Bændablaðið - 04.10.2018, Page 48

Bændablaðið - 04.10.2018, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201848 LESENDABÁS Um úrskurði óbyggðanefndar í Dölum Hinn 18. febr. 2016 birtust Kröfur Fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á svæði 9A Dalasýsla. Í framhaldi af þeim skrifaði ég þrjár greinar í Bændablaðið 2. og 26. maí og 9. júní 2016. Voru þar gerðar ýmsar athugasemdir. Má nefna, að í Kröfum s. 19 stendur: „Að ráði Steinólfs heljarskinns, nam ...“. Hér var ruglað saman Steinólfi lága og Geirmundi heljarskinn. Eitt af þeim svæðum sem krafist var, að yrðu þjóðlendur er Flekkudalur á Fellsströnd, en í Kröfum stendur um hann (s. 107): „... sé svæði utan eignarlanda. Ljóst sé af heimildum um svæðið og landfræðilegum aðstæðum að svæðið hafi aldrei verið undirorpið beinum eignarrétti“. Í Sturlungu (1946 I. 64) stendur, að húskarl á Staðarfelli hafi grætt „fé, þar til er hann keypti land og gerði bú í Flekkudal.“ Húskarlinn fóstraði son bóndans á Felli, Sturlu Þórðarson, síðar bónda í Hvammi, en við hann og afkomendur hans er kennt heilt tímabil í Íslandssögunni, Sturlungaöld. Alls voru kröfur um að 13 svæði í Dölum yrðu gerð að þjóðlendum. Sumar kirknaeignir Flekkudalur er í eigu Staðarfells og þar var bændakirkja, en eftir að Kröfur um þjóðlendur í Dölum komu fram, spurðu margir: „Af hverju var ekki gerð krafa um að Villingadalur í eigu Skarðs, Svínadalur í eigu Sælingsdalstungu og Skeggjadalur í eigu Hvamms yrðu gerðir að þjóðlendum?“ Því er til að svara að land þessara dala, fjalllendis, er ekki skilið frá öðru landi jarðanna þar sem kirkja var. Fyrir nokkrum árum athugaði ég skipulega kirknaeignir á fjalllendi í Dölum og birtist grein um efnið í ritgerðasafni mínu Hulin pláss. Niðurstaðan var um alkirkjur (s. 308), „að 12 af 14 áttu land, fjalldal, misjafnlega langt í burtu“. Einnig áttu kirkjur aðrar fasteignir en fjalldali eins og jarðir og eyjar. Einnig áttu hálfkirkjur eins og Jörfi fjalllendi og hálfkirkjan í Galtardalstungu (Stóru-Tungu) átti daljörðina Litla- Galtardal, þótt jörðin sjálf eigi mikið fjalllendi. Það er nokkuð sérkennilegt að gerðar skuli kröfur um að sumar kirknaeignir verði gerðar að þjóðlendum, fjalllendi yrði þjóðlenda, ef það var fráskilið öðru landi jarðarinnar, annað ekki. Falsbréf og fleira Nú í vor 3. maí 2018 birtist Úrskurður óbyggðanefndar. Mál nr. 1/2016. Flekkudalur og Svínadalur. Hinn 28. júlí 2018 birtust í Morgunblaðinu: „Staðreyndir um óbyggðanefnd.“ Þar eru lokaorðin: „Niðurstöðum þjóðlendumála er ætlað að standa um langa framtíð og þær þurfa því að standast ýtrustu skoðun.“ Um þetta er rétt að fara fáeinum orðum. Í nýnefndum Úrskurði er s. 49-50 birt „afrit af gjafabréfi fyrir Galtardalstungu, ársettu 1559.“ Bréf þetta er prentað í Íslenzku fornbréfasafni, 13. bindi, s. 401-403 og þar stendur framan við „(falsbréf)“. Til enn frekari staðfestingar á falsinu má nefna, að Staðarfell er í bréfinu kallað Meðalfellsstaður, en fyrir því eru ekki aðrar heimildir. Einnig er á s. 120 í Úrskurðinum vitnað í sama falsbréf. Ekki er síður undrunarefni, að í framhaldi af falsbréfinu er samkomulag frá 4. sept. 1921 „um landamerki á milli jarðanna Stóru- Tungu og Orrahóls.“ Ekki verður séð hvernig þau merki ættu að geta komið Flekkudal við. Með sama rétti hefði átt að birta dóm um landamerki milli Orrahóls og Svínaskógs frá 1922 úr jarðaskjölum Dalasýslu. Bóndinn á Orrahóli stóð mjög í landamerkjamálum, en deildi samt ekki um landamerki uppi á Tungumúla. Stóri-Vatnshornsmúli og Jörfaafréttur Í lok greinar í Bændablaðinu 9. júní 2016 sagði ég að ekki yrði mögulegt að á þeim svæðum sem eftir er að taka til meðferðar, einkum á Vestfjörðum og Austfjörðum, yrði hægt að krefjast að stór svæði yrðu gerð að þjóðlendum. Því var niðurstaðan spurningin: „Myndi slíkt borga sig og væri ekki affarasælast að segja stopp?“ Það má segja að eftir því hafi að nokkru verið farið í Úrskurðum óbyggðanefndar því að aðeins voru samþykkt tvö svæði af þrettán. Ekki er ástæða til að hafa mörg orð um lítið „landsvæði vestan Skothryggs“, sem úrskurðað er þjóðlenda í fyrrnefndum Úrskurði óbyggðanefndar s. 199. Aftur á móti verður rætt um Úrskurð óbyggðanefndar. Mál nr. 2/2016 Haukadalshreppur og Miðdalahreppur austan Miðár. Þar eru Stóri-Vatnshornsmúli og Jörfaafréttur úrskurðaðar þjóðlendur. Um Stóra- Vatnshornsmúla segir (s. 315): „telur óbyggðanefnd að ekki hafi verið í ljós leitt að á Stóra-Vatnshornsmúla hafi stofnast til eignarlands með námi“. Um Jörfaafrétt segir (s. 349): „Eins og áður er getið verður ekki ráðið af fyrirliggjandi landnámslýs ingum hvor t ágreiningssvæðið hafi verið numið, en staðhættir og fjarlægðir mæla því þó ekki í mót.“ Hér leggur óbyggðanefnd mikið upp úr Landnámu um upphaf byggðar. Staðfræði hennar hefur mest og nákvæmast rannsakað Haraldur Matthíasson, ferðaðist hann um allt land og birtust niðurstöður hans í bókinni Landið og Landnáma 1982, þ. e. allmörgum árum áður en orðið „þjóðlenda“ var búið til. Haraldur sagði s. 52: „Allvíða á landinu hagar þannig til, að ekki er mjög mikil óbyggð að baki byggðar, svo að auðsætt virðist, að landnám ná þar saman. Þannig er t. d. um Snæfellsnes, Dali, Vestfjörðu, Skaga, hálendið milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu, Tjörnes, Melrakkasléttu, Austfjörðu og víðar. Þarna hljóta landnámin að hafa náð saman uppi á hálendinu, land verið numið milli fjalls og fjöru, einnig þar sem háfjöll eða jöklar eru skammt að baki byggðar, t. d. í Austur-Skaftafellssýslu og undir Eyjafjöllum.“ Niðurstaðan af þessum viðamiklu rannsóknum Haralds Matthíassonar er, að ekki neitt landssvæði í Dölum og miklu víðar hefur verið ónumið eftir landnám. Reyndar sýnist það augljóslega stangast á við heilbrigða skynsemi, að Stóri-Vatnshornsmúli og Jörfaafréttur hafi getað verið undir annars konar eignarrétti en önnur landssvæði þar í kring. Þorleifsstaðir og byggð til fjalla Í Jarðabók Árna og Páls (VI. s. 54) segir: „Í afrjettinni þar hjá, í þeim parti, sem Jörfa hálfkirkju tilheyrir, er sagt verið skuli hafa í gamaldaga bær, kallaður Þorleifsstader.“ Í Úrskurði stendur um þetta (s. 348) „... útilokað ... að slá nokkru föstu um hvort þar hafi verið búseta.“ Síðar segir (s. 349) „... útilokað að fallast á kröfu um beinan eignarrétt á ágreiningssvæðinu á grundnvelli munnmæla sem ekki voru skráð fyrr en löngu eftir að hinni ætluðu búsetu á að hafa verið lokið.“ Því er hér til að svara að á mörgum stöðum í Dölum eru öruggar heimildir um að byggð hefur verið á svæðum þar sem líkt hagar til. Má þar nefna Flekkudal, Vatns-Þverdal, Villingadal á Skarðsströnd, land Hvols á Svínadal. Liggur beint við að ætla að sama hafi átt við um Þorleifsstaði. Í raun er ákaflega sérkennilegt, frá leikmannssjónarmiði í lögum, að ríkið skuli njóta vafans en ekki sá aðili, sem alltaf hefur talið sig vera eiganda svæðisins. Byggð var til fjalla og langt inn til landsins snemma. Sigurður Þórarinsson sagði 1976 í greininni „Gjóskulög og gamlar rústir“ í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags (s. 35): „Svo virðist sem byggð hafi allvíða snemma, eða á tíundu öld og sumstaðar jafnvel þegar á landnámsöld náð að teygja sig lengra inn í landið en hún hefur nokkru sinni síðar gert“. Í greininni „The Reykholt Shieling Project: Some Preliminary Results“ í bókinni Viking Settlements and Viking Society 2011 (s. 172) segir Guðrún Sveinbjarnardóttir, að samkvæmt fornleifarannsóknum í Geitlandi hafi hafist þar byggð á níundu öld, en í Reykholti ekki fyrr en um 1000. Allar aðrar rannsóknir benda í sömu átt. Afréttareign Í úrskurðarorðum (s. 384) stendur að bæði svæðin, Stóri-Vatnshornsmúli Umrætt svæði í Flekkudal í Dölum sem markað er bláum línum og litla svæðið vestan Skothryggjar sem markað er rauðum útlínum. Einar G. Pétursson. Hundadalur.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.