Fréttablaðið - 09.05.2020, Síða 22

Fréttablaðið - 09.05.2020, Síða 22
ÞEGAR STAÐIRNIR LOKUÐU HÓFST MIKIL VINNA VIÐ ÞAÐ EITT AÐ LOKA. ÞAÐ ÞURFTI AÐ SETJA ALLT Á PÁSU, PASSA HRÁEFNIÐ OG VÍNIÐ, SÆKJA UM HITT OG ÞETTA SVO TÍMINN VAR VEL NÝTTUR. Þegar samkomubannið skall á lokuðum við stöðunum því við vild-um hlýða Víði og fylgja reglunum. Það var mikil óvissa með allt svo við ákváðum að bíða þar til okkar lausn kæmi og hún er klárlega sú að sameina krafta Fiskmarkaðarins og Grillmarkaðarins sem fer frábær- lega af stað,“ segir Hrefna Rósa sem jafnframt er ein af eigendum Skúla Craft bar. Hrefna og eiginmaður hennar, Björn Árnason, eiga tvö börn sem bæði ganga í Landakotsskóla þar sem hún segir samkomubannið hafa verið tæklað vel. „Við vorum svo heppin að þau gátu verið í skól- anum alla daga og héldu nánast alveg rútínu fyrir utan tómstundir. Svo fengum við mikla aðstoð frá foreldrum mínum sem eru bæði heilsuhraust. Sjálf hitti ég fólk alla daga vegna vinnunnar með tveggja metra millibili og talaði við vini á FaceTime svo ég var alveg góð félags- lega.“ Hrefna segir að þó henni hafi þótt einfaldara líf að mörgu leyti notalegt efist hún um að þannig muni það halda áfram. Hrefna hefur búið í miðbænum frá 14 ára aldri og segir það vissu- lega hafa verið undarlega tilfinn- ingu að sjá bæinn tóman. „Ég bjó á Laugaveginum þegar ég var 18 til 20 ára og fylgdist mjög vel með mannlífinu. Á veturna var lítið um túrista og þá var oft mjög fátt fólk á ferli á sunnudagskvöldum og þetta minnti mig dálítið á þann tíma. En svo var líka svo gaman þegar allt fór að opna hægt og rólega aftur og fólk byrjaði að mæta í fallega miðbæinn okkar á ný. Það er nefnilega svo gaman í bænum. Ég elska það.“ Skelfiskmarkaðurinn einstakur Undanfarin ár hafa veitingastaðir Hrefnu, Fiskmarkaðurinn og Grill- markaðurinn skilað töluverðum hagnaði og reksturinn verið í blóma en skemmst er þó að minnast þess að þriðji staðurinn Skelfiskmark- aðurinn náði stuttum líftíma og var lokað fyrir rétt rúmu ári síðan. Því hlýtur ástandið núna ofan í þær hremmingar að taka sinn toll. „Skelfiskmarkaðurinn var ein- stakt dæmi en þar kom upp mat- areitrun sem varð honum að falli, svo það er varla hægt að líkja því saman við þetta ástand sem við erum öll að takast á við núna. Allur heimurinn er saman í þessu ástandi og þetta hefur áhrif á svo marga, ekki bara okkur, svo við tökum þessu bara eins og þetta er,“ segir Hrefna Rósa ákveðin og er bjart- sýn á það sem koma skal. „Ég er bara mjög bjartsýn á framhaldið. Er ekki bara eina leiðin upp núna? Smit nánast hætt og fólk byrjað að kíkja út úr húsi.“ Atvinnurekendur hafa f lestir þurft að nota útsjónarsemi til að koma rekstrinum aftur af stað með þeim hömlum sem þó enn eru í gildi og er Hrefna og hennar fólk engin undantekning. Í vikunni færðist Fiskmarkaðurinn að hluta til inn á Grillmarkaðinn og verður rekst- urinn með því móti á næstunni. „Hagræðingin er mest fyrir gestina okkar, sem þurfa nú bara að koma á einn stað í staðinn fyrir tvo,“ segir Hrefna Rósa í léttum tón. Minnka daglegan startkostnað „Þessi daglegi startkostnaður telur líka svo mikið en með þessu móti náum við að hafa hann á einum stað. Það eru mörg smáatriði sem fólk veit ekki af eins og það að kveikja í grillinu kostar helling því við notum japönsk hágæða kol og núna þurfum við bara að kveikja upp í einu grilli. Alls konar svona atriði telja. Grillmarkaðurinn varð fyrir valinu þar sem hann er stærri en við ætlum að bjóða upp á sér- hannaðar veislur á Fiskmarkaðn- um. Það höfum við ekki getað gert áður og erum mjög spennt að fara út í þetta.“ Sett hefur verið upp Fiskmark- aðsstöð í eldhúsinu á Grillmark- aðnum þar sem starfsfólk Fisk- markaðarins vinnur. „Svo erum við búin að bæta við síðu í matseðilinn sem inniheldur bestu og vinsælustu rétti Fiskmarkaðarins. Með þessu náum við líka að stækka take-away seðilinn töluvert sem helst vel í hendur. Sushi, rif, kóngarækjur og hamborgari smellpassar alveg saman og matseðillinn er þannig jafnframt fjölbreyttari.“ Mikil vinna við lokanirnar Hrefna segir hennar fólk alls ekki hafa setið auðum höndum þó stað- irnir hafi lokað dyrum sínum fyrir viðskiptavinum þegar samkomu- bann var sett á. „Þegar staðirnir lokuðu hófst mikil vinna við það eitt að loka. Það þurfti að setja allt á pásu, passa hráefnið og vínið, sækja um hitt og þetta, svo tíminn var vel nýttur. Það eru margir sem spyrja mig einmitt hvað ég hafi verið að gera í fríinu á meðan það var lokað en þetta var ekki beint frí fyrir mig frekar en aðra atvinnurekendur að ég held.“ Hrefna segir jafnframt miklar pælingar hafa farið í að velta fyrir sér hvernig staðirnir myndu opna á ný. „Svo sáum við okkur fært að gera það 22. apríl þegar við náðum að skipta Grillmarkaðnum upp í nokkur hólf, eins og önnur fyrir- tæki hafa verið að gera. Það var æðislegt að sjá staðinn sinn aftur opinn og svo hafa allir dagar síðan verið vinna við að flytja Fiskmarkaðinn yfir með öllu sem því tilheyrir.“ Ætlunin er að vera með mismunandi þemu eftir dögum og þá fylgir afsláttur þem- anu, og eins hafa verið skipulagðir ýmsir viðburðir á næstunni. „Ég er mjög ánægð með þessa breytingu og hlakka til að gera fleiri spennandi hluti í kringum hana.“ Góð tilfinning að opna á ný Nú þegar hömlum samkomubanns hefur verið aflétt eru eigendur fyrirtækja að opna þau á ný. Hrefna Rósa Sætran er ein þeirra en hún á og rekur tvo veitingastaði og bar sem nú hafa verið opnaðir, en ekki eins og áður. Hrefna Rósa segir mikið sparast í daglegum startkostnaði með því að færa Fiskmarkaðinn inn á Grillmarkaðinn og er spennt fyrir möguleikunum sem skapast um leið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.