Fréttablaðið - 09.05.2020, Síða 31

Fréttablaðið - 09.05.2020, Síða 31
Þarmaflóran er mikilvæg fyrir geðheilsu og öflugt ónæmiskerfi. Í meltingarveginum lifa trilljónir baktería og eru flestar þeirra í ristlinum. Í daglegu tali köllum við þessar bakteríur þarmaflóru því þær samanstanda af meira en 1.000 tegundum og í ristlinum sinna þær ýmsum afar mikil­ vægum hlutverkum. Þær fram­ leiða m.a. vítamín, amínósýrur, stuttar fitusýrur og ýmis boðefni og ensím. Við þurfum því að hugsa vel um þær og passa að jafnvægi sé til staðar svo þær hugsi vel um okkur. Þarmaflóran ver okkur líka gegn óæskilegum örverum og hefur margs konar áhrif á heilsu okkar almennt, jafn andlega sem líkamlega. Veikindi vegna lífsstíls Þarmaflóran í venjulegri mann­ eskju inniheldur yfir þúsund mismunandi tegundir gerla og baktería. Jafnvægi þessara bakt­ ería getur auðveldlega raskast vegna veikinda, inntöku sýkla­ lyfja, mikillar kaffidrykkju og ýmissa lífsstílstengdra þátta eins og mikils álags eða streitu, neyslu næringarsnauðrar fæðu og fæðu sem er mikið unnin. Fjölmargir eru líka að borða á hlaupum og á óreglulegum tímum sem er ekki síður slæmt. Við þessar aðstæður raskast jafnvægi þarmaflórunnar og getur fólk þá farið að finna fyrir ýmsum óþægindum og jafnvel veikindi farið að gera vart við sig. Líkamlegir og andlegir kvillar Það er fjölmargt sem einkennir lélega þarmaflóru eða að hún sé í ójafnvægi. Rannsóknir síðari ára hafa rennt styrkum stoðum undir það hversu gríðarlega mikilvægt er að þarmaflóran okkar sé í góðu standi bæði hvað varðar líkamlega sem og andlega kvilla. Það kannast sennilega flestir við ýmiss konar ónot sem við tengjum beint við meltinguna. Það getur t.d. verið: n Uppþemba eftir máltíðir n Erfiðar hægðir n Vindverkir n Gyllinæð (tengist oft harðlífi) n Sveppasýkingar n Húðvandamál n Tengsl þarmaflóru og heilsunnar Þarmaflóran er stöðugt breytileg og er því stanslaust rannsökuð. Síðastliðin ár hafa menn verið að skoða þarmaflóru með tilliti til síþreytu og ýmissa andlegra kvilla. Í ljós hefur komið að þarma flóra þessara hópa er ekki eins og hjá þeim sem eru hraustir, sem gefur til kynna hversu mikilvæg þarmaflór­ an er. Að auki er stór hluti ónæmis­ kerfis okkar staðsettur í meltingar­ veginum og því er mjög mikilvægt að huga að heilbrigði þarmaflór­ unnar. Virkni og almennt heilbrigði meltingarvegarins ræðst meðal annars af samsetningu örveiru­ flóru í þarmaflórunni. Ein leið til þess að huga að heilbrigði melting­ arvegs er að taka inn mjólkursýru­ gerla á hverjum degi. Hefur þarmaflóran áhrif á þyngd? Rannsóknir gefa til kynna að nokkuð sterk tengsl séu á milli ástands þarmaflóru og líkams­ þyngdar. Í stuttu máli þá bendir allt til þess þarmaflóra fólks sem er grannvaxið sé önnur en hjá fólki í yfirvigt. Þetta gefur okkur vís­ bendingar um að fjöldi hitaeininga hafi ekki allt að segja um þyngd okkar, heldur hafi öflug og heil­ brigð þarmaflóra einnig mikið um það að segja. Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir og inntaka á öflugum mjólkur­ sýrugerlum geta örvað vöxt hag­ stæðra örvera í meltingarveginum og haft þannig jákvæð áhrif á líkamsþyngd okkar. Það er nefni­ lega ekki málið að telja hitaein­ ingarnar heldur skiptir höfuðmáli hversu góð upptaka næringarefna er og svo vinnsla líkamans á næringunni í þörmunum. Góðgerlar sem margfalda sig í þörmunum Prógastró Gull mjólkursýrugerl­ arnir eru afar öflugir, en í hverju hylki eru 15 milljarðar af gall­ og sýruþolnum gerlastofnum. Einn af þeim er L. acidophilus DDS®­1 en þetta er nafn á mjög áhrifaríkum gerlastofni sem marg­ faldar sig í þörmunum. L. acidop­ hilus DDS®­1 er talinn gagnlegur fyrir alla aldurshópa. Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. Þarmaflóran er mikilvæg heilsunni Öflug þarmaflóra er grunnurinn að öflugu ónæmiskerfi. Rannsóknir sýna að rekja megi ýmsa líkamlega sem og andlega kvilla til lélegrar þarmaflóru. Inntaka góðgerla getur skipt sköpum. Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir og öflugir mjólkursýrugerlar geta örvað vöxt hagstæðra örvera í meltingarveginum og haft jákvæð áhrif á líkamsþyngd. 2 mánaða skammtur Prógastró Gull er fæðu-bótarefni. Neysla fæðu-bótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilsusamleg lífernis. Þetta bætiefni inniheldur glúkósamín og kondtrótín súlfat en þessi tvö efni hafa reynst mörgum vel fyrir liðina. Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin (rosehips). C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks. Glucosamine & Chondroitin Complex Fæst í Lyf og Heilsu, Apótekaranum og flestum stórmörkuðum. Efni sem bæklunarlæknar mæla með Nú í bætiefnaformi FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 9 . M A Í 2 0 2 0
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.