Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 51 því hvernig eigi að blanda saman fóðurefnunum sem heilfóðrið er gert úr. Þannig fá bændurnir ekki einungis uppskrift sem inniheldur magn mismunandi hráefna heldur einnig í hvaða röð eigi að blanda þeim saman. Rakt fóður Þegar bændur búa til samanþjappað heilfóður er vothey grunnur blöndunnar og þarf að blanda það vel þannig að öll stráin séu í raun laus frá hvert öðru. Óháð því hvaða öðrum fóðurefnum er blandað í heilfóðrið, þá þarf að blanda þeim það vel í fóðrið að þau „hverfi“ og sé einhvers konar köggluðu fóðri blandað út í þurfa allir kögglar að hafa leyst upp. Þá er afar mikilvægt að blandan sé vel rök og oft þarf því að blanda töluvert miklu vatni út í hana. Þannig eigi að miða við 36-40% þurrefni eftir því hvaða tegund af blandara er notaður. Það þarf að skammta vatnið af mikilli nákvæmni en sé sett of lítið vatn næst ekki tilætlaður árangur og sé sett of mikil vatn fellur átlyst kúnna! Vatnið sett fyrst Sé horft til blöndunaraðferðarinnar þá á, þegar samanþjappað heilfóður er búið til, að setja fyrst vatn blöndunnar í blandarann og þá það kögglaða fóður sem notað er í blönduna. Þetta er svo látið liggja í blandaranum í eina klukkustund að lágmarki og oftast er þetta látið standa yfir nótt. Þegar kögglarnir hafa verið leystir upp að fullu er steinefnum og vítamínum blandað út í og síðan votheyinu og öðru trénisfóðri og blandað í 15–20 mínútur. Erlendis, þar sem algengt er að nota maísvothey einnig, er endað á því að setja það út í blönduna. Með því að gera þetta í þessari röð blandast næringarefnin saman og setjast á strá votheysins og fá kýrnar þannig jafnari gæði með hverri tuggu. Blanda lengi Danir leggja til að bændur hræri vel upp í fóðrinu með blöndurum sínum og að engin hætta felist í að blanda of lengi sé þessi aðferð notuð þar sem stubblengdin skipti ekki höfuðmáli. Mörg vandamál fylgi því hins vegar ef blandað er í of stuttan tíma og einnig hafi komið í ljós að sumir blandarar ráða ekki almennilega við hið samanþjappaða heil- fóður þar sem það er svo fíngert. Dönsku ráðunautarnir hafa því þróað einfaldar lausnir sem henta fyrir alla þekkta blandara á markaðinum og þannig geta því allir tekið upp þessa aðferð. Magnaður árangur Þeir bændur sem hafa skipt um aðferð við að blanda sitt heilfóður við það að fara úr hefðbundinni aðferð við heilfóðurgerð yfir í þessa dönsku aðferð hafa náð mögnuðum árangri. Þannig sýna tilraunaniðurstöður að nyt kúa eykst að jafnaði um 1,5 kg á dag af orkuleiðréttri mjólk. Þá sýna langtímarannsóknir að nytaukningin heldur áfram amk. í tvö ár, þ.e. þessi bú bæta betur við sig en þau bú sem voru í samanburðarhópi og notuðu ekki samanþjappað heilfóður. Skýringin felst bæði í jafnara fóðri kúnna og þar með betra jafnvægi á vambarstarfseminni en einnig að kýrnar éta mun jafnar enda læra þær fljótt að það er ekki eftir neinu að slæðast með því að leita í fóðrinu – það er allt saman nákvæmlega eins! Bændurnir tala einnig um að kýrnar virki saddari og nefna sem dæmi að þegar komið er með nýtt fóður þá ryðjist þær ekki að fóðurganginum eins og áður, heldur taki því með ró. Fóðureftirlit mikilvægt Lykillinn að góðum árangri við heilfóðurgerð er að viðhafa gott og reglubundið fóður-eftirlit. Á stærri búum gera bændur eða starfsmenn þeirra þetta sjálfir, en líklega er algengast að fóðurráðgjafar sjái um þennan þátt. Heilfóðrið er þá vegið og metið reglulega á búinu sjálfu, oftast með svokallaðri Penn State Shaker Box aðferð. Með þeirri aðferð er heilfóðrinu skipt niður í grófleikaflokka til þess að meta blöndunargæði þess. Síðan er líklega algengast að fóðrið sé metið með einföldu NIR-tæki (Near Infrared Reflectance) en tækið metur gæði fóðursins og bóndinn getur því fengið upplýsingar á staðnum um heilfóðrið sem búið var til og hvort það sé í samræmi við væntingar. Það er erfitt að segja nákvæmlega til um það hve stórt kúabúið þarf að vera til þess að það borgi sig að skipta yfir í heilfóður með öllum þeim stofnkostnaði sem slíkri fóðurblöndun fylgir. Það er þó full ástæða fyrir kúabændur að skoða þennan valkost vel með rekstrarráðgjafa búsins og reikna út fyrir viðkomandi kúabú hvort fjárfesting í heilfóðurbúnaði geti skilað tilætluðum árangri. Við þá útreikninga ætti einnig að horfa til hinnar dönsku heilfóðuraðferðar enda gæti hún, að því gefnu að aðferðin hafi sambærileg áhrif á íslenskar kýr og á erlendar frænkur þeirra, gjörbreytt niðurstöðum hagkvæmnisútreikninganna. Hyrjarhöfði 8 110 Reykjavík sími: 577-1090 Við Önnumst 150 db FLAUTA VERSLUN, VERKSTÆÐI, LEIGA & NÁMSKEIÐ KRÓKHÁLSI 6 - S: 566-6666 - DRONEFLY.IS FLAUTAN ER KOMIN! ilbb . s obcF ea ok
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.