Bændablaðið - 04.10.2018, Qupperneq 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 43
Að búa til ofurlítinn skemmtigarð
fjallar um sögu og þróun
íslenskrar garðhönnunar eða
landslagsarkitektúrs. Í bókinni er
umhverfismótun sett í samhengi
við rætur íslenskrar menningar
og tengd alþjóðlegum straumum
og stefnum. Höfundur er Einar E.
Sæmundsson landslagsarkitekt.
Í bókinni er fjallað um sögu garða
á Íslandi frá elstu tímum en einkum
um tímabilið frá þéttbýlismyndun
þegar almenningsgarðar og útivistar-
svæði urðu hluti af skipulags-
gerðinni. Höfundur gengur um ýmsa
kunna garða og miður þekkta, og
fjallar sérstaklega um feril tveggja
frumkvöðla í stétt landslags-
arkitekta.
Garðsagan er áhugaverð
Einar segir að tilurð bókarinnar sé
áhugi hans sem landslagsarkitekts
á landmótun og sögu hennar hér á
landi. „Garðsaga er að mínu mati
áhugaverð og ég hef viðað að mér
efni henni tengdri
í gegnum tímann. Í
bókinni eru einnig
stiklur inn í nútímann
og nútíma garða.
Ég hóf kennslu í
lands lags arkitektúr við
Land bún aðar há skólann
á Hvanneyri 2002 og
tók saman ásamt öðrum
kennslu hefti sem er á
vissan hátt en samt ekki
grunnurinn að bókinni
þar sem ég kenndi
íslenska garðsögu.
Smám saman varð til
þokkalegt handrit og
eftir að ég hætti kennslu
sótti ég um styrk til að
vinna það áfram og sú
vinna hefur staðið með hléum frá
2013.“
Að sögn
Einars rekur
hann sig
í gegnum
a l d i r n a r.
„Í bókinni
er meðal
annars sagt
frá ósýnilegu görðunum og trúar-
görðum eins og kirkju- og klaust-
ur görðum og frá því þegar land-
búnaðarbyltingin hefst á Íslandi um
1750. Með stofnun kaupstaðanna
verða svo til þorpsgarðar og íbúar
þorpanna fara að láta sig garðrækt
varða. Þaðan held ég svo inn í
nútímann og lýk bókinni á því að
segja frá tveimur fyrstu landslags-
arkitektunum hér á landi og fer í
gegnum þeirra starf.
Undirtónn bókarinnar er því
landslagsarkitekta tengdur en um
leið saga garðræktar á Íslandi og
þróun hennar fram undir 1980.“
Útgefandi Hið íslenska
bókmenntafélag
Einar E. Sæmundsen
er landslagsarkitekt
og einn stofnenda
te iknis tofunnar
L a n d m ó t u n a r ,
hann var um hríð
garðyrkjustjóri hjá
Kópavogsbæ og
dósent í hlutastarfi
við Landbúnaðar-
háskólann á
Hvanneyri þar sem
hann hefur kennt
landslagsarkitektúr,
garðhönnun og
umhverfisskipulag.
Bókin kemur út
á 40 ára afmæli
Félags íslenskra
landslagsarkitekta. Útgefandi er
Hið íslenska bókmenntafélag. /VH
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.is
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
JEPPADEKK
fyrir íslenskar aðstæður
NÝR DEKKJAVEFUR!
www.jeppadekk.is
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Réttu
græjurnar!
Við sérhæfum okkur í öryggisbúnaði
m.a. heyrnarhlífum og samskiptabúnaði.
Hugaðu að heyrninni, hún er mikilvæg!
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Fyrir börnin
Í skotveiðina
Bluetooth
Áföst á hjálmi
Hefðbundin
Fyrir samskipti
MENNING&LISTIR
Íslensk garðsaga:
Að búa til ofurlítinn
skemmtigarð
Einar E. Sæmundsson lands-
lags arkitekt og höf undur
nýrra bókar um íslenska
garðsögu.
Einar Helgason garð-
yrkju maður er einn
þeirra manna sem mest
áhrif höfðu til eflingar
garðyrkju á fyrsta
þriðjungi 20. aldar.
Hann var garðyrkjunemi
hjá Schierbeck árið
1890 og stundaði nám
við garðyrkjuskólann
í Vilvorde á Sjálandi í
Danmörku 1894–1898.
Frá árinu 1899 til 1920
rak hann garðplöntustöð
og tilraunabú, Gróðrar-
stöðina í Reykjavík, með
tilstyrk ríkisins. Frá 1920 fram
til dauðadags árið 1935 rak
hann eigin garðplöntustöð á
sama stað.
Hákon Bjarnason, síðar
skógræktarstjóri, ólst upp við
Laufásveginn í nágrenni við
Gróðrarstöðina, og segir um Einar:
„Þegar horft er um öxl og litið
yfir ævi Einars vekur það furðu hve
mikið hann skrifaði um garðyrkju
og ræktunarmál í blöð og fjölda
rita ... samhliða umfangsmiklu
starfi í gróðrarstöðinni.“
Einar skrifaði nokkrar
garðyrkjubækur, þar á meðal
Bjarkir frá 1914, sem fjallar um
skrúðgarða. Þar lýsir Einar því
stuttlega hvernig skipuleggja skuli
garða og leggur fram þrjár tillögur
að skipulagi. Hann greinir á milli
tveggja höfuðgarðstíla, franska
stílsins og enska eða náttúrulega
stílsins. Þessi skipting á uppruna
sinn í mismun barokkgarðsins
og rómantíska garðsins, sem oft
hafa verið kenndir við Frakkland
og England. Hann segir franska
stílinn einkennast af beinum
línum, hringmyndunum og
reglulegum sporbaugum. Aftur á
móti einkennist enski garðurinn
af óreglulegum, bogadregnum
línum sem eigi að líkja eftir því
sem kemur fyrir í náttúrunni.
Hann segir franska stílinn henta
betur fyrir litla húsagarða en
í stærri görðum megi blanda
þessum stíltegundum saman.
Franski stíllinn fari þá betur næst
húsinu og sá enski fjær. Hann
telur jafnframt að meiri listræna
þekkingu þurfi til að takast vel upp
með enska stílinn. Sé garðurinn
er samansettur af skrúðgarði og
matjurtagarði leggur Einar til
að garðhlutarnir séu aðskildir
með rifsberjarunna. Þetta varð
útbreidd uppskrift í mörgum fyrstu
húsagörðunum.
Húsið við Suðurgötu 12 var fyrsta stóra
„villan“ sem byggð var í Reykjavík. Húsið
var reist 1899 og í hallanum að götunni
var skrúðgarður.
Brot úr Íslenskri garðsögu:
EINAR HELGASON OG GARÐASTÍLTEGUNDIR