Bændablaðið - 09.05.2018, Side 13
13Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
#landsmot2018 • www.landsmot.is
facebook.com/landsmothestamanna
VERTU MEÐ FRÁ BYRJUN!
LANDSMÓT HESTAMANNA
REYKJAVÍK 1.7.–8.7. 2018
VIÐ SJÁUMST
Í BREKKUNNI!
Á aðalfundi VOR, félags fram-
leiðenda í lífrænum búskap,
í byrjun apríl síðastliðins var
Eygló Björk Ólafsdóttir, bóndi
í Vallanesi, kjörin nýr formaður.
Hún tekur við formennsku af
Gunnþóri Guðfinnssyni. Með
Eygló í stjórn eru Guðfinnur
Jakobsson, Guðmundur Ólafsson
ritari, Kristján Oddsson gjaldkeri
og Þórður G. Halldórsson.
Inngangan í Bændasamtök
Íslands mun hjálpa félaginu
Á Búnaðarþingi 2018 var samþykkt
aðildarumsókn frá félaginu og segir
Eygló að það muni án efa hjálpa til við
að móta félagið betur. „Félagið er opið
að því leyti að það eru aðalfélagar sem
eru með vottun, en aukafélagar geta
þeir orðið sem vilja tilheyra lífrænu
hreyfingunni og leggja málefnum
hennar lið.
Ég myndi vilja sjá VOR þróast á
þá leið að það yrði vettvangur ekki
síður fyrir þá sem stunda fullvinnslu
með lífrænt vottað hráefni.
Þá er endurreisn fagráðs í
burðarliðnum sem vonandi eykur
möguleika á rannsóknum og
fræðslustarfi. Það þarf til að mynda
að leysa áburðarmál á stórum skala
fyrir lífræna framleiðendur,“ segir
Eygló. /smh
Eygló nýr formaður
lífrænna bænda
Eymundur Magnússon og Eygló Björk
Ólafsdóttir, lífrænir bændur í Vallanesi.
Mynd / smh