Bændablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201918
Fram undan er kosning meðal
sauðfjárbænda um endurskoðun á
samningi um starfsskilyrði þeirra.
Við munum á næstu dögum funda
með okkar félagsmönnum og kynna
efni samningsins. Haldnir verða
sex kynningarfundir dagana 5.–7.
febrúar. Við höfum fengið ýmiss
konar viðbrögð frá bændum við
samningunum. Menn eru enn að
meta samninginn og afla sér frekari
upplýsinga um ýmsar útfærslur í
honum. Okkar félagsmenn munu
síðan taka afstöðu til samningsins
í rafrænni kosningu sem verður
haldin í febrúar.
Það má ekki gleyma því að það
er ekkert í þessari endurskoðun
sem hefur bein áhrif á afurðaverð.
Sú fækkun sem þegar er orðin
og á eftir að verða í gegnum
aðlögunarsamninga skiptir máli til
að skapa jafnvægi milli markaða.
Árið 2016 voru hér framleidd
9.300 tonn af lambakjöti og í
haust voru framleidd um 9.000
tonn. Miðað við ásetning haustsins
verður framleiðsla á lambakjöti
á komandi hausti um 8.500–
8.700 tonn. Þessi samdráttur í
framleiðslu mun skapa jafnvægi
á mörkuðum og stuðla að bættri
afkomu bænda.
Sala á dilkakjöti 2018 var
ágæt, alls voru seld 6.433 tonn
innanlands og er söluaukning
milli ára 3,7%. Útflutningur á
kindakjöti var 3.797 tonn á síðasta
ári, sem er 7,9% samdráttur frá því
sem það var árið áður. Veiking
krónunnar undir lok árs kom sér
vel fyrir útflutninginn og síðan
eru erlendir markaðir að þróast í
rétta átt. Góð innanlandssala og
mikill útflutningur gera það að
verkum að um áramót voru birgðir
af lambakjöti 4.400 tonn en voru
á sama tíma árið áður 5.300 tonn.
Það er jákvætt að sjá að við erum
að halda okkar markaðshlutdeild á
innanlandsmarkaði, það er okkur
mjög mikilvægt. Hin vegar er mikil
óvissa fram undan á kjötmarkaði á
Íslandi í kjölfar aukins innflutnings
á kjötafurðum.
Það er ánægjulegt að nú hafa
fjórir sláturleyfishafar tilkynnt
greiðslu á uppbót á afurðaverð
haustsins 2018. Ég hef trú á því að
við séum farin að spyrna okkur upp
frá botninum, nú er bara spurning
hvað það gerist hratt.
KS og SKVH ehf. hækkuðu
afurðaverð á lambakjöti um 6,04%
á innlegg í september og október
og 10% á innlegg í ágúst frá áður
auglýstu verði. Eftir hækkun er
reiknað meðalverð KS og SKVH
ehf. 419 kr/kg.
SAH afurðir ehf. hækkuðu
afurðaverð á dilkakjöti um 12%
frá áður auglýstu verði. Eftir þessa
hækkun er reiknað meðalverð SAH
afurða ehf. 395 kr/kg.
Sláturfélag Vopnafjarðar
greiddi 45 kr/kg álag á allt innlagt
lambakjöt frá áður auglýstu verði.
Eftir hækkun er reiknað meðalverð
SV 400 kr/kg
Haustið 2018 var meðal
afurðaverð yfir allt landið 387 kr/
kg. Eftir þessar hækkanir er reiknað
meðalverð komið upp í 405 kr/kg.
Afurðaverð hefur þannig hækkað
um 4,7% frá því sem það var með
uppbótum haustið 2017. Reiknað
meðalverð haustið 2015 var 637
kr/kg (framreiknað út frá vísitölu
neysluverðs). Afurðaverð þarf því
að hækka um 57% til að ná því
verði.
Það er auðvitað jákvætt að sjá
afurðaverð hækka og fyrirheit um
að aðstæður á mörkuðum séu að
þróast í rétta átt gefur tilefni til
bjartsýni. Hins vegar þarf enn
verulega hækkun afurðaverðs
til að ná aftur því verði sem
hér var verið að borga áður en
afurðaverð hrundi. Samanburður
við nágrannalöndin er okkur ekki
sérlega hagfelldur. Franskir bændur
fá t.d. um þessar mundir 914 kr/kg
frá sinni afurðastöð og meira að
segja bændur í Rúmeníu fá greitt
hærra afurðaverð en á Íslandi.
Staða margra bænda er þannig
að menn eru ekki að biðja um
launahækkun fyrir sín störf, eins
og aðrar starfsstéttir landsins þessa
dagana, heldur frekar að þeir fái
greidd einhver laun fyrir sín störf.
Þetta er veruleiki sauðfjárbænda
á Íslandi í dag. Í endurskoðuðum
samningi er að finna mikilvæg
verkfæri sem munu m.a. hjálpa
okkur að tryggja jafnvægi á
mörkuðum og þar með stuðla að
bættri afkomu sauðfjárbænda.
Af samningum og stöðu sauðfjárbænda
Unnsteinn Snorri Snorrason
framkvæmdastjóri
Landssamtaka sauðfjárbænda
unnsteinn@bondi.is
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Gluggar og hurðir fyrir
íslenskar aðstæður
Í yfir 20 ár hefur Viking Window AS selt tréglugga og hurðir á Íslandi
Gluggar og hurðir með eða
án álkápu, allir RAL litir í
boði að innan og utaverðu
Afhendist glerjað og tilbúið
til uppsetningar
Afgreiðslutími 5-8 vikur
Sjá nánar á: viking.ee
Nánari upplýsingar gefur
Ólafur í síma 480 0009
Landssamtök sauðfjárbænda og Bændasamtök Íslands
standa fyrir opnum kynningarfundum um endurskoðun
á samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar.
Þriðjudaginn, 5. febrúar
Kl. 13.00 – Félagsheimilið Árblik, Miðdölum
Kl. 20.30 – Félagsheimilið Heimaland, V-Eyjafjöllum
Miðvikudaginn, 6. febrúar
Kl. 13.00 – Félagsheimilið Holti á Mýrum
Kl. 20.30 – Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum
Fimmtudaginn, 7. febrúar
Kl. 13.00 – Félagsheimilið Ljósvetningabúð í Kinn
Kl. 20.30 – Félagsheimilið Blönduósi
Kynningarfundir um sauðfjársamning
FUNDARBOÐ
Samanburður á uppsafnaðri sölu innanlands á dilkakjöti fyrir árin 2016, 2017 og 2018.
Fé á fjalli. Mynd / HKr.