Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
Í síðasta mánuði frumsýndi
Hekla nýja gerð af Mitsubishi
sem nefnist Eclipse Cross.
Bíllinn er fáanlegur í fimm
mismunandi undirtegundum
og í 7 mismunandi litum, ýmist
fjórhjóladrifinn eða bara með
drif á framhjólunum.
Ég prófaði næstdýrasta bílinn,
sem nefnist Mitsubishi Eclipse
Instyle og er framhjóladrifinn,
sjálfskiptur bensínbíll með 163
hestafla vél.
Afar hljóðlátur og þægilegur
til ferðalaga á bundnu slitlagi
Það fyrsta sem ég tók eftir var
hversu lítið heyrðist í vélinni og
umhverfishljóðum inn í bílinn
þegar ég var í umferðinni á bundnu
slitlagi. Sætin í bílnum voru leð-
urklædd og aldrei þessu vant var
ég ánægður með þau, og ég hef
alltaf verið mótfallinn leðursæt-
um. Það var einfaldlega eitthvað
óskýranlegt við þessi sæti sem
skapaði vellíðan, bæði framsæti
og aftursætin.
Ég er vanur að reyna að keyra
prufubíla í kringum 100 km en
þennan bíl var svo gott að keyra
að prufuaksturinn endaði í 230 km.
Í lok prufuakstursins var ekinn
grófur 5 km malarvegur, en þar
fannst mér bíllinn vera með of stífa
fjöðrun og dekkin gefa lítið eftir.
Mikið lagt upp úr þægindum
og öryggi
Fyrir nokkrum árum var það
nýlunda að bílar væru með akreina-
lesara sem varaði ökumenn við
þegar ekið var yfir málaðar línur á
malbikuðum vegum, þessi búnaður
er orðinn staðalbúnaður í flestum
bílum í dag og er í þessum bíl.
Hann er einnig með fjarlægða-
tengdan hraðastilli (ACC: Adaptive
Cruse Control) sem virkar þannig
að ef hraðastillirinn er stilltur á 90
og bíllinn fyrir framan hægir á sér
hægir MM. Eclipse Cross líka á sér.
Þegar bíllinn fyrir framan eykur
ferðina gerir hann það líka.
Á upplýsingaskjáinn, þar sem
bakkmyndavélin er, er hægt að
fá upp margar myndir og m.a.
þegar bakkað er sýnir lítil mynd
allt umhverfi bílsins svipað og
mynd væri tekin ofan á bílinn
úr smá hæð og fyrir mér er þessi
sýn svolítið ný. Í Eclipse Cross
er stjórnunin á þessum skjá með
öðrum hætti en ég hef séð áður,
en skjánum er stjórnað með litlum
snertifleti á milli sætanna svipað
og í fartölvum og því þarf ekkert
að teygja sig að skjánum.
Plúsar:
Útlit og hönnun er til fyrirmynd-
ar, en í mörgum jepplingum
svipuðum og þessum er frekar
þröngt fyrir aftursætisfarþega, en
í þessum bíl sem ég prófaði er
gott að sitja í aftursætunum, hiti í
sætunum, rými mikið og gluggar
tiltölulega stórir með gott útsýni.
Tvær topplúgur eru í bílnum
sem gefa góða birtu inn í bílinn í
veðri eins og var þegar bíllinn var
prófaður (lágskýjað og ausandi
rigning), ættu að gefa farþegum
fallega norðurljósasýn upp um
topplúgurnar þegar svoleiðis er
í boði.
Hliðarspeglarnir eru stórir og
sýna vel aftur fyrir bíl.
Eyðslan er ekki mikil, en í
langkeyrslu var ég að eyða 6,9
lítrum af bensíni og í innanbæj-
arakstrinum var mín eyðsla 8,4
lítrar. Það er ekkert óeðlilegt að
vera aðeins fyrir ofan uppgefna
eyðslu miðað við veðuraðstæður
og að vera ekki að keyra á Eco
stillingunni. Uppgefin eyðsla er
6,0 samkvæmt bæklingi (geri
ráð fyrir að það sé á Eco still-
ingunni).
Verðið á Mitsubishi Eclipse
Cross er frá 3.990.000 og upp í
5.290.000 (bíllinn sem prófaður
var kostar 4.990.000).
Mínusar:
Á malarvegi fannst mér bíll-
inn frekar harður enda ekki
mikla fjöðrun að fá út úr lágum
dekkjunum sem eru af stærðinni
225/55/18.
Ekkert varadekk er í bíln-
um og eru svona lág dekk því
sífellt í hættu á að skemmast.
Auðveldlega væri hægt að setja
17 tommu felgur á bílinn og
vera með 225/60/17 dekk sem
gefa mun betri fjöðrun og er þá
minni hætta á að höggva hliðina
úr dekkjunum á almennt lélegu
vegakerfi Íslands.
Munurinn á að keyra bílinn
á Eco stillingunni og venjulegri
stillingu var mikill og hafði ég
litla þolinmæði að keyra á Eco
stillingunni.
Þyngd 2.150 kg
Hæð 1.685 mm
Breidd 1.805 mm
Lengd 4.405 mm
Dráttargeta 1.600 kg
Helstu mál og upplýsingar
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Það var ekki hlaupið að því að ná birtingarhæfri mynd af Mitsubishi Eclipse Cross í rigningunni. Myndir /HLJ
Með því að kveikja ljósin og hafa þau alltaf kveikt (ekki slökkva ljósin þótt
mælaborðið segi þér að gera það þegar drepið er á), afturljósin sem eru
Bakkmyndavélin sýnir nýja sýn, en hægri myndin sýnir ofan á bílinn og
Þessi bíll er með einhverja bestu hliðarspegla sem ég hef séð og ekið með.
Topplúgurnar tvær hljóta að vera skemmtilegar þegar norðurljósagangur
er á himni.
Ég er aldrei sáttur þegar ég verð þess áskynja að ekkert varadekk er í bíl
sem ég ek. Mín skoðun er að varadekkslausa bíla eigi að banna með lögum.
Snertiflöturinn til að stjórna
upplýsingarskjánum er vel staðsettur