Bændablaðið - 04.10.2018, Qupperneq 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 45
Íslenska heitið kjarnepli þekkist
einnig fyrir granatepli.
Uppruni og saga
Granatviður er upprunninn á svæði
sem nær frá Íran um Himalajafjöll til
Norður-Indlands og hefur frá fornu
fari verið ræktaðu í Afganistan,
löndum Kákasusfjallanna, í kringum
Svartahafið og löndunum í kringum
Miðjarðarhafið. Vegna mikils fjölda
yrkja af granateplum sem finnast
í Afganistan eru miklar líkur á að
ræktun þeirra sé þaðan kominn.
Í dag eru trén einnig ræktuð
í Asíu, Austur-Indíum og víða
í Afríku. Granatepli bárust til
Suður-Ameríku og suðurhluta
Norður-Ameríku með spænskum
landnemum árið 1769 og er í dag
meðal annars ræktað í þurrari hlutum
Kaliforníu og Arizona.
Steingerðar aldinleifar af
granateplum hafa fundist frá því
á bronsöld við uppgröft í borginni
Jeríkó í Ísrael og á eyjunni Kýpur
og grísku borginni Tiryns þar sem
sagt er að Herkúles hafi unnið tólf
ofurmannleg verk. Stórt granatepli
fannst í gröf Djehuty, einkaþjóns
Hatsepsut drottningar í Egyptalandi,
sem var uppi á 15. öld fyrir upphaf
okkar tímatals og granateplalaga
vasi fannst í grafhýsi Tutankhamun
faraós sem var grafinn rúmum
hundrað árum síðar.
Aldinið er nefnt á nafn á steintöflu
frá Mesópótamíu sem er talin vera
frá þriðju öld fyrir Krist.
Talið er víst að granatepli hafi
borist með Silkileiðinni til Kína
og hugsanlega sjóleiðina með
kaupmönnum til Indlands. Í Kína
eru granatepli tákn um frjósemi
og myndir sem sýndu sprungin
granatepli sem fræin láku úr hengd
upp á heimilum til að auka líkur á
barneignum. Í Kóreu og Japan hefur
granatviður lengi verið ræktaður sem
bonsai og því ljóst að langt er síðan
plantan barst þangað.
Trú og goðsagnir
Egyptar til forna litu á granatepli
sem tákn um metnað og velgengni
og kölluðu þau jnhm eða nhm.
Samkvæmt Ebers-papýrisnum, sem
talin eru vera frá því um 1500 fyrir
Krist en afrit af eldri texta, notuðu
Egyptar granataldin til að lækna
ýmiss konar innanmein og þar á
meðal til að losna við iðraorma.
Granatepli koma víða við í
grískum goðsögum og list. Grikkir
töldu granatepli vera aldin hinna
dauðu og að plantan hefði sprottið
upp af blóði Adonisar hins mannlega
og dauðlega elskhuga ástargyðjunnar
Afródítu.
Goðsögur sem tengjast
Persefónu, gyðju undirheimanna,
segja oft af aldinum granatepla.
Samkvæmt einni goðsögninni rændi
Hades, konungur undirheimanna,
Persefónu og flutti hana til ríkis
síns og samkvæmt hefð dvelja
allir sem neyta matar eða drykkjar
í undirheimum þar til eilífðar. Í
sorg sinni verður Demete, móðir
Persefónu og gyðja uppskerunnar,
til þess að allur gróður hættir að vaxa
með tilheyrandi uppskerubresti og
jörðin visnar. Seus, æðsti guð ,sá
fram á að jörðin myndi deyja og
greip því í taumana og skipaði
Hades að skila Persefónu upp á
yfirborðið. Uppskerubresturinn sem
varð í sorg Demete olli fæðuskorti í
undirheimum jafnt sem á yfirborðinu
og vegna hans átti Hades ekkert til
að gefa Persefónu að borða nema
nokkur granateplafræ. Greint er á
um fjölda fræjanna og hvort þau
voru þrjú eða sjö eða einhvers
staðar þar á milli en fjöldi þeirra
segir til um hversu marga mánuði
Persefóna dvaldi í undirheimum og
uppskerubresturinn stóð yfir.
Grikkir til forna sögðu að þetta
væri ástæðan fyrir því að árið skiptist
í uppskerutíma og gróðursnauðan
tíma.
Í annarri grískri goðsögn segir
að nautnabelgurinn og gleðiguðinn
Díónesus hafi skapað granatepli úr
fagurri vatnadís sem bar kórónu.
Þrátt fyrir að granatepli tengist
dauðanum í grískri goðafræði var til
siðs að fórna aldininu til að tryggja
góða uppskeru og í dag er til siðs á
Grikklandi að færa fólki granatepli
sem gjöf þegar það er heimsótt á
nýtt heimili í fyrsta sinn og setja
við heimilisaltarið. Granatepli hafa
einnig táknrænt gildi við brúðkaup
og jarðarfarir í Grikklandi.
Kapella við fjallið Sale á
Grikklandi er helguð Madonna
del Granato, eða Madonnu
granateplisins. Talið er að
Madonnan á líkneskinu sem heldur
á Jesúbarninu í annarri hendi og
granatepli í hinni sé seinni tíma
kristin eftirmynd grísku gyðjunnar
Heru.
Auk þess sem til er fjöldi mynda
sem sýna Maríu guðsmóður með
Jesú og granatepli, til dæmis máluðu
bæði Botticelli og Leonardo da Vinci
slíkar myndir og á rifið aldinið að
tákna pínu og upprisu Krists.
Samkvæmt einni goðsögu
Gyðinga eru fræin í aldinum
granatepla 613, eða jafn mörg og
boð og bönn Gamla testamentisins.
Gyðingar segja einnig að kórónan á
enda granateplisaldins sé upphafleg
fyrirmynd allra kóróna í heiminum.
Granatepli eru margsinnis nefnd
á nafn í Biblíunni, meðal annars í
annarri Mósebók 28:33-35 segir
um skrúða presta. „Þú skalt gera
granatepli úr bláum purpura, rauðum
purpura og skarlati hringinn í kring
á slóða hennar og gullbjöllur á milli
þeirra hringinn í kring, til skiptis
gullbjöllu og granatepli hringinn
í kring á slóða kápunnar. Aron á
að bera hana þegar hann gegnir
þjónustu svo að til hans heyrist
þegar hann gengur inn í helgidóminn
fram fyrir auglit Drottins og þegar
hann gengur út svo að hann deyi
ekki.“ Aftur í sömu Mósebók 39:
24-26 segir um skrúða presta. „Þeir
gerðu granatepli á slóða kápunnar
úr bláum purpura, rauðum purpura
og tvinnuðu hárauðu bandi 25 og
þeir gerðu bjöllur úr skíru gulli og
festu þær á milli granateplanna á
slóða kápunnar hringinn í kring, 26
gullbjöllur og granatepli til skiptis
hringinn í kring á slóða kápunnar.
Þetta var ætlað til þjónustunnar eins
og Drottinn hafði boðið Móse.“
Í Ljóðaljóðunum segir karlmaður
til ástkonu sinnar „tennur þínar
sem ær í hóp, nýbaðaðar, allar
tvílembdar, og engin lamblaus,
gagnaugun eins og sneitt granatepli
undir andlitsblæjunni“ og hún
svarar seinna „förum snemma upp í
vínekrurnar, sjáum hvort vínviðurinn
blómstrar, hvort blóm hans hafa
opnast, hvort granatviðurinn stendur
í blóma. Þar gef ég þér ást mína.“
Ekki er talið ólíklegt að granatepli
sé hinn einni og sanni forboðni
ávöxtur í aldingarðinum Eden.
Granatepla er getið þrisvar
í Kóraninum. Fyrst í Súru 6 –
Nautgripir, versi 99 þar sem fjallað
eru um gróandann. „Hann sendir
niður vatn af himnum, svo að upp
ljúkast blómknappar á hverri jurt og
lauf sprettur af trjám, og vér ræktum
korn á þéttum kólfum, pálmatré
hlaðin döðluklösum, og garða með
vínberjum, ólífum og granateplum
allskonar. Hyggið að, þegar aldin
þroskast. Þar mega trúaðir að sönnu
sjá teikn.“ Seinna í sömu súru versi
141 segir: „Það er Hann sem gefur
görðum grósku, girtum og ógirtum,
þar sem vaxa döðlupálmar og
korn, ólífur og granatepli alls
konar. Neyttu ávaxtanna þegar
þeir þroskast, og gefðu fátækum
verðugan skerf af þeim í degi
uppskerunnar. en sólundaðu þeim
ekki, því Allah hefur vanþóknun á
þeim eyðslusama.“ Í súru 55 – Hinn
Náðugi, versi 69 segir frá görðum
Paradísar. „Í hvorum þeirra spretta
döðlur og granatepli.“
Samkvæmt búddisma eru þrjú
aldin helg, appelsínur, ferskjur og
granatepli og sagt er að Búdda hafi
vanið kvendjöfulinn Hariti af þeim
slæma ávana að borða börn með því
að gefa henni granatepli í staðinn.
Granatepli í matinn og
aðrar nytjar
Fræ granateplis eru borðuð hrá og
úr aldinhlaupinu er búinn til vinsæll
drykkur í Mið-Austurlöndum. Í Írak
og víðar í nágrenninu er hefðbundin
leið til að pressa safann úr aldininu,
sú sama og var gerð og enn er gert
með vínber, það er að segja hann er
trampaður úr með fótunum. Aldinin
eru fyrst brotin og trampararnir búnir
sérstökum skófatanaði þar sem
skeljar aldinanna eru harðar.
Einnig má setja berin og
aldinhlaupið í safapressu og búa
þannig til granateplasafa. Safinn,
sem getur bæði verið sætur og súr,
þótti í eina tíð góður við holdsveiki.
Fræin og aldinhlaupið er gott
sem eftirréttur beint úr aldininu
og grenadínsýróp sem margir
þekkja var upphaflega búið til úr
granateplasafa, sykur og vatni.
Í Íran er sósa, sem búin er til úr
granateplasafa og valhnetum, höfð
með ljósu fuglakjöti og hrísgrjónum.
Í Mið-Austurlöndum og löndunum
í Himalajafjöllum eru fræin einnig
þurrkuð og mulin sem sætt krydd
sem kallast anardana eða daru og
notað á salat og út á ís.
Vegna mikils tanninnihalds og
rauða litarins hefur safi granataldina
og börkur granatviðar verið notaður
til að lita leður og í Japan er soðið
skordýraeitur úr berkinum. Ljósgulur
viður trjánna er harður og oft notaður
í göngustafi.
Á hverju ári eru haldnar
granateplauppskeruhátíðir í
Afganistan og Aserbaídsjan þar
sem koma saman ræktendur og
kaupendur granatepla og ráða
ráðum sínum. Granarepli eru eitt af
þjóðartáknum Aserbaídsjan.
Í Armeníu var til siðs að afhenda
brúður granatepli sem hún kastaði
í vegg og áttu fræin í brotunum að
tryggja brúðhjónunum barnafjöld
og gæfu.
Granatepli á Íslandi
Heitið granatepli, eða öllu heldur
granataepli, er fyrst nefnt á prenti hér
á landi í Guðbrandsbiblíu sem var
prentuð að Hólum í Hjaltadal 1584
en þar segir um musteri Salómons
í 7. kafla Fyrri Konungsbókar: „Og
hann gjörði á hvorum hnappi tvær
raðir með granataepli rétt um kring
á einu bandi sem hnappurinn var
búinn með. Og hnapparnir voru
líka sem rosa fyrir salnum, fjögra
álna stórir. En granataeplin voru tvö
hundruð í röðum rétt um kring, ofan
og neðan til þess bands sem gekk um
kring miðjan hnappinn, á hvorum
hnappnum á báðum stólpunum.“
Í Nýjum kvöldvökum frá 1908
er að finna þýðingu á sögunni um
Ben Húr eftir Lewis Wallace og þar
segir í textanum þegar menn setjast
til borðs: „Svo tók hann upp vín í
litlum leðurpoka, þurrkað sauðaket,
sýrlenzk granatepli, arabískar
döðlur, ost og brauð.“
Það er ekki fyrr en í byrjun
þessarar aldar að auglýsingar um
granatepli til sölu fara að sjást hér
á landi. Verslunin Hagkaup reið á
vaðið með innflutning á þeim og
fleiri ávöxtum sem voru fáséðir hér
á landi á þeim tíma.
Fjöldi trúarlegra mynda sýna Maríu
guðmóður með Jesú og granatepli. Á
mynd ítalska endurreisnarmálarans
Botticelli frá 1487 táknar rifna aldinið
pínu og upprisu Krists.
Þrátt fyrir innleiðingu tækninnar fer nær öll uppskera granatepla fram með höndum.
Granarepli eru eitt af þjóðartáknum Aserbaídsjan.