Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
skaðsemi þeirra á heilsu manna. Eru
fluttar inn ákveðnar tegundir af flug-
um, bjöllum og maurum til að sinna
því hlutverki að halda óæskilegum
sníkjudýrum í skefjum.
Síðastliðin 17 ár hafa eingöngu
verið notaðar lífrænar varnir á
Espiflöt í ákveðnum tegundum og
hafa eigendur verið að þróa sig í þá
átt líkt og grænmetisframleiðendur,
en þar eru nú einnig nær eingöngu
notast við lífrænar varnir.
Mikill metnaður fyrir
gæðaframleiðslu
„Okkar metnaður verður alltaf
að skaffa eins mikil gæði og við
mögulega getum. Einnig gott
úrval og að vera á tánum gagnvart
nýjungum. Þarna teljum við okkur
vera á réttri leið inn í okkar framtíð.
Umhverfismál er hlutur sem skiptir
okkur alltaf meira og meira máli og
fólk hugsar sífellt meira um. Þar
erum við að sjálfsögðu alltaf að
hugsa um hvað við getum gert betur.
Lífrænar varnir teljum við okkur vera
svolitla brautryðjendur í og margir
hafa tekið upp. Í dag myndi ég segja
að við séum að 99% hluta í lífrænum
vörnum.“
Sérstaða Íslands
og endurvinnsla á vatni
Feðgarnir Sveinn og Axel lögðu
báðir áherslu á þá sérstöðu sem
Ísland býður upp á með raforku
frá endurnýjanlegum auðlindum,
jarðhitavatni og hreinu íslensku vatni
sem enn er gnægð af. Axel sagði að
þrátt fyrir að mikið sé til af vatni, þá
leggi þau áherslu á að næstu stóru
skref garðyrkjustöðvarinnar séu að
hreinsa og endurnýta allt vatn sem
fer í gegnum stöðina.
„Við höfum verið með það á
tilraunastigi í sex ár að endur-
vinna vatnið í hluta garðyrkju-
stöðvarinnar. Allt vatn sem
plönturnar skila frá sér getum
við tekið til baka og notað aftur.
Í nýja húsinu skapast ný tækifæri
til þess. Það er bæði umhverfis-
lega og sparnaðarlega mjög stórt
skref,“ segir Axel.
Vilja losa sig við plast
við pökkun blóma
Notkun á plasti við pökkun á blóm-
um er þó sá þáttur sem Axel sagði að
þau skömmuðust sín fyrir. Það væri
þó sá veruleiki sem þau þyrftu að
búa við þar til aðrar lausnir finnast.
„Við erum svolítið strand í
þessum efnum, þannig að öll góð
ráð eru vel þegin, því við höfum
engar töfralausnir varðandi þetta
eins og er.“
Garðyrkjan nýtur ekki ívilnunar
í magnviðskipum með raforku
Gróðurhúsaræktun tekur til sín
mikla orku og þá aðallega varðandi
lýsingu í húsunum. Sveinn segir
að garðyrkjustöðin Espiflöt sé alls
ekki stærst hvað raforkukaup til
lýsingar varðar. Á 65 ára afmælinu
fyrir fimm árum sagði Sveinn að
Espiflöt væri að kaupa hátt í fjórar
milljónir kílówattstunda. Það væri
um 15 til 20% af rekstrarkostnaði.
Raforkukos tnaður vær i
því verulegur þegar meðal
kílówattstund kostaði tæpar 6
krónur. Sagðist hann á þeim
tímamótum bera þá von í brjósti
að það kæmi hér til valda fólk
sem hafi meiri skilning á því að
garðyrkjan sem heild fengi að
njóta magnkaupa á raforku.
„Þessi grein er að kaupa ríflega
70 milljónir kílówattstunda á
ári og á bak við þessi kaup eru
innan við 30 framleiðendur á
mjög afmörkuðum svæðum.
Okkur þykir því hart að fá ekki
að njóta stærðaráhrifanna betur
en í dag. Sem dæmi þá eru
þrjár garðyrkjustöðvar hér í
Reykholti sem eru að nota álíka
mikla raforku og öll heimili á
Árborgarsvæðinu,“ sagði Sveinn
fyrir fimm árum.
Vegna þessarar stöðu fengu
garðyrkjubændur verkfræðistofu
til að skoða arðsemi af uppsetningu
á eigin dreifikerfi garðyrkjunnar
á svæðinu í kringum Laugarás,
Flúðir og Reykholt. Niðurstaðan
var sú að slík veita myndi borga
sig upp á fimm til sjö árum þannig
að augljóst væri að RARIK myndi
missa þar drjúgan spón úr aski
sínum.
Frá því það var sagt hafa
fjórar ríkisstjórnir setið við völd,
raforkuverð hefur ekki lækkað,
en búið að auka mikið við
starfsemina í garðyrkjunni. Búið
er að byggja við víða m.a. með
um 7.000 fermetra nýbyggingu
hjá gróðrarstöð Lambhaga í
Reykjavík og um 2.000 fermetra á
Hveravöllum sunnan við Húsavík.
Mikil aukning hefur því orðið á
orkunotkun garðyrkjunnar á
Íslandi samfara aukinni erlendri
samkeppni. Lítið virðist hins
vegar enn vera að frétta af
auknum skilningi á þeirri ósk
garðyrkjubænda að garðyrkjan
fái notið magninnkaupa á raforku.
Raforkudreifingin hefur að vísu
verið greidd niður en með fastri
krónutölu. Með auknum umsvifum
og fjölgun í greininni eru hins vegar
fleiri um hituna og hefur hlutfall
niðurgreiðslunnar á dreifingu því
lækkað að mati Axels Sæland, eða
úr hátt í 90% í um 67%.
Samkvæmt heimildum
Bændablaðsins munu einhverjir
grænmetisframleiðendur hafa
íhugað að draga úr lýsingu í
gróðurhúsum yfir vetrartímann til
að mæta auknum rekstrarkostnaði.
Það gæti þýtt mikinn samdrátt í
innlendri framleiðslu og aukinn
innflutning með tilheyrandi
gjaldeyrissóun fyrir þjóðarbúið.
/HKr.
Gunnar Þorgeirsson, bóndi í Ártanga í Grímsnesi og formaður Sambands
garðyrkjubænda, kom færandi hendi og afhenti Axel forláta klukku í tilefni
afmælisins. Sagði hann það mikla áskorun fyrir garðyrkjubændur að keppa
-
mundardóttir og Knútur Rafn Ármann í Friðheimum engin undantekning.
Nýbyggingin er 480 m2 og tvöfaldar pökkunar- og frágangsrými stöðvarinnar. Blóm segja oft meira en mörg orð.
Rósirnar gerast ekki mikið fallegri.