Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 19
19Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 World Economic Forum um „fjórðu iðnbyltinguna“ er líklegast að eftirfarandi starfsgreinar verði teknar yfir af vélmennum innan tveggja ára: Símasölufólk, starfsfólk sem sinnir fjármálum, ljósmyndafyrirsætur ásamt leigu- og strætóbílstjórum. „Það sem mér finnst mest spennandi við tæknina og gervigreind eru framtíðarhorfurnar. Það eru margir sem eru ekki svo ákafir í að vinna ef þeir þurfa þess ekki og þannig verða borgaralaun kannski fín ný framtíð. Sú staðreynd að gervigreind geti hjálpað til við að leysa áskoranir í heilbrigðisgeiranum og gera heiminn aðeins grænni gerir mig bæði bjartsýnan og ákafan yfir þróuninni,“ segir Lars og bætir við: „Þegar kemur að landbúnaði þá verður þróunin ekkert öðruvísi þar en í öðrum greinum og sjáum við nú þegar mikla þróun í notkun vélmenna til notkunar í landbúnaði og nýja tækni. Bóndinn mun ekki hverfa en hann mun geta unnið mun skilvirkara með aðstoð vélmenna og gervigreindar. Mikið af erfiðu, skítugu og hættulegu vinnunni verður hægt að koma yfir á vélmennin sem er góð þróun, bæði fyrir bóndann og fyrir þá sem kaupa landbúnaðarvörur.“ Byltingin er hafin „Við höfum ákveðinn ramma til að skilja þróun á tækninni í dag og öll tækni sem er gerð stafræn fylgir þessari þróun sem flokkast undir hin 6 D. Það byrjar með Digitized. Tækni sem er gerð stafræn skapar mikið gagnamagn sem hægt er að deila og greina. Næsta stig er Deceptive þar sem þróun á tækninni gerist á ógnarhraða en byrjar mjög hægt og er þess vegna lítið sýnileg í byrjun. Sem dæmi þá er þrívíddarprentun meira en 30 ára gömul tækni. Hún byrjaði hægt og rólega en stefnir nú í að bylta framleiðslu á vörum um allan heim. Þá verða fyrirtæki Disrupted þegar þau hugsa línulega á meðan tækniþróunin er á veldishraða. Hinn mikla mun er hægt að sýna með því að taka 30 skref. Ef þú tekur 30 línuleg skref, 1-2-3-4-5…, kemst þú litla 30 metra. Ef þú tekur hins vegar 30 skref á veldishraða sem tvöfaldast við hvert skref, 1-2-4- 8-16…, kemst þú 1.073.741.824 metra. Það jafnast á við 26 sinnum í kringum Ekvador! Flestir skilja ekki þennan mun og það er ekki svo skrýtið. Ég lít á það sem verkefni mitt að hjálpa fólki og fyrirtækjum að skilja þetta,“ útskýrir Lars og segir jafnframt: „Næsta stig er Dematerialize sem þýðir að við erum á leiðinni inn í raunveruleika þar sem við eigum ekki neitt og allt snýst um þjónustu. Tækni sem verður stafræn verður að þjónustu. Hugsaðu um öll öpp sem þú hefur á snjallsímanum þínum, áður fyrr voru þetta líkamlegar vörur. Hið sama mun gerast til dæmis með bíla. Við notum bílinn í kringum 4% af tíma dagsins, þar fyrir utan er hann í kyrrstöðu og verður minna virði með hverjum degi sem líður. Það er brjálæði! Bættu við það að sitja fastur í umferðinni, árekstrum og óteljandi bílastæðum og þá skilur maður að eitthvað þarf að gera. Bílar verða sjálfkeyrandi og við kaupum okkur aðgang að þeim eins og þjónustu. Þegar líkamlegar vörur verða að þjónustu þá verða þær einnig Demonetized, það er, að kostnaður verður nánast enginn og hægt er að bjóða vöruna allt að því ókeypis. Hvað kostar til dæmis fyrir Spotify að taka inn nýjan notanda í tónlistarþjónustu sína? Næstum ekkert. Við enda rammans finnum við Democratized sem er jákvætt orð. Þegar vörur verða að þjónustu og nánast ókeypis þá verða þær aðgengilegar fyrir alla jarðarbúa fyrir sama verð og sömu gæði. Það hefur aldrei gerst áður. Þetta mun eiga við um menntun, heilsu, upplýsingar og svo framvegis. Þeir þrír milljarðar manna sem hafa ekki nettengingu í dag munu á næstu 4–5 árum tengjast í gegnum risaverkefni sem Google, Amazon og Facebook eru með í gangi á þessu sviði. Þá getur maður til dæmis greint heilbrigði sitt í gegnum gervigreindarlausnir í skýinu með sömu gæðum og fyrir sama lága verð hvort sem maður situr í Úganda eða á Manhattan. Þetta er bylting fyrir alla jarðarbúa, bylting sem er nú þegar hafin.“„Stjórnmálamenn vilja lítið ræða þessa þróun, annaðhvort af því að þeir hafa ekki áttað sig á henni eða af því að það kemur sér ekki vel fyrir þá í næstu kosningum. Þetta er stórt lýðræðislegt vandamál,“ segir Lars um innrás vélmenna á atvinnumarkaði um allan heim. LANDSINS MESTA ÚRVAL AF S ÍUM! 250AH Neyslugeymir Hentar vel fyrir handfærarúllur og fleira. Á AÐEINS KR. 44.950,- 110AH Neyslugeymir Hentar vel í ferðavagna og fleira. Á AÐEINS KR. 19.960,- SÍUR Í ALLAR GERÐIR BÍLA & VINNUVÉLA Á FRÁBÆRU VERÐI ! SUMARTILBOÐ Á NEYSLUGEYMUM www.n1.is facebook.com/enneinn Alltaf til staðar Tork pappír 510MTR W1 Vnr. 6487 130040 Tork Wiping Plus W1, tvöföld stór rúlla. 510 metrar á rúllu, 1500 blöð. 2 laga pappír. Dunlop Purofort stígvél Vnr. 9655 D460933 Dunlop Purofort professional stígvél eru létt á fæti og með höggdeyfi í sóla. Litur: Grænn. Stærðir: 37-48. Fristads samfestingur Vnr. 9613 P154880 Vasar á lærum, mjög endingargóðar buxur. Litur: Svartur, kóngablár, navyblár og grár. Stærðir: XS-2XL. Mobilfluid 426, 20 l Vnr. 706 472120 Drif- og vökvakerfisolía fyrir traktora og vinnuvélar. Fæst í 20 og 208 l umbúðum. Mobil delvac MX 15W-40, 20 l Vnr. 706 4382820 Mínerölsk olía fyrir flutningabíla og vinnuvélar. Fæst í 4, 20 og 208 lítra umbúðum. Portwest samfestingur fyrir börn Vnr. 9657 C890 Endingargóður galli fyrir kröftuga krakka. Litur: Dökkblár. Stærðir: 4/5 - 6/7 - 8/9 - 10/11 - 12/13 - 14/15. Búðu þig vel undir vorverkin Verslanir N1 um land allt Akureyri s. 440 1420 • Höfn s. 478 1940 • Ísafjörður s. 456 3574 Klettagarðar s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 • Patreksfjörður s. 456 1245 Reyðarfjörður s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127 E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 8 9 4 RAG - import export ∙ Helluhraun 4 220-Hafnarfjörður Tel + 354 565-2727 ∙ Mobile + 354 892 7502 ∙ Email: rafn@rag.is We are Fliegl. Meira rými, meiri afköst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.