Bændablaðið - 09.05.2018, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
Lars Rinnan er einn eftirsóttasti
fyrirlesari í Noregi þegar
kemur að málefnum vélmenna,
gervigreindar og algóryþma.
Hann segist furða sig á því í
hverri viku hversu margir,
þar á meðal stjórnmálamenn,
átta sig ekki á því hversu hröð
tækniþróunin er á þessum
vettvangi. Á næstu tveimur árum
muni 5 milljónir starfa verða
tekin yfir af vélmennum og innan
2030 verði helmingur af öllum
núverandi störfum í heiminum
tekin yfir af vélmennum.
„Vélmennin eru nú þegar
komin og í nokkrum greinum
hefur það verið svo í mörg
ár eins og í bílaiðnaði og hjá
verðbréfafyrirtækjum. En núna
hefur magn af gögnum og
vinnslukraftur þróast svo mikið
að vélmennin geta stöðugt gert
hlutina jafn vel eða betur en
mannfólkið. Þegar tækniþróunin
er á þessum mikla hraða þar sem
hraðinn tvöfaldast á hverju ári
verða vélmennin verulega mikið
betri ár eftir ár. Innan ársins 2029
munu vélarnar verða jafn klárar
og manneskjur, greina gögn jafn
hratt og heili í manneskju og geta
framkvæmt allar þær athafnir
sem mannfólkið getur. Hingað til
höfum við aðeins séð byrjunina á
þessari þróun,“ útskýrir Lars.
Þróun á ógnarhraða
World Economic Forum spáir
því að fimm milljónir starfa muni
verða tekin yfir af vélmennum
innan ársins 2020 og Google
spáir því að tveir milljarðar starfa,
helmingur af öllum núverandi
störfum í dag, muni verða tekin
yfir af vélmennum innan ársins
2030.
„Þrátt fyrir mismunandi tíma-
ramma hafa báðir aðilar rétt fyrir
sér. Ef maður tekur spá World
Economic Forum um fimm
milljónir starfa og tvöfaldar á
hverju ári í 10 ár þá fer maður
yfir í tvo milljarða. Þessi fyrirtæki
hafa varla rætt þetta sín á milli.
Ástæðan fyrir því að báðir hafa rétt
fyrir sér er að hægt er að reikna út
hversu góð tæknin er. Þetta byggist
á lögum Moore sem segir að fjöldi
transistora (þættir sem reikna
út í tölvum) á ákveðnu svæði
tvöfaldast á 18 mánaða fresti,
þar að auki hefur maður vöxtinn
í tölvum og þróun á hugbúnaði
sem til samans bendir til þess að
þróunin sé á ógnarhraða,“ segir
Lars og bætir við:
„Stjórnmálamenn vilja lítið
ræða þessa þróun, annaðhvort af
því að þeir hafa ekki áttað sig á
henni eða af því að það kemur sér
ekki vel fyrir þá í næstu kosningum.
Þetta er stórt lýðræðislegt
vandamál. Þeir horfa á sögulegar
tölur og fullyrða að það hafi ekki
horfið mörg störf til vélmenna
og það er auðvitað rétt því þetta
er í raun bara rétt að byrja. Það
mun ekki gerast svo mjög mikið
næstu árin heldur. En innan fimm
ára munu einnig stjórnmálamenn
sjá hvað er að fara gerast. Ef þeir
hafa ekki byrjað að hugsa um það
núna hvernig þeir eigi fyrir hönd
samfélagsins að tengjast veruleika
með 50% atvinnuleysi þá byrjar
það í nánustu framtíð að verða
aðeins of seint.“
Krefjandi félagsleg tilraun
„Fólk þarf bæði að óttast og
gleðjast yfir þessari þróun.
Fyrir þá sem vinna í einföldum
starfsgreinum þar sem mikið
er af endurtekningum og litlar
kröfur eru um vitsmunalega
hæfileika og þar sem ekki þarf
að leysa vandamál á skapandi
hátt þá er mjög stutt í að þau
störf hverfi sjálfvirkt á braut.
Ef ég væri strætóbílstjóri eða
endurskoðandi myndi ég íhuga
strax í dag að leita mér að öðru
starfi. Endurskoðandinn getur
kannski látið vélmenni halda
bókhaldið og í staðinn unnið með
fjármálaráðgjöf til viðskiptavina
sem byggist á bókhaldinu en aftur
á móti fyrir strætóbílstjórann eru
ekki svo margir aðrir augljósir
möguleikar. Það mun ekki
verða auðvelt að fara frá því að
vera strætóbílstjóri í að hanna
sýndarveruleika sem dæmi. Þetta
mun gilda fyrir mjög margar
starfsgreinar í þessum flokki.
Það er möguleiki að hægt verði að
endurmennta sig í átt að störfum
sem eiga sér framtíð en þetta á við
um störf innan heilsu, umönnunar,
þjálfunar, upplifana og fleira.
Sama á við um þá sem eru að
mennta sig í dag til starfa sem
mun ekki lengur verða eftirspurn
eftir. Þá mæli ég með að skipta
um námsvettvang áður en það er
of seint. Hvort ráðgjafar í skólum
og háskólum eru meðvitaðir um
þessa stöðu er síðan annað mál,“
útskýrir Lars og segir jafnframt:
„Ég held reyndar að nýr
veruleiki með borgaralaunum
geti verið mjög jákvæð þróun.
Kannski er það innrætt skynjun
að allir verði að vinna? Ég held
að það séu margir sem eru ekki
að tengjast í gegnum vinnuna
heldur að þetta sé eingöngu
samfélagslega smíðuð nauðsyn
til að lifa af. Þó eru borgaralaun
krefjandi félagsleg tilraun og ég
sé fyrir mér að þar geti þróast
óreiðuástand áður en þetta mun
virka. Þess vegna finnst mér að
stjórnmálamenn nútímans ættu að
gefa þessu meiri gaum og átta sig
á því sem er að koma ásamt því að
verða sér úti um reynslu í gegnum
tilraunaverkefni. Það eru nokkur
slík verkefni í gangi í heiminum í
dag eins og í Finnlandi, á Indlandi
og í Kanada. Niðurstöðurnar
hingað til eru jákvæðar en
verkefnin eru auðvitað ansi
takmörkuð. Það sýnir sig að
það er til annar valkostur en
almannatryggingakerfið sem er
við lýði á Norðurlöndunum.“
Skattleggja ofurarðbær
fyrirtæki
Árið 2029 munum við ekki þekkja
þann sama heim og við lifum í dag.
Það munu verða vélmenni úti um
allt og þau munu hafa áhrif á
hversdaginn hjá öllum á jörðinni.
Þá munu um 50% af störfum
dagsins í dag að hluta til eða öllu
leyti vera tekin yfir af vélmennum.
„Sennilega verður líka búið að
skapa mörg ný og spennandi
störf á þessum tíma. Þetta getur
verið námuvinnsla á smástirnum
eða þróun á sýndarveruleikum.
Þrátt fyrir það munu færri störf
skapast en þau sem hverfa og að
öllum líkindum verða ekki þeir
sem missa vinnuna í „gömlu“
starfsgreinunum hafa hæfni í
„nýju“ starfsgreinunum. Lausn á
þessu getur falist í borgaralaunum.
Það er stórt málefni sem maður
getur talað um fram og til baka í
marga daga en hin mikla áskorun
í því er hvernig á að fjármagna
þetta fyrirkomulag. Ég held
kannski, já þetta er ekki einfalt,
að rétta leiðin sé að skattleggja
ofurarðbær fyrirtæki. Ofurarðbæru
fyrirtækin eru þau sem hafa gert
mest af virkri starfsemi sinni
sjálfvirk og hafa óeðlilega háa
framlegð, það er að segja ekki
10% heldur kannski 70%. Við
sjáum nú þegar útlínur af slíkum
fyrirtækjum í dag. Instagram
sem dæmi höfðu 13 starfsmenn
þegar Facebook keypti það fyrir
1 milljarð Bandaríkjadala. Það
virkar sjálfbærara og sanngjarnara
að hluta af ofurframlegðinni sé
hægt að deila á alla sem hafa
verið skipt út fyrir vélmenni
og eru á borgaralaunum. Þar
að auki þurfum við verulega
lægri framfærslukostnað vegna
vélmennavæðingarinnar og
þá þurfum við ekki eins háar
tekjur og við höfum í dag. Bílar
verða sjálfvirkir og ódýrir vegna
þrívíddarprentunartækni, við
munum hafa næstum ókeypis
sólarorku, hús og innanstokksmunir
verða prentuð með þrívíddartækni,
meiri bjartsýni mun gæta í
matvælaframleiðslu, meiri áhersla
verður lögð á svæðisbundna
og ódýra framleiðslu og svo
framvegis.“
Bóndinn mun ekki hverfa
Lars bendir á að samkvæmt skýrslu
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9,
110 Reykjavík
Sími 525 8210
eddaehf@eddaehf.is
www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið • Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina • Þvottahúsið • Sérverslunina
Rúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann 85
ÁRA
TÆKNI&VÍSINDI
Innrás vélmenna og gervigreindar er hafin
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Lars Rinnan heldur fyrirlestra í Noregi um tækni og stafrænu byltinguna
ásamt stjórnun og nýsköpun. Hann hefur 25 ára leiðtogareynslu og
rekur fyrirtækið NextBridge Group. Mynd / NextBridge Group.
Nemendur og kennarar við Umhverfisháskóla Noregs (NMBU), undir
forystu Pål Johan From doktors, hafa sérhæft sig í ákveðinni vélmenna-
tækni sem er talin geta komið að góðum notum við landbúnað. Þar að
auki þróa þeir hagnýt vélræn verkfæri fyrir sjálfbærari og skilvirkari
landbúnað. Fyrsta vélmennið fyrir landbúnað, Thorvald, var kynntur
til leiks fyrir tveimur árum. Mynd / NMBU