Bændablaðið - 09.05.2018, Side 20
20 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
FRÉTTASKÝRING
Norskir áburðar- og vopnaframleiðandur taka forystuna í skipahönnun og smíði siglingadróna:
YARA lætur smíða fjarstýrt, rafknúið
og ómannað gámaflutningaskip
Norðmenn, Finnar, Kínverjar
ásamt fragtskipaútgerðum í
Singapúr eru nú að huga að smíði
ómannaðra flutningaskipa eða
eins konar „siglingadróna“. Mun
fljótlega hefjast smíði hjá norskri
skipasmíðastöð á rúmlega 72
metra (237 feta) rafknúnu skipi
sem mun líklega sigla mannlaust
2020.
Þessi siglingadróni Norð-
manna, sem verður fyrsta sjálf-
stýrða flutningaskip heims, er
smíðað í samvinnu áburðar-
fyrirtækjasamsteypunnar YARA,
sem íslenskir bændur þekkja vel,
og Kongsberg Maritime, sem
er afleiða varnarmálastarfsemi
í Noregi. Konsberg er líka vel
þekktur vopnaframleiðandi.
Mun létta flutningum af
þjóðvegakerfinu
Skipið, sem eins og áður sagði hefur
verið kallað YARA Birkeland, á að
geta borið 120 feta gáma. Er því
m.a. ætlað að létta flutningum af
norska þjóðvegakerfinu.
„Skipið mun koma í stað
flutninga 40.000 trukka á ári í
akstri þeirra frá framleiðendum til
tveggja helstu útskipunarhafnanna,“
segir Peter Due, yfirmaður
sjálfvirknimála hjá Kongsberg
Maritime.
Áburðarverksmiðja YARA er
í Heroya. Er siglingadrónanum
m.a. ætlað að flytja áburð frá
verksmiðjunni um þéttskipaða
30 sjómílna siglingaleið til
útskipunarhafna í Brevik og
Larvik. Það mun létta flutningum
af vegunum og þá þurfa trukkar
ekki lengur að aka um þéttbýl
svæði með skólum og íbúðabyggð
með tilheyrandi mengun og hættu
í umferðinni.
Þar sem þetta skip mun einungis
sigla í norskri landhelgi þurfa
menn ekki að glíma við alþjóðlegt
reglugerðarverk varðandi slíkar
siglingar.
Hrönn verður ómannað
þjónustuskip fyrir olíubransann
Auk flutningaskipsins YARA
Birkeland er Konsberg þegar með á
prjónunum smíði á öðru ómönnuðu
skipi sem nefnt hefur verið Hronn.
Er því ætlað að verða þjónustuskip
fyrir olíuborpalla á Norðursjónum.
„Það sem hjálpar Noregi að
vera í fararbroddi í þessum málum
er sú staðreynd að við erum lítil
þjóð með aðeins 5,3 milljónir íbúa.
Það gerir alla ákvörðunartöku
mun auðveldari. Við getum verið
í beinum tengslum við okkar
forsætisráðherra,“ segir Peter Due.
Fleiri þjóðir að íhuga
mannlaus skip
Auk Norðmanna eru Finnar að skoða
frumgerð sjálfstýrðrar ferju. Þá hafa
Kínverjar tekið frá 225 fermílna
hafsvæði til að gera tilraunir með
mannlaus fjarstýrð skip. Japönsk
skipafélög hafa verið að móta stefnu
að því markmiði að taka í notkun
250 fjarstýrð skip fyrir 2025.
Bandaríkjamenn virðast vera
algerlega úti á túni í þessum
málum erf marka má frétta Msn
news í síðustu viku. Þar segir Sean
T. Pribyl, lögfræðingur hjá Blank
Rome í Washington, að þetta sé eins
konar geimkapphlaup. Vísar hann
þar til kapphlaups Bandaríkjamanna
og Rússa um geimskot og að koma á
loft mönnuðum geimförum, þar sem
Rússar höfðu lengi vel forystuna.
„Þetta hefur komið „öllum“ í
greininni í opna skjöldu. Bandarísk
skipafélög eru ekki einu sinni
þátttakendur í þessum leik.“
Richard Balzano hjá
siglingamálaskrifstofu bandaríska
samgönguráðuneytisins segir að
Bandaríkin séu þarna á eftir öðrum
þjóðum. Hann segir jafnframt að
bandarísk skipaflutningafyrirtæki
séu illa haldin og „í öndunarvél“.
Við erum ekki lengur eins
samkeppnishæfir í sjóflutningum
eins og t.d. Kínverjar. Okkar
skattakerfi, okkar lífsmáti,
kauphækkanir og aukinn kostnaður
við starfsmannahald gerir okkur
ekki eins samkeppnishæf,“ segir
Balzano.
Í samkeppni við erlend skipafélög
eru nú 81 bandarískt flutningaskip
í rekstri í millilandasiglingum.
Það er minnsti flutningaskipafloti
Bandaríkjamanna á seinni tímum.
Það sem helst er talið
hindra siglingar ómannaðra
skipa á úthöfunum er skortur á
staðsetningarkerfum til að hægt
sé að fylgja eftir tilraunum. Einnig
eru ekki til reglur um siglingar
fjarstýrðra skipa.
Þótt Bandaríkjamenn hafi lítt eða
ekki tekið þátt í þróun fjarstýrðra
flutningaskipa hingað til er ekki
hægt að segja að þeir hafi þar
með misst af lestinni hvað varðar
tæknigetu og þekkingu. Þessi mál
hafa þó einkum verið í höndum
bandaríska flotans en almennra
fyrirtækja. Fyrr á þessu ári gerði
flotinn t.d. tilraunir með 132 feta
(um 40 metra) ómannað sjálfvirkt
skip sem kallað er Sea Hunter. Það
á að geta siglt um höfin mánuðum
saman án þess að koma í höfn. Þá
mun sjálfvirkur kafbátaskelfir (anti-
submarin robot) vera í pöntun.
Sean T. Pribyl, lögfræðingur hjá
Blank Rome, áætlar að bandarísku
kaupskipafyrirtækin séu í að minnsta
kosti fimm árum á eftir erlendum
keppinautum sínum hvað varðar
áætlanir í innleiðingu ómannaðra
sjálfvirkra skipa. Segir Pribyl að
íhaldssemi sé mikil í bandarískum
skiparekstri og að þar á bæ vilji menn
frekar bíða og sjá hvað gerist hjá
evrópskum kollegum þeirra.
Google, Rolls-Royce
og Finnar í samstarf
Bandaríkjamenn virðast þó ekki alveg
standa utan við þessa sjálfvirkniþróun
í skipum. Hefur áhugi fyrirtækja
í Silicondal vaknað varðandi
samvinnu við evrópsk fyrirtæki á því
sviði. Þannig hóf Google samstarf
við breska vélaframleiðandann
Rolls-Royce fyrir sex mánuðum
um þróun á hugbúnaði fyrir
sjálfvirk skip. Opnaði Rolls-Royce
t.d. fullkomna rannsóknaraðstöðu í
þessum tilgangi í Turku í Finnlandi
í janúar síðastliðnum.
Talsmenn ómannaðra siglinga
segja að sjálfvirk skip geti verið
öruggari og umhverfisvænni en
hefðbundin skip með fullri áhöfn.
Tim Barto, yfirverkfræðingur hjá
Leidos í Bandaríkjunum, segir að
eftir fimm til tíu ár verði byrjað að
draga mannskapinn af skipunum.
„Stærsti kostnaðurinn við útgerð
skipa er mannskapurinn,“ segir Barto.
„Það þarf að þjálfa hann. Einnig að
vera með aðstöðu fyrir menn. Allt
kosti þetta mikla peninga. Án áhafnar,
þá þarf ekki að vera með eldhús í
skipunum, svefnklefa, sjúkrastofu,
afþreyingaraðstöðu, lagnakerfi og
annað: Það skapar meira rými fyrir
flutning,“ segir Barto, en Leidos,
fyrirtækið sem hann starfar hjá, er á
vegum varnarmálayfirvalda og kom
m.a. að hönnun fjarstýrða skipsins
Sea Hunter.
Blessun eða bölvun?
Margir þættir hafa verið nefndir
ómönnuðum skipum í hag. Þau
séu ódýrari í framleiðslu, ekki eins
orkufrek og sjóræningjar geti ekki
tekið áhafnir þeirra í gíslingu. Þau
hafa þó líka sína stóru galla. Ef
skyndilega koma upp bilanir sem gera
þarf við þá er enginn maður tiltækur
til að sinna slíku. Bilað sjálfvirkt
skip úti á rúmsjó eða í siglingu inni
á fjörðum getur því hæglega orðið
að tifandi tímasprengju fyrir aðra
sjófarendur.
Skipsdrónarnir vekja áhuga
tryggingarfélaga
Ómönnuð fjarstýrð eða sjálfvirk
skip geta haft marga kosti að mati
sérfræðinga. Þó enginn sé um borð
til að bregðast við ef eitthvað óvænt
kemur skyndilega upp, þá ættu
mannleg mistök við stjórn þeirra að
vera hverfandi. Fyrirtækið Allianz
Global Corporate & Specialty áætlar
að um 75–90% slysa á hafinu megi
rekja til mannlegra mistaka.
Það er gríðarlega mikilvægt
ef hægt verður að útiloka þennan
mannlega áhættuþátt í rekstri
skipa, að mati lögfræðistofunnar
Reed Smith í London. Þarna sjá
tryggingafélögin mikla möguleika.
Munu ekki leysa risaskipin
af hólmi í bráð
Þótt Norðmenn og fleiri þjóðir séu
nú að hefja þróun og innleiðingu
sjálfvirkra skipa, þá eru þessar
hugmyndir enn langt frá rekstri
risastóru gámaflutningaskipanna sem
sigla um heimshöfin. Þar eru þegar
mjög fámennar áhafnir um borð og
mannakostnaðurinn hlutfallslega
mjög lítill miða við hefðbundin minni
fragtskip. Ekki er því víst að menn
verði óþarfir um borð í risaskipunum
á næstunni.
„Við munum því ekki sjá ómönnuð
risa tankskip í náinni framtíð,“ segir
Jan Hagen Andersen, þróunarstjóri
hjá ráðgjafarfyrirtækinu DNV Gl í
Houston. Hann segir þó að það muni
verða bylting í þessa veru á jaðri
stórflutninganna.
„Ef ég hefði verið spurður um
sjálfvirkni skipa fyrir fimm árum,
hefði ég sagt að það væri aðeins
vísindaskáldsaga,“ sagði Andersen.
„Í dag held ég að við séum að sjá
raunveruleg verkefni í þessa veru í
þróun.“
Richard Balzano segir að
útgerðarmenn geti ekki lengur barist
gegn þróun ómannaðra skipa. „Þau
eru að koma og þeir vita það.“
Í ekki svo fjarlægri framtíð
munum við því sjá skipstjórnendur
í stjórnstöðvum skipafélaga uppi
á þurru landi stýra ómönnuðum
fragtskipum í þúsundum mílna
fjarlægð.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
hafna í Noregi. Mynd / Kongsberg Maritime