukinni sjálfbærni. Hægt er að sækja um tvenns konar styrki, annars vegar að hámarki 3 milljónir fyrir almenn rannsókna- og þróunarverkefni og hins vegar allt að 8 milljónir króna fyrir öndvegisverkefni með mikið nýnæmi og tækifæri til verðmætasköpunar. Styrkur getur verið allt að 80% af heildarkostnaði verkefnisins. Gert er ráð fyrir að verkefnin séu til eins árs. Umsóknafrestur er til 12. nóvember 2018 Frekari upplýsingar á www.mimm.is og www.facebook.com/mjolk.i.morgum.myndum LESENDABÁS Úr Svarfaðardal. Hversu mikilvægur er landbúnaður fyrir sveitarfélagið mitt? Ein af grunnstoðum íslensks atvinnu- lífs er landbúnaður. Eyja fjörður er rótgróið land bún aðar hérað með blómlegum byggðum og stórum þjónustu- og úrvinnslufyrirtækjum á sviði landbúnaðar. Líta má á nýjar og breyttar áherslur t.d. tengdar ESB, niðurfellingu tolla, meiri sveigjanleika við innflutning á fersku kjöti o.fl. þætti sem töluverða ógn við bændur og þeirra starfsemi. En sú ógn einskorðast alls ekki við þá sem vinna í frumgreininni og ætla ég að varpa smá ljósi á mikilvægi landbúnaðar fyrir sveitarfélagið mitt, Dalvíkurbyggð. Í tölum sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar tók saman um landbúnaðarmál byggðum á Hagstofutölum ársins 2016 kemur fram að í Dalvíkurbyggð eru 39 rekstraraðilar í landbúnaði og er ársvelta bújarðanna rúmlega 900 milljónir króna samtals. Ætla má að hjá hverjum þessara 39 aðila séu að jafnaði 1–3 störf sem skila útsvarstekjum inn í sveitarfélagið. Mörg fyrirtæki í sveitarfélaginu þjónusta landbúnaðinn t.d. í byggingariðnaði, vélaverkstæðin og verslanirnar. Þá kaupa bændur þjónustu og vöru af veitum sveitarfélagsins og greiða fasteignagjöld af byggingum á jörðunum. Eyjafjarðarsvæðið í heild nýtur góðs af og mörg stór úrvinnslufyrirtæki skapa störf og hafa tekjur af landbúnaði. En það er svo mikið meira en tölur og peningaleg áhrif. Á jörð- unum býr fólk, heldur sín húsdýr og ræktar sína jörð. Þar eru allt upp í þrjár kynslóðir á sama bænum að skapa verðmæti. Og verðmætin mælast ekki síður í félagslífi, samvinnu milli bæja og samkennd með nágrönnunum. Á meðan jarðirnar haldast í byggð og búskap er ásýnd sveitanna fögur og áður nefnd verðmæti til staðar. Það ríkir bjartsýni og trú á framtíðina. Um leið og búskapur leggst af og jarðir fara í eyði eða undir frístundabúsetu þá er erfiðara fyrir þá sem eftir standa að halda úti margvíslegum samfélagsverkefnum. Þess vegna er svo mikilvægt á landsvísu að standa vörð um landið og landbúnaðinn og koma lögum yfir uppkaup auðmanna á heilu sveitunum. Við í Dalvíkurbyggð erum stolt af okkar bændum og þeirra metnaðarfullu starfsemi sem er mjög mikilvæg fyrir sveitarfélagið. Undanfarin ár hefur verið gaman að fylgjast með hvernig þeir hafa margir hverjir byggt upp og fært vinnsluhætti til nútímans. Ég vona að skilyrði, regluverk og umgjörð um landbúnaðinn verði með þeim hætti í framtíðinni að nýjar kynslóðir sjái áfram tækifæri í að helga sig þessari grundvallar atvinnugrein í okkar þjóðfélagi. Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 18. október MENNING&LISTIR Marrið í stiganum Eva Björg Ægisdóttir hlaut spennusagnaverðlaunin Svart- fuglinn fyrir sögu sína Marrið í stiganum sem kom út hjá Veröld í apríl á þessu ári. Ung kona finnst myrt í fjörunni við Akranes. Hin látna reynist hafa búið sem barn í bænum en flutti skyndilega burt ásamt móður sinni. Lögreglukonan Elma, sem er nýflutt á Skagann, rannsakar málið ásamt samstarfsmönnum sínum. Upp á yfirborðið koma ýmis skuggaleg mál úr fortíðinni en Elma þarf líka að takast á við atburði í eigin lífi sem hröktu hana aftur heim á æskuslóðirnar. Marrið í stiganum er fyrsta bók Evu Bjargar Ægisdóttur og bar handrit hennar sigur úr býtum í samkeppninni um Svartfuglinn, glæpasagnaverðlaun sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson stofnuðu til í samvinnu við Veröld. „Sagan er grípandi og spennandi samhliða því að veita innsýn í myrkan og sáran veruleika. Fléttan er fagmannlega unnin, söguþráðurinn sterkur og sögulokin koma lesand- anum á óvart. Spennandi og átakanleg glæpasaga eftir höfund sem án nokkurs vafa mun kveða mikið að í framtíðinni.“ Úr umsögn dómnefndar Marrið í stiganum er 384 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Aðalsteinn Svanur Sigfússon hannaði kápu. Bókin er prentuð í Danmörku.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.