Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
Frábær veiði á stuttum
tíma í Geirlandsá
Sjóbirtingsveiðin hefur gengið
vel og núna hafa líklega veiðst
yfir tvö þúsund á öllu landinu.
Best hefur veiðst við Klaustur og
þar fyrir austan. Við heyrðum
aðeins í veiðimanninum snjalla
Jónasi Marteinssyni, sem var
í Geirlandsá fyrir skömmu og
veiddi vel á stuttum tíma.
„Mig langar til að segja þér
veiðifréttir úr Geirlandsá. Vorum þar
við veiðar fjórir Víðförlafélagar og
tveir gestir í blíðskaparveðri, sólríku
en frekar svölu veðri.
Við komum þarna í byrjun apríl
og var farið í Ármótin og niður á
Garða og var veitt til sjö um kvöldið
en þá fór að frjósa í lykkjunum. Samt
náðust sex fiskar og öllum sleppt.
Daginn eftir var haldið til veiða um
níuleytið og enn fraus í lykkjum og
talsvert ísrek var í ánni, sem gerði
alla veiði mjög erfiða. Við ákváðum
að hætta um ellefu og fara upp í hús
og hlýja okkur en við náðum samt
sex fiskum.
Enn var lagt í veiðina og nú fóru
hlutirnir að gerast og er skemmst
frá því að segja að við náðum alls
72 stk. á nokkrum klukkutímum og
var sá stærsti 12 punda drjóli. Það
var gríðarlegt fjör og sérstaklega
í Ármótunum og við Brúna og er
alveg frábært að lenda í svona veiði-
skap. Flestir voru þessir fiskar teknir
á flugu og Nest fluguna Skröggur.
Flæðimús og svört Snælda flugurn-
ar og Lippa, kopar og svartur Toby
voru vinsælustu spúnarnir. Það var
sjálfhætt um sex því þá fraus allt
fast enn eina ferðina. Að sjálfsögðu
var mest af þessum fiski sleppt, en
nokkrir geldingar lentu í pokum
veiðimanna. 72 stk. veiddir á aðeins
níu tímum tel ég vera fjandi góða
veiði. Því ekkert var farið út síðasta
morguninn. Við höfum veitt í mörg
ár þarna fyrir austan og það víða og
munum við ekki eftir jafn miklum
fiski og í ár og á það við um allar
sjóbirtingsveiðiár fyrir austan sam-
kvæmt sögum annarra veiðimanna
og er það ánægjulegt,“ sagði Jónas
í lokin.
HLUNNINDI&VEIÐI
Harpa Hlín Þórðardóttir með hreindýr.
,,Já, við erum að fara utan til
veiða en ég er mjög spennt fyrir
þessari keppni í Bandaríkjunum
í veiði. Keppnin heitir Extreme
Huntress sem væri líklega hægt
að þýða sem Jaðarveiðikonan,“
segir Harpa Hlín Þórðardóttir er
við heyrðum aðeins í henni áður en
hún lagði í hann enn eina ferðina
til veiða í útlöndum.
Harpa hefur stundað stangveiði
og skotveiði nokkuð lengi.
,,Ég hitti konu á veiðisýn-
ingu erlendis, í Bandaríkjunum,
og hvatti hún mig til að taka
þátt og ég gerði það enda með
mikinn áhuga á veiði og öllum
veiðiskap. Keppnin fer þannig
fram að konur skrá sig til keppni
og úr þeim eru valdar tuttugu
sem eru komnar í undanúrslit.
Fjórar af þeim eru valdar, með
vali dómnefndar og atkvæðum,
til að taka þátt í úrslitakeppn-
inni í Bandaríkjunum. Þetta er
spennandi tækifæri,“ segir Harpa
og það eru orð að sönnu. Við
sjáum hvernig þetta fer og hverjir
verða valdir. Harpa á mikinn séns
að komast í keppina.
Gott að koma hingað og veiða
Vatnaveiðin er byrjuð fyrir
alvöru, Elliðavatn, Vífils-
staðavatn, Kleifarvatn, Hlíðar-
vatn, Meðalfellsvatn og Hrauns-
fjörðurinn svo fáir staðir séu
tíndir til. Og veiðin hefur farið
ágætlega af stað víða.
„Það er fátt betra en að koma
hingað og reyna, en ég hef ekkert
orðið var ennþá enda var ég rétt
að byrja,“ sagði Björn Hrafnsson
sem við hittum við Elliðavatn
fyrir fáum dögum, en nokkrir
voru að veiða við vatnið en fisk-
urinn hefði mátt taka aðeins betur.
„Ég var að pakka niður heima
og flytja þess dagana, því er mjög
gott að taka sér pásu og koma
hingað til að veiða, milli þess
sem maður pakkar niður. Það er
gaman að veiða,“ sagði Björn og
lagaði svartan tóbý á línunni og
kastaði aftur, fiskurinn leit ekki
við. En það kemur allt.
Björn Hrafnsson við Elliðavatn fyrir fáum dögum. Mynd / María Gunnarsdóttir
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Þetta verður mjög spennandi
Flest vötn búin að opna fyrir veiði
Við heyrðum í Ingimundi
Bergssyni hjá Veiðikortinu en
flest veiðivötnin innan vébanda
Veiðikortsins hafa opnað fyrir
veiði.
Þrátt fyrir að sumarið hafi byrjað
með smá vetrarhörku hafa veiðimenn
verið að fá ágætisveiði. Urriðaveiðin
í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur
verið frekar róleg enda fáir veiði-
menn sótt vatnið út af kulda. Nokkrir
vel vænir fiskar hafa þó ratað á land.
Í Hraunsfirði fór tímabilið ágætlega
af stað og nokkrar fallegar bleikjur
náðst á land. Nú bíðum við bara eftir
sumrinu sem þeir segja að sé á næsta
leiti. Með auknum hlýindum kviknar
meira líf í vötnunum og þá fer fiskur
meira að sýna sig. Þá verður gott að
vera klár með veiðistöngina.
Veiðin hafin í Þingvallavatni
Veiðin er hafin í Þingvallavatni
og veiðimenn hafa verið að
veiða vel væna fiska.
Aðeins má veiða á flugu til
að byrja en fisknum virðist vera
alveg sama, hann tekur hana
grimmt. Á ION svæðinu hefur
verið að veiðast vel en þar er
mikið um erlenda veiðimenn
sem þykir veiðiskapur meiri
háttar.
Ókeypis veiði í Hafravatni
Eina vatnið sem býður upp á
ókeypis veiði er Hafravatn í
nágrenni Reykjavíkur og þar
veiðast mest urriðar og ein og
ein bleikja. Þegar hausta tekur
kemur laxinn upp í vatnið, en
það getur verið erfitt að fá hann
til að taka en aðeins veiðst hann
nú samt.
Meðalfellsvatn aftur á Veiðikortið
Veiðikortið er aftur komið
með Meðalfellsvatn en félag
sumarbústaða við vatnið var með
það í fyrra en Veiðikortið þar á
undan í nokkur ár. Veiðin er byrjuð
í vatninu og hefur eitthvað veiðst af
silungi. Það þarf samt að hlýna meira
til að fiskur taki betur, eins og víða
í vötnunum þessa dagana.Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
ALHLIÐA
VÉLAVERKSTÆÐI
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!