Bændablaðið - 09.05.2018, Síða 32
32 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018
Frumkvöðullinn og doktorinn
Carmen Hijosa þróaði
vörumerkið Piñatex® fyrir sjö
árum í rannsóknarskyni. Hún
er sérfræðingur í leðurvörum og
var við ráðgjöf á Filippseyjum
upp úr 1990 þegar henni
blöskraði umhverfisáhrifin sem
leðurframleiðsla og litun með
kemískum efnum höfðu.
Carmen vissi að PVC-efni
voru ekki lausnin svo hún var
staðráðin í að kanna sjálfbærari
aðferðir. Áður en langt um leið
hafði hún þróað náttúrulega
vefnaðarvöru sem búin er til úr
trefjum ananaslaufblaða og má
því segja að um hliðarafurð í
landbúnaði sé að ræða.
Fyrirtæki Carmen, Ananas
Anam, er nú þekkt víða um heim
og þá sérstaklega innan tísku- og
húsgagnageirans. Þegar hún hóf
þessa ferð var Carmen innblásin af
gnægð náttúrulegra auðlinda, þar
á meðal notkun á plöntutrefjum
í hefðbundnum vefnaði eins og í
hinum fínofna Barong Tagalog-
fatnaði. Carmen leitaðist því
við að hanna nýja vefnaðarvöru
sem var ekki ofin sem væri hægt
að framleiða í viðskiptalegum
tilgangi, skapa jákvæð félagsleg
og efnahagsleg áhrif og viðhalda
lágu umhverfisfótspori í gegnum
líftíma þess.
Notað í skó, fatnað
og áklæði í bíla
Eftir mikla hugmyndavinnu
og þróun komst Carmen að
því að trefjar í laufblöðum
ananasplöntunnar var það sem hún
var að leita að. Úr þeim gat hún
framleitt leðurlíki á sjálfbæran
hátt til viðbótar við það sem fyrir
var á markaði. Hráefni sem áður
var hent en er nú hægt að nýta og
skapar störf í samfélögum þar sem
landbúnaður er enn á þróunarstigi.
Hér náði Carmen því að samhæfa
sýn sína í eitt fyrir sjálfbærari framtíð
sem tengir saman fólk, umhverfi
og hagkerfi. Carmen hefur hlotið
fjölda verðlauna um allan heim
fyrir uppgötvun sína og er þekktur
fyrirlesari. Í dag heldur hún áfram að
þróa Piñatex®-vörulínu sína.
Piñatex® er sem fyrr sagði
búið til úr trefjum laufblaða
ananasplöntunnar. Þessum
laufblöðum var áður fyrr hent
í ananasuppskerunni og er því
hliðarafurð í landbúnaði. Hinum
löngu trefjum úr blöðunum er náð
út með sérstakri vél sem bændur á
hverjum stað sinna og fá aukalega
greitt fyrir. Þegar búið er að ná
trefjunum úr laufblöðunum eru þau
notuð sem næringarríkur áburður
eða í lífeldsneyti svo ekkert fer til
spillis við framleiðsluna. Trefjarnar
fara í áframhaldandi vinnsluferli
þar sem þeim er rúllað upp í stóra
möskva sem unnið er frekar úr í þar
til gerðum verksmiðjum á Spáni.
Lokavaran, leðurlíkið Piñatex®,
er mjúkt og sveigjanlegt efni en
um leið varanlegt. Frá Spáni er
vörunni dreift frá fyrirtæki Carmen
til hönnuða sem nota hana meðal
annars í skó, tískufylgihluti, fatnað,
í húsgagnaframleiðslu og sem áklæði
í bíla sem dæmi.
Úr Piñatex® eru ýmsar vörur framleiddar úr þessari náttúru-legu vefnaðarvöru, skór, tísku-fylgihlutir og fatnaður eru gott dæmi.
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Trefjar úr ananaslaufblöðum í nytjahluti
Trefjar úr laufblöðum ananasplöntunnar eru hengdar upp og þurrkaðar áður en þær fara í lokavinnsluferli til Spánar.
-
búnaði sem áður fyrr var hent.
Frumkvöðullinn og hugmyndasmiðurinn að ananasleðurlíkinu, doktor Carmen
Hijosa, við fullunna vöru úr trefjum laufblaða plöntunnar en vörumerkið
kallast Piñatex®.
Miðstöð matvælaöryggis og sjálfbærni
Fyrir þremur árum var miðstöðin
Foods of Norway opnuð, sem er
samstarfsverkefni 18 fyrirtækja
og stofnana í Noregi sem tengjast
matvælum á einn eða annan hátt.
Miðstöðin er starfrækt við Norska
umhverfis- og lífvísindaháskólann
(NMBU) og er aðaláherslan
á að þróa ný fóðurhráefni úr
endurnýjanlegum lífmassa. Einnig
að þróa aðferðir til að geta framleitt
meira af svæðisbundnum hráefnum
í fóður fyrir búfénað og fisk.
Matvælaöryggi og aukin
sjálfbærni
„Þetta er átta ára tilraunaverkefni
og er aðaláhersla miðstöðvarinnar á
matvælaöryggi og aukna sjálfbærni.
Aðalverkefni okkar eru að þróa ný
fóðurhráefni úr endurnýjanlegum
lífmassa, uppfæra næringargildi
núverandi fóðurhráefna og að þróa
aðferðir til að geta framleitt meira
af svæðisbundnum hráefnum í fóður
fyrir búfénað og fisk. Einnig eru hér
gerðar ítarlegar tilraunir á búfénaði
og fiski til að kortleggja hvernig
hin nýju fóðurhráefni hafa áhrif á
vöxt dýranna, lífeðlisfræði þeirra
og heilbrigði ásamt því að kanna
hvernig hráefnið stenst gæðakröfur,“
segir Margareth Øverland,
framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar.
Mikilvægi svæðisbundinna
fóðurúrræða
Mannfjöldaspár sýna að árið 2050
verði um 9 milljarðar manna
á jörðinni sem krefst mikillar
matvælaframleiðslu alla daga allt
árið um kring.
„Á sama tíma stöndum við frammi
fyrir miklum loftslagsbreytingum
og vegna þeirra er erfiðara að búa
til meiri mat, það er einnig meiri
pólitískur óróleiki í heiminum og
þess vegna verður aukin sjálfbærni
stöðugt mikilvægari. Í Noregi hefur
búfénaður mikilvægt hlutverk þegar
hugsað er til sjálfbærni en hér erum
við berskjölduð vegna þess að
mikið af fóðri eða hluti af því sem
búfénaður hérlendis fær byggist
á innfluttum hráefnum. Það á
sérstaklega við um prótínrík hráefni
eins og sojamjöl. Ef við ætlum að
auka norska matvælaframleiðslu
verðum við að framleiða meira
af svæðisbundnu fóðri,“ útskýrir
Margareth og segir jafnframt:
„Foods of Norway hjálpar til við
að þróa tækni sem tryggir aukna
sjálfbærni í Noregi. Miðstöðin
leiðir einnig til aukinnar áherslu á
að nýta svæðisbundin fóðurúrræði
í auknum mæli með notkun á nýrri
tækni. Foods of Norway er eins
konar blágræn miðstöð sem vinnur
þvert á nokkra geira með þátttöku
bæði úr sjávarútvegi, landbúnaði
og skógræktinni. Til að mynda
getur notkun á lífmassa úr trjám
til að framleiða hágæða prótínrík
fóðurhráefni tryggt aukinn vöxt í
hinum bláa geira. Í dag er sem dæmi
aðgangur að hágæða fóðurhráefni
einn af flöskuhálsunum fyrir frekari
vexti í eldisframleiðslu.“
Unnið úr fjölvaþörungum
og grenitrjám
Rannsóknarvinnan sem á sér stað
í miðstöðinni fjallar um að auka
verðmætasköpun sem byggist á að
nota endurnýjanlegan lífmassa og
að nota nýja tækni.
„Þetta gefur okkur nýjar
aðferðir og verkfæri sem eru
mikilvæg fyrir hina grænu
byltingu. Eitt af mikilvægustu
rannsóknarþemunum er að þróa
svæðisbundið fóðurhráefni bæði
fyrir eldisfisk og búfénað sem
byggist á lífmassa bæði úr hafi og
af landi. Mikilvægur lífmassi sem
við vinnum með eru fjölvaþörungar
og grenitré. Með því að nota nýja
tækni er hægt að göfga þennan
lífmassa í hágæða fóðurhráefni.
Nú um mundir vinnum við að því
að brjóta niður þennan lífmassa
og vinna úr honum sykur og
önnur næringarefni með hjálp af
ensímum sem er meðal annars
þróað hér við Norska umhverfis-
og lífvísindaháskólann (NMB).
Þetta er síðan sett í gerjunartank
með örverum eins og til dæmis geri
sem vex á þessum næringarefnum.
Síðan er gerið uppskorið og verður
að prótínríku mjöli sem hægt er að
nota í fóður til búfénaðar og fisks.
Við höfum séð að lax sem fær
fóður með germjöli vex vel og er
heilbrigður. Þannig að starfið sem
hefur verið unnið hér síðustu þrjú
ár hefur skilað góðum árangri og
lofar góðu fyrir framhaldið.“ /ehg
Margareth Øverland, framkvæmda-
stjóri Foods of Norway-miðstöðvar-
innar, segir að ef auka eigi norska
matvælaframleiðslu verði að fram-
leiða meira af svæðisbundnu fóðri.
of Norway starfrækt þar sem meðal annars eru þróuð ný fóðurhráefni úr
endurnýjanlegum lífmassa með nýrri tækni.