Bændablaðið - 04.10.2018, Page 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 57
Dúnmjúk húfa fyrir veturinn
Falleg húfa prjónuð með
garðaprjóni og gatamynstri úr
Drops Sky. Uppskrift af kraganum
finnur þú á Garnstudio.com.
Stærðir:
S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 cm
Garn:
Drops Sky (fæst í Handverkskúnst)
50-50 g litur 07, ljóssægrænn
Prjónfesta: 21 lykkja á breidd með garðaprjóni =
10 cm.
Prjónar: Hringprjónn 40 cm, nr 3,5 og 4.
Sokkaprjónar nr 4.
G A R ÐA P R J Ó N
(prjónað í hring):
*1 umferð slétt
og 1 umferð
b r u g ð i n * ,
endurtakið frá
*-*.
Úrtaka:
Fækkið lykkjum á
eftir prjónamerki
þannig: Takið 1
lykkju óprjónaða
eins og prjóna eigi
hana slétt, prjónið
1 lykkju slétt,
steypið óprjónuðu
lykkjunni yfir
lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Húfa:
Fitjið upp 102-108 lykkjur á hringprjón 3,5 með
Sky. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist
3 cm, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1
(= 6 lykkjur) alls 17-18 sinnum hringinn. Í 11.
umferð færist umferðin til um 1 lykkju þannig
að gatamynstrið gangi jafnt upp. Þegar A.1 hefur
verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið
til loka með garðaprjóni. Prjónið þar til stykkið
mælist 20-21 cm (nú eru eftir ca 5 cm). Í næstu
umferð með sléttum lykkjum er fækkað um 3-0
lykkjur jafnt yfir = 99-108 lykkjur. Setjið nú 9
prjónamerki í stykkið með 11-12 lykkju millibili.
Í næstu umferð með sléttum lykkjum er fækkað
um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki (= alls 9
lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri
hverri umferð alls 10-11 sinnum = 9 lykkjur.
Klippið frá, dragið bandið í gegnum þær lykkjur
sem eftir eru, herðið að og festið enda. Húfan
mælist ca 25-26 cm ofan frá og niður.
Prjónakveðja,
Mægðurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
8 9 3 4 2
5 2 1
1 3 7
9 3 7 4 5
1 4 2 3
4 6 3 9 8
3 7 9
2 6 4
2 8 9 1 5
Þyngst
6 1 2 4
8
7 6 3 1
9 3 7 8 2 4
6 5 8
4 2 3 9 1 7
3 9 5 2
3
9 8 1 5
4 6 1
3 8 7
9 5
6 4 7
5 9
2 8 9
4 5
8 7 6
1 3 4
8 5 6
7
3 2 4
6 8
4 5 7 2 3
1 9
2 7 4
9
9 6 1
Folaldakjöt í uppáhaldi
Soffía Náttsól býr í Forsæti
2 í Flóahreppi. Hún er
fædd og uppalin í sveit.
Hún hefur átt tvo hunda
og fjölskyldan á nokkra
hesta.
Hún hefur kynnst
ýmsum sveitastörfum í
gegnum árin þar sem hún
hefur fylgst með ömmu
sinni og afa í föðurætt
stunda hestabúskap og
ömmu og afa í móðurætt
stunda kartöflurækt.
Nafn: Soffía Náttsól.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Forsæti 2.
Skóli: Flóaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Litlir hundar.
Uppáhaldsmatur: Folaldakjöt.
Uppáhaldshljómsveit: Ég á enga
uppáhaldshljómsveit en segi bara
Queen af því að það er
uppáhaldshljómsveitin
hennar mömmu.
Uppáhaldskvikmynd:
Hungur leikarnir, held ég.
Fyrsta minning þín?
Fara með fjölskyldunni á
Arnarstapa og Snæfellsnes.
Æfir þú íþróttir eða
spilarðu á hljóðfæri? Ég
æfi fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór? Ég
er ekki alveg búin að ákveða það en
mig langar að vera í fótbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Það var mjög sérstakt í
sumar þegar ég óð í ísköldu vatni upp
að mjöðmum í svartamyrkri í gegnum
helli sem var inni í fjalli.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt
í sumar? Fór á Símamótið
og TM mótið og ferðaðist um
landið með fjölskyldunni.
Næst » Soffía Náttsól skorar á Benjamín
Magnús að svara næst, sem býr í Hallanda í
Flóahreppi.
HANNYRÐAHORNIÐ
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Útsala
Bonito ehf. • Praxis • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími 568 2870
www.praxis.is • • Síminn alltaf opinn
50% afsláttur af öllum úlpum
Opið laugardag kl. 13-15
Pantið vörulista hjá okkur praxis@praxis.is