Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
Döðlur hafa í aldaraðir verið
undirstöðufæða íbúa í löndunum
við botn Miðjarðarhafs og
tengjast eflaust í huga margra
ævintýrunum í Þúsund og einni
nótt. Döðlur eru orkuríkar og um
leið einstaklega losandi.
Árið 1962 var heimsframleiðsla á
döðlum áætluð tæp 1,8 milljón tonn,
2005 er hún rúm 6,9 milljón tonn og
árið 2016 er heimsframleiðslan talin
vera rúm 8,4 milljón tonn.
Samkvæmt tölum frá Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna, FAO, eru Egyptar
stórtækastir þegar kemur að ræktun
daðla og framleiddu rétt tæplega
1,7 milljón tonn árið 2016. Það ár
framleiddi Íran rúm milljón tonn og
Alsír svipað magn en aðeins minna.
Í Sádi-Arabíu var framleiðslan rúm
960 þúsund, tonn, í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum 670
þúsund tonn, 615 þúsund tonn
í Írak og tæp 500 þúsund tonn í
Pakistan. Framleiðslan í Súdan var
440 þúsund tonn, 340 þúsund tonn
í Óman og 241 þúsund tonn í Súdan
árið 2016.
Egyptaland er stærsti útflytjandi
daðla í heiminum og flytja þeir
mest út til Marokkó, Indónesíu og
Malasíu. Íran flytur megnið af sinni
framleiðslu til Indlands, Malasíu og
Rússlands en Sádi-Arabía til Jórdan,
Jemen og Kúveit.
Samkvæmt vef Hagstofu Íslands
voru árið 2016 flutt inn tæp 59 tonn
af ferskum döðlum til landsins og
þar af mest frá Túnis, rúm 19 tonn,
og tæp 19 tonn frá Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Innflutningur á
þurrkuðum döðlum var sama ár 191
tonn. Mest frá Íran, 146 tonn. Alls
205 tonn af döðlum fyrir utan það
sem er flutt inn í tilbúnum réttum
eða annars konar varningi.
Ættkvíslinni Phoenix
Milli 12 og 19 tegundir pálma
tilheyra ættkvíslinni Phoenix.
Náttúruleg heimkynni þeirra eru
á Kanaríeyjum í vestri, meðfram
norðurströnd Afríku á eyjum í
Miðjarðarhafinu, í Tyrklandi og
við botn Miðjarðarhafsins um Litlu
Asíu til Kíma og Malasíu. Kjörlendi
þeirra er fjölbreytt og nær yfir
eyðimerkur, fenjasvæði og niður
að sjó. Eyðimerkurpálmar vaxa
aðallega þar sem grunnvatnsstaða
er há við vinjar eða við uppsprettur
í eyðimörkinni.
Tegundir innan ættkvíslarinnar
eru frá því að vera dvergvaxnar í
nokkurra metra há tré með allt að
sex metra löng blöð.
Margar tegundir Phoenix eru
þekktar sem skrautplöntur, bæði
innan dyra og utan. Allir pálmar eru
einkímblöðungar.
Tegundin P. dactylifera kallast
döðlupálmi og gefur af sér döðlur.
Döðlupálmar
Döðlupálmar eru sígrænir og ræktað-
ir vegna ávaxtanna sem kallast
döðlur. Plantan er með víðfeðma og
stundum djúpvaxandi trefjarót. Ein-
eða margstofna og getur náð allt að
40 metrum að hæð. Stofninn er jafn-
breiður, um metri í þvermál, frá rót
og upp í krónu og hrjúfur viðkomu
Blöðin margskipt, fjórir til átta
metrar að lengd á löngum stilk með
löngum og mislægum þyrnum. Hvert
blað skiptist í um 150 smáblöð, 15 til
100 sentímetra að lengd og tveir til
sex sentímetra breitt. Líftími blaða er
þrjú til sjö ár. Í blöðunum eru langar
trefjar.
Pálmar eru einkynja og ber því
hver planta annaðhvort karl- eða
kvenkynsblóm. Einstaka plöntur
geta verið tvíkynja en það er
sjaldgæft. Blómin eru lítil og mynda
nokkur þúsund saman stóran, hvítan
eða gulan vönd. Vindfrjóvgandi.
Eitt aldin myndast af hverri
frjóvgaðri frævu og þroskast þau
saman í hnapp. Aldinið er ber með
einu fræi.
Í ræktun eru karlplönturnar
einungis notaðar til frjóvgunar og
í sumum tilfellum eru karlplöntur
aðfluttar þegar kvenplönturnar
blómstra. Frjóvgun fer þá fram með
hjálp vindvéla eða þá að frjóið er
penslað á frævurnar með höndum
þjálfaðra frjómeistara.
Stærð, litur og bragð þroskaðra
aldina er misjafnt eftir kvæmum,
afbrigðum og staðbrigðum döð-
lupálmanna sem hafa þróast ólíkt
í mörg þúsund ár. Lengd aldinanna
þrír til sjö sentímetra að lengd og
Döðlupálmar eru sígrænir og ræktaðir vegna ávaxtanna sem kallast döðlur.
Þeir geta ná allt að 40 metra hæð.
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Þroskaðar döðlur á döðlupálma.
Áætluð heimsframleiðsla á döðlum árið 2016 er talin vera rúmar 8,4 milljónir
tonna.
Ferskar döðlur á markaði.