Bændablaðið - 09.05.2018, Side 42

Bændablaðið - 09.05.2018, Side 42
42 Bændablaðið | Miðvikudagur 9. maí 2018 Hið árlega fagþing nautgripa- ræktarinnar í Danmörku var haldið um þarsíðustu mánaðamót og fer hér síðasti hluti umfjöllunar um „Kvægkongres“, eins og fagþingið heitir á dönsku. Líkt og undanfarin ár var haldin tveggja daga ráðstefna samhliða aðalfundi kúabænda og var ráðstefnan með 11 ólíkar málstofur. Í síðustu tveimur blöðum hefur verið fjallað um flestar af þessum málstofum og fer hér síðasti hluti umfjöllunarinnar. 10. Starfsmannastjórnun Dönsk kúabú eru að jafnaði með þeim stærstu í Evrópu og er meðalbúið nú með rúmlega 200 árskýr. Stækkandi kúabúum fylgir aukinn fjöldi starfsmanna og hefur góð starfsmannastjórn reynst mörgum dönskum kúabændum nokkuð erfið. Sérstaklega á búum sem eru að stækka og breytast úr því að vera bú með einungis fjölskyldumeðlimum yfir í að vera með nokkra ráðna starfsmenn. Það getur verið vandasamt verk bæði að treysta öðrum fyrir verkunum en einnig að fá starfsfólkið til þess að vera áhugasamt um verkin og var þessi málstofa því sett sérstaklega upp með þetta í huga. Áhugaverð erindi Alls voru 6 erindi flutt í málstofnunni og erindi Helle Hein, sem er sérfræðingur og sjálfstæður ráðgjafi í starfsmannastjórnun, var afar áhugavert en hún útskýrði í erindi sínu hvernig atvinnurekendur geta greint starfsmenn sína í fjóra grófa flokka og hvernig best er að ná til og stjórna þessum fjórum starfsmannagerðum ef svo má að orði komast. Hún telur að starfsfólk hafi almennt nokkuð ólíkar þarfir og á meðan sumir nærast á hrósi þá finnst öðrum það alls ekki jákvætt. Aðrir telja sig oftast vita allt betur og vilja fara eigin leiðir, þá eru aðrir afar framagjarnir og líta á hvert starf sem stökkpall yfir í eitthvað annað betra og að síðustu eru svo þeir sem hún kallar einfaldlega launþega. Sá flokkur hóps sækir vinnuna einungis til þess að fá launin sín og hafa í raun lítinn áhuga á að sækja fram á við. Til þess að ná því besta út úr hverjum starfsmanni þarf því, að mati Helle, fyrst að átta sig á því hvernig grunnmanngerð viðkomandi persóna er og síðan móta starfsmannastjórnunina eftir því hvað það er sem örvar og hvetur þann einstakling. Of langt mál væri að útskýra hér nánar hvernig þetta er gert en með því að kynna sér þessa greiningaraðferð telur hún að stjórnendur fyrirtækja geti náð mun betri árangri. Rétt er að geta þess að hægt er að lesa margskonar fróðleik um þessi mál á heimasíðu fyrirtækis Helle: www.hellehein.dk. Starfsfólk er mismunandi Íslandsvinurinn Vibeke Fladkær, sérfræðingur SEGES í bústjórn, flutti einnig mjög gott erindi í þessari málstofu en hún fór svolítið inn á svipaða braut og Helle Hein þ.e. hvernig maður á að nálgast starfsfólk út frá mismunandi forsendum. Hún sagði að algengustu mistök bænda, þegar þeir eru með starfsfólk í vinnu, er að gera ráð fyrir því að viðkomandi starfsmenn dragi sömu ályktanir út frá sömu forsendum og bóndinn. Hver og einn er ólíkur að eðlisfari og því þurfi bændur að vera tilbúnir að stjórna með ólíkum hætti eftir því hvaða starfsmaður á í hlut. Að hennar mati má skipta fólki gróflega upp í fjóra ólíka hópa eftir því hvernig fólk lítur á breytingar: Hinir hversdagslegu: Til þessa hóps heyrir 50% fólks og það vill helst að morgundagurinn verði eins og dagurinn í dag og að sem minnstar breytingar verði. Hinir svartsýnu: Til þessa hóps heyrir 15% fólk og það vill helst, líkt og hinir hversdagslegu, að sem minnstar breytingar verði en um leið er það heldur svartsýnt á þessa niðurstöðu. Þannig trúa þeir sem Bandarískir bændur svínbeygja forsetann: Mega fá farandverkamenn tímabundið frá Mexíkó Donald Trump Bandaríkjaforseti olli uppnámi meðal þarlendra bænda strax eftir embættistöku sína með háværum yfirlýsingum um að reka ólöglega innflytjendur úr landi og stöðva flóð farandverkamanna yfir landamærin frá Mexíkó. Nú virðist annað hljóð komið í strokkinn í Hvíta húsinu. Bændur víða í Bandaríkjunum sem stunda ávaxta- og bómullarrækt hafa mjög reitt sig á tímabundna vinnu farandverkafólks og þá einkum frá Mexíkó. Sáu bændur fram á það að lenda í stórkostlegum vandræðum ef forsetinn ætlaði að standa fastur á sínu. Laugardaginn 28. apríl gaf Trump út yfirlýsingu til að friða bandaríska bændur og sagðist vilja heimila fleiri farandverkamönnum (guest workers) að koma til Bandaríkjanna til að hjálpa bændum sem geti verið að bíða tímabundinn skaða af hans eigin áætlunum um að endursemja við fjölda erlendra samstarfsaðila. Þetta verður allt í lagi „Bændur, þetta verður allt í lagi,“ sagði forsetinn á pólitískum fundi sínum sem haldinn var skammt norður af Detroit. „Við munum leyfa ykkar farandverkamönnum að koma til landsins.“ Þetta kann að virka eins og köld gusa í andlit harðlínumanna í innflytjendamálum í Banda- ríkjunum. Mánuðum saman hefur forsetinn og ráðgjafar hans í Hvíta húsinu rembst eins og rjúpur við staur við að endurskrifa innflytjendalögin til að gera það erfiðara fyrir lítt menntaða verkamenn að koma til landsins. Ákvörðun Trump nú á að koma í veg fyrir vandræði sem bændur hafa lent í vegna stefnu hans. Fær ódýrt vinnuafl nú náðarsamlegast að koma til landsins samkvæmt H2B visa reglum sem heimilar tímabundna komu til Bandaríkjanna. Segir Trump að það muni ekki skaða bandaríska verkamenn þar sem skortur sé á vinnuafli í landbúnaði. „Góð atvinnuleysismynd“ „Atvinnuleysismyndin er svo góð, svo sterk, að við verðum að leyfa fólki að koma til okkar,“ sagði forsetinn. „Þeir munu koma sem farandverkamenn, þeir munu koma og þeir munu vinna á ykkar bújörðum… en svo verða þeir að fara,“ sagði Trump. Vilja útlendinga en vilja samt byggja múrinn Engu var líkara en margir ættingjar Ragnars Reykás væru á fundinum ef marka má þversagnakennd viðbrögð. Mæltust orð forsetans um heimild til að flytja inn farandverkafólk vel fyrir meðal áheyrenda sem fögnuðu einnig orðum hans um aukið landamæraeftirlit og hrópuðu; „Byggjum múrinn!“ Voru það viðbrögð við áformum forsetans um að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Þegar Trump spurði fundar- menn hvað þeim fyndist um þetta tímabundna leyfi fyrir farandverkamenn uppskar hann klapp og húrrahróp. /HKr. Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI Snorri Sigurðsson snsig@arlafoods.com um að banna mexíkóskum verkamönnum að koma til Bandaríkjanna. Bandarískir svína- og sojabænd- ur óttast útflutningshömlur Nú stefnir í að skelli á verslunarstríð milli Kína og Bandaríkjamanna þar sem amerískir svína- og sojabændur geta farið illa út úr þeim pólitíska leik. Donald Trump lofaði því í kosningabaráttu sinni að koma á uppgjöri með því sem hann kallar óréttlátar verslunaraðferðir frá meðal annars Kína og í mars lagði hann út á tvístinu að það væri auðvelt fyrir Bandaríkjamenn að sigra verslunarstríð og telja margir að um beina hótun hafi verið að ræða af hans hálfu. Bandarísk stjórnvöld hafa gefið út þá viðvörun að þau muni koma á 25% tolli á fjölda kínverskra vara. Nú hafa stjórnvöld í Beijing svarað í sömu mynt. Einn af þeim vöruflokkum sem er mikið flutt út frá Bandaríkjunum til Kína eru landbúnaðarvörur og eru bændur vestanhafs uggandi yfir þessari þróun. Bandaríkjamenn flytja inn vörur fyrir 500 milljarða dollara meira en þeir flytja út og sé litið á samband þeirra við Kína er hallinn á verslunarjafnvæginu 375 milljarðar dollara. Kínverjar eru í þriðja sæti yfir þær þjóðir sem borða mest af svínakjöti en aðeins Serbar og íbúar Svartfjallalands eru duglegri við það á hvern íbúa. Í Kína er rúmur milljarður manna sem borðar svínakjöt og því mikilvægur neytendamarkaður fyrir svínabændur. Samtök svínabænda í Bandaríkjunum sem hafa um 60 þúsund meðlimi hræðast að þeirra skjólstæðingar muni verða illa fyrir barðinu á verslunarstríðinu þar sem flutt er út töluvert magn af svínakjöti til Kína. Kína er þriðji mikilvægasti útflutningsmarkaðurinn fyrir ameríska svínabændur og fyrir sojabændur er Kína mikilvægasti markaðurinn en þeir flytja þangað rúmlega 60% af framleiðslunni sem er að mestu notað í kjúklinga- og svínaframleiðslu í Kína. Stríðið er þó ekki almennilega skollið á ennþá og eiga nú bandarísk stjórnvöld í viðræðum við þau kínversku í von um að ná sanngjörnum samningum milli landanna þar sem allir aðilar verði sáttir við málalok. /ehg mismunandi manngerðir og með þá vitneskju náð meiru út úr sínu starfsfólki. Fagþing nautgriparæktarinnar í Danmörku 2018 – síðasti hluti: Er þang framtíðarfóður mjólkurkúa? Þangtegundin Asparagopsis taxiformis hefur reynst gefa undraverðan árangur við að minnka metangasmyndun nautgripa við jótrun.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.