Bændablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201946
Í byrjun árs frumsýndi Bílabúð
Benna nýjan og mikið breyttan
SsangYong Rexton, alvöru jeppa
sem byggður er á grind og er mikið
breyttur frá síðustu árgerð.
Ég hugðist taka smá rúnt á bílnum
og bera saman við fyrri árgerðirnar,
en bíllinn var svo skemmtilegur að
litli rúnturinn endaði í tæpum 300
km.
Lengri, breiðari, kraftmeiri
og betur búinn
Fyrst þegar ég prófaði Rexton var
vélin 151 hestafl, lengdin 4.300
mm. Næsti bíll var 178 hestöfl og
4.755 mm. langur, en nú er vélin
orðin 181 hestafl og lengdin komin
upp í 4.850 mm. Sem sagt stærri,
kraftmeiri og þar sem að Rexton er
einn af fáum jeppum sem byggður
er á grind kemst hann í jeppaflokk
í mínum skilningi (verður að vera
byggður á grind og vera með hátt og
lágt drif til að komast í flokk jeppa í
mínum skilningi).
Tæknilega er bíllinn vel búinn
og vandaður með mun meira af
öryggisbúnaði og þægindum sé
miðað út frá fyrri bílunum tveim
sem ég prófaði í febrúar 2015 og
apríl 2017.
Öryggi og þægindi
Fyrst vil ég nefna öryggisþáttinn
í bílnum, en í nýja bílnum eru 9
loftpúðar sem verja ökumann og
farþega fyrir höggum í árekstri.
Enginn annar jeppi eða jepplingur
er með svona marga loftpúða, en
helsta nýjungin er loftpúði fyrir
framan hné ökumannsins, en ófá
slysin hafa orðið á ökumönnum við
árekstur þar sem hnén hafa tjónast
við að klemmast undir mælaborði
bíla.
Helstu hjálpartæki til öryggis
í bílnum eru akreinalesari,
bl indhornsvari , s jálfvirk
neyðarhemlun sem tengd er
fjarlægðarskynjurum, skiltalesari
sem les umferðarskilti og birtir í
mælaborði.
Meðal þæginda eru m.a. hiti
í stýri, stór 9,2 tommu skjár með
íslensku leiðsögukerfi, hiti og
kæling í framsætum, 220 volta
rafmagnstengill, ný tækni sem
stjórnast af fjórum myndavélum
sem auðveldar að leggja í stæði, en
með þessari tækni er m.a. hægt að
sjá bílinn í þrívídd sem virkar eins
og að loftmynd sé tekin þrjá til fjóra
metra upp og aftan við bílinn.
Einnig er í bílnum skynjari sem
segir bílstjóranum að stoppa og fá sér
kaffi ef aksturinn er orðinn langur,
en þá kviknar í mælaborðinu ljós
með mynd af rjúkandi kaffibolla.
Í sjálfskipta bílnum er bakkgírinn
í tveim þrepum, en hann skiptir sér
upp þegar bakkað er hratt og langt.
Prufuaksturinn
Kaldur bíllinn var fljótur að hitna,
eftir gangsetningu vélar á meðan
gengið var hringinn í kringum bílinn
og sópaður snjórinn af honum var
kominn þokkalegur hiti inn í bílinn.
Með hitann á stýrinu og sætishitann
á var haldið af stað í bíltúr. Fyrst var
tekin langkeyrsluprufa til að skoða
eldsneytiseyðslu og samkvæmt
bæklingi er bíllinn að eyða 8,3
lítrum á hundraðið í blönduðum
akstri, á Reykjanesbrautinni var
aksturstölvan að segja mér að mín
eyðsla væri nálægt 7,7 lítrum á
hundraðið, en það sem kom mest á
óvart var lítið veghljóð inni í bílnum
á 90 km hraða. Samkvæmt minni
mælingu var hljóðstyrkurinn inni í
bílnum að mælast á bilinu 65–67db,
sem er óvenju lágt og bendir til að
bíllinn sé afar vel hljóðeinangraður.
Hins vegar gæti það hjálpað að
í bílnum er ný tegund mótorpúða
sem eru olíufylltir og eiga að gefa
minna hljóð og titring frá vél en
hefðbundnir mótorpúðar úr gúmmíi.
Aðeins einn mínus
Eins og þeir sem þekkja mín skrif
þá finnst mér að varadekkslausa
bíla ætti að banna, en þessi bíll
er varadekkslaus. Smá klór í
„bjargarbakkann“ er að bílnum
fylgir dekkjaviðgerðarsett sem á að
vera hægt að laga til bráðabirgða
dekk sem eru með allt að þriggja
sentímetra rifu og er meiningin
hjá Bílabúð Benna að kenna
væntanlegum kaupendum á
viðgerðarsettið.
Margir bílar eru með þannig
ljósabúnað að það þarf alltaf að
kveikja og slökkva ljósin til að fá
á bílana afturljósin, en SsangYong
Rexton er þannig að nóg er að
kveikja ljósin einu sinni og hafa
þau alltaf kveikt því þau slokkna
þegar bílnum er lokað þrátt fyrir að
mælaborðið segi manni að slökkva
ljósin þá er best að hunsa þessa
beiðni.
Plúsarnir eru svo margir að
þeir vega mun meira en þessi eini
varadekks mínus og spurning um
hreinlega að fjárfesta í aukadekki
og felgu.
SsangYong Rekston er fáanlegur
í þrem útgáfum til að byrja með á
verði frá 6.990.000 upp í 8.990.000
krónur. Hægt væri að skrifa mun
meira um þennan bíl, en sé áhugi
á meiri fróðleik þá bendi ég á
sölumenn Bílabúðar Benna eða á
vefsíðunni www.benni.is.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Undir lægsta punkt á óbreyttum bíl er 22,4 cm.
Aldrei áður hef ég ekið sjálfskiptum bíl áður sem er með tvo bakkhraðagíra,
en skiptingin er frá Benz og skiptir upp um gír þegar bakkað er hratt.
Í mörgum bílum koma mikil óhreinindi á listann þar sem gengið er um bílinn,
en á Rexton eru listarnir tveir og fyrir vikið helst bíllinn hreinn svo að maður
þarf ekki að eiga á hættu að óhreinka sig þegar stigið er út úr bílnum.
að vera í öllum bílum.
220 volta tengill er í bílnum, en til að fá straum í tengilinn verður að kveikja
á honum í mælaborðinu.
Óvenju lítill hávaði er inni í bílnum á
olíufylltum mótorpúðunum að hluta.
SsangYong Rexton kemur á mismunandi stærðum af felgum, en þessi er á 18 tommu felgum. Myndir / HLJ
Þyngd 2.049 kg
Hæð 1.825 mm
Breidd 1.960 mm
Lengd 4.850 mm
Eldsneytistankur 70 lítrar
Helstu mál og upplýsingar