Bændablaðið - 09.05.2018, Side 4

Bændablaðið - 09.05.2018, Side 4
4 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 Garðyrkjubýlið Brúnalaug í Eyjafirði: Búið að slökkva á helmingi lýsingarinnar Ábúendurnir á Brúnalaug í Eyjafirði hófu lýsingu á papriku í gróðurhúsum áríð 2008. Vegna hækkunar á kostnaði við lýsinguna hafa þau slökkt á helmingi lýsingarinnar í mesta skammdeginu og þegar afhendingartími rafmagnsins í dýrastur. Anna Sigríður Pétursdóttir, garðyrkjubóndi að Brúnalaug í Eyjafirði, segir að í tilfelli Brúnalaugar sé búið að slökkva á helmingi ljósaraðanna yfir dýrasta lýsingartímann þar sem það svari ekki lengur kostnaði að auka uppskeruna með lýsingu. Margföld hækkun rafmagns „Við slökktum á annarri hverri ljósaröð þegar við urðum þess áskynja að rafmagnsreikningurinn hafði hækkað í janúar á þessu ári. Árið 2008 skall kreppan á og 2009 fengum við undanþágu hjá Seðlabankanum til að kaupa ljós vegna þess að við framleiðum mat- væli,“ segir Anna. Eftir að ljósin voru komin upp jókst uppskeran í húsunum um að minnsta kosti 10 tonn miðað við það sem hún var fyrir lýsingu á sama fermetra fjölda. Það var því greinilegt að hún hafði mikil áhrif en kostnaðurinn við framleiðsluna jókst einnig mjög mikið og hann hefur aukist jafnt og þétt síðan þá. Kostnaðinum við rafmagnið var skipt í tvennt. Annars vegar orkuna sjálfa og hins vegar flutningurinn á henni keyrði alveg um þverbak hvað hækkun varðar. Kostnaður við flutninginn hefur hækkað fjórfalt síðan árið 2016. Staðan í dag er einfaldlega sú að það hreinlega borgar sig ekki að lýsa yfir dýrasta afhendingartíma rafmagnsins,“ segir Anna. „Sá tími er frá október og út apríl. Við notum svokallaðan afltaxta.“ Afltoppur eða tímaháður taxti Anna telur að fleiri garðyrkjubændur séu að íhuga að draga úr lýsingu yfir mesta skammdegið og dýrasta afhendingartímann vegna þess að það svari einfaldlega ekki kostnaði að rækta grænmeti á þeim kjörum sem bjóðast. Garðyrkjubændum býðst að kaupa rafmagn með tvenns konar hætti. Annars vegar á svokölluðum afltoppi en hins vegar í tímaháðum taxta. Samkvæmt tímaháðum taxta er afhending rafmagns dýrari á þeim tímum sólarhringsins þegar almenn notkun er mest. Kaup á afltoppum þýðir að rafmagn er keypt þegar orkustreymi er mest á tímaeiningu Mikil hækkun á dreifingu Samkvæmt rafmagnsreikningum sem Bændablaðið hefur undir höndum kostaði dreifing á orku til garðyrkjubænda í dreifbýli 4,70 krónur fyrir hverja kílówattstund árið 2017 en hefur hækkað í 5,83 krónur 2018. Innlend orka of dýr Að sögn Önnu er skammarlegt til þess að hugsa að staðan sé sú að íslenskir garðyrkjubændur geti ekki boðið upp á íslenskt grænmeti allt árið vegna þess að innlend og umhverfisvæn orka sé of hátt verðlögð og þess í stað sé flutt inn grænmeti í stórum stíl með tilheyrandi kostnaði og mengun. /VH FRÉTTIR Endurheimta votlendi í Fjarðabyggð Á vegum Landgræðslu ríkisins er að hefjast endurheimt á 60 hektara votlendi í Fjarðabyggð. Verkefnið felur einnig í sér vöktun á breytingum sem verða á svæðinu við þessa aðgerð. Þá er ætlunin að útbúa tilheyrandi fræðsluefni fyrir grunnskólanema og almenning. Verkefnið hlaut 150 þúsund dollara styrk frá Samfélagssjóði Alcoa (Alcoa Foundation) og verður unnið í nánu samstarfi við sveitarfélagið Fjarðabyggð. Það voru þeir Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Fjarðaáls, Árni Bragason landgræðslustjóri og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, sem hrintu verkefninu af stað með táknrænum hætti þegar þeir hófu að moka ofan í fyrsta skurðinn af mörgum. Athöfn fór fram 2. maí á Hólmum í Reyðarfirði, en þar verða endurheimtir um 60 hekt- ara eins og fyrr segir. Votlendi varðveitir mikið af kolefnisforða jarðar en ef votlendi er þurrkað upp hefst útblástur gróðurhúsa- lofttegunda. Mokað ofan í fyrsta skurðinn. Talið frá vinstri: Magnús Þór Ásmunds- son, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, Árni Bragason landgræðslustjóri og Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Mynd / ÁÞ Landgræðsluverðlaunin 2018: Viðurkenningar veittar fyrir landgræðslu og landbætur Landgræðsluverðlaunin 2018 voru afhent á ársfundi Land- græðslunnar fyrir skömmu. Verðlaunin eru veitt árlega einstaklingum og félagasamtökum sem hafa unnið að landgræðslu og landbótum. Með veitingu landgræðsluverðlaunanna vill Landgræðslan vekja athygli á mikilvægu starfi margra áhugamanna að landgræðslu- málum. Verðlaunahafar að þessu sinni voru Hrunamannahreppur, Sigrún Snorradóttir og Guðmundur Eiríksson, Starmýri I í Álftafirði og Ólafur Arnalds, doktor í jarðvegsfræðum og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Hrunamannahreppur Á heimasíðu Landgræðslunnar segir að Landgræðslan og Hruna- mannahreppur hafi unnið að þróunarverkefni um hvernig nýta mætti seyru til landgræðslu frá árinu 2012. Við gróðurmælingar þremur árum eftir að verkefnið hófst kom í ljós að gróðurþekjan hafði aukist úr 15 í 65% sem verður að teljast góður árangur eftir einskiptis landgræðsluaðgerð. Sveitarfélagið hóf þá samstarf við fjögur önnur sveitarfélög, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Flóahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp, um nýtingu seyru til uppgræðslu og hafa þau byggt upp sameiginlega aðstöðu fyrir verkefnið. Aðferðum hefur verið breytt, þannig að seyran er ekki lengur felld ofan í jörðina, heldur er kalki blandað í hana og henni dreift á yfirborð landsins. Kölkunin drepur allar smitandi örverur og því er heimilt að dreifa henni á yfirborðið. Með þessu verkefni hefur verið rudd braut til að nýta lífrænan úrgang sem fellur til í öllum sveitarfélögum til uppgræðslu. Þannig hefur efni sem áður var meðhöndlað sem úrgangur sem þyrfti að farga, verið breytt í verðmæta afurð. Sigrún Snorradóttir og Guðmundur Eiríksson Árið 1995 markar ákveðin þáttaskil í uppgræðslu lands á Starmýri en þá tóku bændur á Starmýrarbæjum sig saman og hófu í félagi uppgræðslu mela með kerfisbundnum hætti undir merkjum verkefnisins Bændur græða landið. Það uppgræðslustarf hefur haldist nær óslitið síðan þó að hin síðari ár hafi aðstæður breyst á nágrannabæjum og verkefnin einskorðast við elju og áhuga þeirra hjóna á Starmýri I. Starfið ber allt merki mikillar natni, umhyggju fyrir landinu og metnaði í uppgræðslustarfinu. Ólafur Arnalds Ólafur Arnalds, doktor í jarðvegsfræðum og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, hefur fengist við rannsóknir á íslenskum jarðvegi um áratuga skeið, þar á meðal rannsóknir á eðli jarðvegsrofs og sandfoks, sem er óvíða meira en hér og hefur mótandi áhrif á vistkerfi landsins. Ólafur hefur einnig stundað rannsóknir á landgræðslu, kolefnisbindingu í jarðvegi, vistheimt og ástandi lands. Ólafur hefur verið mikilvirkur í ritstörfum og eftir hann liggja innlend og alþjóðleg fræðirit, auk fjölda ritrýndra greina. Hann hefur einnig verið ötull við að miðla fróðleik um íslenskan jarðveg og ástand vistkerfa til almennings. Á árunum 1991–1997 stýrði Ólafur kortlagningu jarðvegs- rofs á Íslandi og gerð fræðslu- og kennsluefnis um sama efni. Fyrir það verkefni hlaut hann Umhverfisverðlaun Norður landa- ráðs árið 1998. /VH Frá afhendingu landgræðsluverðlaunanna 2018. Talið frá vinstri: dr. Ólafur Arnalds, Guðmundur Ingi Guðbrands- Mynd / Áskell Þórisson Á öðrum innlausnardegi ársins 2018 fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. maí var greiðslumark 23 búa innleyst og 110 handhafar lögðu inn kauptilboð. Á innlausnardeginum 1. maí innleysti Matvælastofnun, fyrir hönd ríkisins, greiðslumark 23 framleiðenda samtals 1.044.193 lítra að upphæð 127.391.546 krónur. Matvælastofnun úthlutaði 262.846 lítrum úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 262.846 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og loks 525.692 lítrum úr almennum potti. Tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 110 framleiðendum og var alls óskað eftir 33.302.367 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 53 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 16 framleiðendur. Innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 122 krónur á lítra á árinu 2018 og annast Matvælastofnun innlausn greiðslumarks og innlausn greiðslumarks mjólkur fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert. /VH Innlausn á greiðslu- marki mjólkur

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.