Bændablaðið - 04.10.2018, Qupperneq 44

Bændablaðið - 04.10.2018, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201844 Granatepli eru mikilvægur hluti af fæðu fólks í löndunum við botn Miðjarðarhafsins og í Kákasusfjöllunum. Aldinið kemur víða fram í trúarbrögðum sem tákn um frjósemi, velsæld og dauða. Þrátt fyrir að granatepli sé nefnt í Guðbrandsbiblíu, fyrstu heildarútgáfu Biblíunnar á íslensku, fór aldinið ekki að sjást hér á landi að nokkru ráði fyrr en um síðustu aldamót. Heimsframleiðsla á granateplum árið 2016 er áætluð um þrjú milljón tonn. Íran var langstærsti framleiðandinn árið 2016 með um milljón tonn, eða 1/3 heimsframleiðslunnar og notar um 94 þúsund hektara undir ræktunina. Sama ár var Indland annar stærsti framleiðandinn. Kína er í þriðja sæti, Tyrkland í því fjórða og Bandaríki Norður-Ameríku í því fimmta. Um 90% af uppskeru granatepla í Íran fer á heimamarkað en 10% eru flutt út. Indland er stærsti útflytjandi granatepla í heiminum en stærstu innflytjendurnir eru Evrópusambandið, löndin við Persaflóa og Rússland. Ekki fundust upplýsingar um innflutt magn af granateplum til landsins. Innflutningurinn er breytilegur eftir uppskerutíma í ólíkum löndum en talsvert er flutt inn af granateplum frá Spáni. Punica granatum Einungis tvær tegundir tilheyra ættkvíslinni Punic. Önnur P. protopunica er upprunnin á fjórum eyjum í Indlandshafi út af Jemen og talin vera þróunarlega forveri hinnar tegundarinnar í ættkvíslinni, P. granatum eða granatvið. Granatviður er þyrnóttur runni eða lítið marggreinótt tré með trefjarót og nær allt að tíu metra hæð. Laufið lensulaga og gagnstætt á stuttum stilk eins til tíu sentímetra langt og eins til þriggja sentímetra breið og leðurkennd viðkomu. Laufið er langlíft og stundum sagt að plantan sé bæði lauffellandi og sígræn í senn. Granatviðarplöntur eru langlífar og vitað um tré sem eru yfir tveggja alda gömul. Blómin, sjálf- og skordýrafrjóvgandi, um þrír sentímetrar að þvermáli, rauð og eitt eða upp í fimm í hnapp á greinaendum. Krónublöðin fimm til átta, oddmjó og mynda vasa með með fræflum og frævu. Aldin hnöttótt og misstór, 5 til 12 sentímetrar í þvermál, eftir yrkjum. Ung aldin gul en verða rauðleit við þroska, húðin þykk, hörð og leðurkennd. Aldin granatepla eru ber sem myndast í blómbotninum. Á öðrum enda aldinsins er einskonar kóróna sem er leifar krónublaðanna. Að innanverðu skiptist aldinið í hólf með hvítleitum trefjum og í hverju hólfi er fjöldi hvítra fræja, 200 til 1400 eftir yrkju, sem þakin eru rauðu, safaríku og eilítið súru hlaupi. Fræin og hlaupið eru rúmlega 50% af þyngd aldinsins. Til er fjöldi ólíkra yrkja og landsorta af granateplum sem eru ólík að stærð, lit og bragði. Í viðskiptum með aldinið er algengt að flokka það eftir þyngd og lit í ofurstór, laus við lýti 750 grömm og þyngri. King size litfalleg 500 til 700 grömm, queen size fallega rauð 400 til 500 grömm og prince size fagurrauð 300 til 400 grömm að þyngd. Talið er að um það bil 500 ólík yrki af granateplum séu í ræktun í heiminum og langflest er að finna í Afganistan. Dæmi um ólík afbrigði má nefna 'Kabul' sem gefur stór aldin sem eru dökkrauð með gulum röndum og sætu hlaupi, 'Muscat Red' gefur aldin í minni kantinum og sætu hlaupi, 'Spanish Ruby' er með miðlungsstórt eldrautt aldin og sætu fræhlaupi og 'Wonderful' sem gefur mjög stór dökk fjólublá aldin með einstaklega safaríku hlaupi. Yrkjum er yfirleitt fjölgað með græðlingum en fræin spíra auðveldlega. Yfirleitt tekur aldinið sex til sjö mánuði að ná fullum þroska eftir blómgun. Granatviður þolir vel þurrk en á svæðum þar sem mikil úrkoma er þá skemmast ræturnar oft vegna sveppasýkingar. Plantan kýs kalkríkan moldarjarðveg en þrífst í margs konar jarðvegi. Sum yrki þola frost allt að mínus 10° á Celsíus. P. granatum var. nana er dvergafbrigði af P. granatum og vinsælt sem skrautrunni í kerum eða að rækta það sem bonsai. Nafnaspeki Fyrr á tímum kölluðust granatepli á ensku og frönsku epli frá Granada og á spænsku granada. Þau kallast granatæble, granatæbletræ á dönsku, granatäpple á sænsku og granataplef á þýsku og átti heitið að vísa til uppruna þeirra sem er kolrangt í heitunum. Í dag kallast granatepli granade á frönsku en pomegranate á ensku og er heitið komið úr Franska heitið granade yfirfærðist á ensku yfir á handsprengjur eða grenade. Hugmyndir eru uppi um að nafn spænsku borgarinnar Granada sé dregið af spænska heitinu sem er granada en aðrir segja að nafn borgarinnar komi úr tungumáli ókunnugu. HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Heimsframleiðsla á granateplum árið 2016 er áætluð um þrjú milljón tonn. Íran var langstærsti framleiðandinn árið 2016 með um milljón tonn eða 1/3 heimsframleiðsluna. Til er fjöldi ólíkra yrkja og landsorta af granateplum sem eru ólík af stærð, lit og bragði. Samkvæmt einni goðsöng eru fræ granateplis 613 eða jafnmörg og boð og bönn Gamla testamentisins. Skjaldarmerki Granada á Spáni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.