Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 hefur hrapað úr 5 milljónum plantna niður í ríflega 2 milljónir árlega. „Á tímabilinu frá 1990 til 2008 lögðu stjórnvöld metnað í fjárframlög til bændaskógræktar í landinu og lögðu þar með grunn að uppbyggingu skógarauðlindarinnar. Eftir hrun hefur kveðið við annan tón, fjárveitingar hafa dregist saman og hefur greinin svo sannarlega fengið að gjalda fyrir það,“ segir Jóhann. Gróðursetning gengur of hægt „Staðan sem við okkur blasir er sú að gróðursetning gengur alltof hægt og fjármagn dugir ekki til að standa við gerða samninga. Það hefur verið samið um ræktun skóga með stuðningi ríkisins á um 650 jörðum hér á landi í um 50 þúsund hektara lands, en aðeins er búið að gróðursetja í 22 þúsund hektara, tæpan helming. Stöðugt bætast við nýir samningar og það land sem samið er um stækkar,“ segir Jóhann. Hann bætir við að markmið samninga sé að það taki 10 ár að gróðursetja í land sem samið er um til skógræktar, en þegar mið er tekið af fjárveitingum muni það taka um 40 ár að gróðursetja í það land sem þegar er búið að semja um. Mikilvægt að grisja á réttum tíma Jóhann segir grisjun skóga mikilvæga við uppbyggingu auðlindarinnar og auki verðmæti hennar. „Það er mjög víða hér á Austurlandi sem komið er að fyrstu grisjun og bíða nú um 3.700 hektarar grisjunar í fjórðungnum, þetta eru skógar frá árunum 1990 til 2005. Á næstu 5 árum verður þetta mjög aðkallandi verkefni, en staðan er sú að aðeins er búið að grisja um einn sjötta af fyrirliggjandi þörf af nauðsynlegri grisjun og þörfin eykst stöðugt. Ef grisjunin frestast stöð- ugt dregur það verulega úr gæðum skógarins og seinkar nytjum um frá 10 og upp í 60 ár. Grisjun verður líka dýrari og áhættusamari fyrir skóginn sem eftir stendur eftir því sem lengra dregst að farið verði í verkið,“ segir Jóhann. Fjárveitingar til skógræktar lækka ár frá ári Hann bendir á að fjárveitingar til skógarbænda nemi á þessu ári 224,9 milljónum króna, á næsta ári er gert ráð fyrir 222,5 milljónum króna og 220 milljónum árið 2020. Framlög til skógræktar fari því lækkandi. „Við erum að benda á að fyrstu áætlanir um skógrækt á lögbýlum voru m.a. settar af stað til að mæta samdrætti í sauðfjárrækt og styrkja byggð. Okkur þykir því skjóta skökku við um þessar mundir þegar verulegur samdráttur er í tekjum sauðfjárbænda að einnig er dregið saman í fjárveitingum til skógræktar á lögbýlum,“ segir Jóhann. Hliðaráhrif af því að samdráttur er í fjárveitingum eru að þeir sem þjónusta skógarbændur með sölu skógarplantna eða verktakar við umhirðu og grisjun geta hvorki byggt upp þekkingu né búnað til þjónustunnar. Beltone ™ Enn snjallari heyrnartæki HEYRNARSTÖ‹IN Be lto ne T ru st g en gu r m eð iP ho ne X o g el dr i g er ðu m , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er fi. A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Eftirlitskerfi t.d fyrir sauðburðinn Tengist með 4G eða Wifi beint í símann eða tölvuna Gengur á 12 Vdc eða 240 Vac. Öflug innrauð næturlýsing. Hægt að setja út á tún, eða girðingarstaur. Tengja við sólarsellu og/eða rafhlöðu. Umbreyting á landi með skógrækt. Efri myndina, sem sýnir skóglaust land á Hrafnkelsstöðum, tók Skúli Björn Gunnarsson 1995. Neðri myndin er tekin á sama stað af Jóhanni F. Þórhallssyni árið 2010. Grisjunarmenn og tveir gestir í Víðivallaskógi í mars 2000, frá vinstri Rafn Óttarr Gíslason, Níels Árni Lund, Þórhallur Jóhannsson, Hallgrímur Þórarins- son, Helgi Hjálmar Bragason, Hákon Aðalsteinsson og Jón Þór Þorvarðarson. Myndina tók Jóhann F. Þórhallsson. Tekin í Víðivallaskógi 1995 þegar haldið var upp á 25 ára afmæli Fljótsdalsá- ætlunar. Þeir sem standa og syngja frá vinstri: Sigurgeir Þorgeirsson, Hákon Aðalsteinsson, Jónas Magnússon, Sigurður Blöndal, Gunnar Guttormsson, Níels Árni Lund og Friðjón Jóhannsson. iblb . s F obcea ok Þorlákshöfn – Sími 483 1955 – www.sbskilti.is Framleiðum allar gerðir af skiltum fyrir landeigendur og ferðaþjónustuaðila ER ALLT KLÁRT FYRIR SUMARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.