Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 Skeifudagurinn, keppni nemenda í reiðmennsku II við LbhÍ, fór fram á Mið- Fossum í Skorradal fyrsta dag sumars. Að hátíðinni stendur Hestamannafélagið Grani á Hvanneyri og fór dagurinn fram eins og best er á kosið. Nemendur á Hvanneyri hófu daginn með fánareið ásamt kennara og hélt Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, stutta ræðu. Töltgrúbba, sem telur 30 konar búsettar á Vesturlandi, voru með glæsilegt atriði og þá sýndu nemendur á Hvanneyri hvað þeir hafa verið að læra um veturinn. Nemendur í Reiðmanninum kepptu um Reynisbikarinn. Að lokinni dagskrá á Mið-Fossum var kaffihlaðboð í Ásgarði á Hvanneyri þar sem hið vinsæla folatollahappdrætti fór fram þar sem vinningar eru gjafabréf fyrir handhafa að leiða hryssu sína undir hina ýmsu stóðhesta og búa til framtíðargæðinga. Um 200 miðar seldust enda til mikils að vinna fyrir áhugasamt hestafólk. Aðstandendur að keppninni voru ánægðir með daginn en í ár er hann haldinn í 62. sinn. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mætti á hátíðina ásamt börnum sínum og veitti m.a. sigurvegurum verðlaunin. Gunnarsbikarinn er gefinn til minn- ingar um Gunnar Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunaut, en nemendur keppa í fjórgangi. Úrslit voru eftirfarandi: 1. Heiðar Árni Baldursson 2. Hólmfríður Ruth Guðmundsdóttir 3. Ágúst Gestur Guðbjargarson 4. Daníel Atli Stefánsson 5. Dagrún Kristinsdóttir Félag tamningamanna gaf verðlaun þeim nemanda sem þykir sitja hest sinn best og þau verðlaun hlaut Heiðar Árni Baldursson. Eiðfaxabikarinn hlaut Rebekka Rún Helgadóttir en hann er veittur þeim nemanda sem hlýtur hæstu einkunn í bóklegum áfanga (hestafræði). Framfaraverðlaun Reynis eru veitt þeim nemanda sem sýnt hefur hvað mest- an áhuga, ástundun og tekið hvað mestum framförum í reiðmennsku. Þau verðlaun hlaut Daníel Atli Stefánsson. Morgunblaðsskeifuna hlaut Gunnhildur Birna Björnsdóttir en önnur sæti skipuðu: 2. Hólmfríður Ruth Guðmundsdóttir 3. Heiðar Árni Baldursson 4. Dagrún Kristinsdóttir 5. Ágúst Gestur Guðbjargarson Reiðmannsnemendur keppa um Reynis- bikarinn sem gefinn er af fjölskyldu Reynis Aðalsteinssonar, upphafsmanns Reiðmannsnámskeiðsins. Úrslitin fóru þannig: 1. Sigurður Halldórsson 2. Ágústa Rut Haraldsdóttir 3. Jónína Björk Vilhjálmsdóttir 4. Elfa Hrund Sigurðardóttir 5. Bragi Birgisson Skeifudagurinn 2018 á Mið-Fossum Í þessum vísnaþætti verður gripið til gamalla vísna. Ýmsir muna eftir spurningaþáttunum „Sýslurnar svara“. Hagyrðingar voru þar á palli ásamt keppendum. Auðunn Bragi Sveinsson var meðal hagyrðinga: Eg er kominn upp á svið ofurlítið smeykur, þó skal reyna að þumbast við, þetta er bara leikur. Eftir Benedikt Bjarnason, bónda í Sandfellshaga, eru næstu tvær stökur: Strjálast gróður, stækkar svið, streymir móða að Unni, tekur hljóða heiðin við, hrekkur ljóð af munni. Drottinn þá hin duldu mögn draumabláu sala, heyra má í heiðaþögn hvernig stráin tala. Í áþekkum anda er þessi vísa Benedikts Valdemarssonar frá Þröm: Styttist heiðin bungubreið, byltist skeið við ögur. Leið um sneiðing gerist greið, grundin beið mín fögur. Hagyrðingar hafa skemmt sér við að botna alþekktar vísur upp á ný. Friðjón Ólafsson prjónaði svo neðan við: „Afi minn fór á honum Rauð eitthvað suður á bæi“. Þá var amma ekki dauð og allt í himnalagi. . Og Helgi Sæmundsson botnaði þannig hina alþekktu vísu sem flestir eigna Árna Böðvarssyni: „Ætti ég ekki vífa val von á þínum fundi“, gæti ég lesið Gunnar Dal og Guðrúnu frá Lundi. Endalaust má finna gullkorn Bjarna frá Gröf. Vísurnar verða hans það sem eftir lifir þáttar: Ég er ekki eins og þú aurasjúkur talinn. Kommúnista tók ég trú til að dýrka Stalin. Vanti skjól á veginn þinn veðrið hátt þá dynur, guðaðu á gluggann minn gamli æskuvinur. Þessa orti Bjarni um konu eina sem giftist frönskum manni: Gudda fékk sér franskan titt, fór hann vel á maga, betri engan hafði hitt hún um sína daga. Æskudaga endurskin oft ég hljóður kanna, heyri í fjaska hófadyn horfnu kynslóðanna. Vanalega vísan hálf verður illa kveðin, ef hún kemur ekki sjálf eins og hjartagleðin. Þeir sem horfa alltaf á annarra manna lesti, þeim er ekki sælt að sjá sína eigin bresti. Fyrir þá sem reyna að rota réttlæti og dómgreind manns, móðins er það nú að nota nýju fötin keisarans. Þó mörgum finnist lífið ljótt, lánið flesta svíki, vilja ósköp fáir fljótt fara í himnaríki. Úr því geðið eldast fer allt er séð til baka. Forna gleði færir mér fallega kveðin staka. Fánareið nemenda á Skeifudegi nemenda í reiðmennsku II við LbhÍ á fyrsta degi sumars. Myndir / Árdís H. Jónsdóttir LÍF&STARF Allir nemendur í reiðmennskuáfanga búfræðibrautar ásamt Heiðu Dís Fjeldstedt reiðkennara sínum. Gunnhildur Birna Björnsdóttir, vann Morgun- - laun í 61 ár. Gunnar Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunaut. Aðalsteinssonar, upphafsmanns Reiðmannsins við LbhÍ. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com MÆLT AF MUNNI FRAM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.