Fréttablaðið - 09.05.2020, Side 31
Þarmaflóran er
mikilvæg fyrir
geðheilsu og öflugt
ónæmiskerfi.
Í meltingarveginum lifa trilljónir baktería og eru flestar þeirra í ristlinum. Í daglegu tali köllum
við þessar bakteríur þarmaflóru
því þær samanstanda af meira en
1.000 tegundum og í ristlinum
sinna þær ýmsum afar mikil
vægum hlutverkum. Þær fram
leiða m.a. vítamín, amínósýrur,
stuttar fitusýrur og ýmis boðefni
og ensím. Við þurfum því að hugsa
vel um þær og passa að jafnvægi
sé til staðar svo þær hugsi vel um
okkur. Þarmaflóran ver okkur
líka gegn óæskilegum örverum og
hefur margs konar áhrif á heilsu
okkar almennt, jafn andlega sem
líkamlega.
Veikindi vegna lífsstíls
Þarmaflóran í venjulegri mann
eskju inniheldur yfir þúsund
mismunandi tegundir gerla og
baktería. Jafnvægi þessara bakt
ería getur auðveldlega raskast
vegna veikinda, inntöku sýkla
lyfja, mikillar kaffidrykkju og
ýmissa lífsstílstengdra þátta eins
og mikils álags eða streitu, neyslu
næringarsnauðrar fæðu og fæðu
sem er mikið unnin. Fjölmargir
eru líka að borða á hlaupum og á
óreglulegum tímum sem er ekki
síður slæmt. Við þessar aðstæður
raskast jafnvægi þarmaflórunnar
og getur fólk þá farið að finna fyrir
ýmsum óþægindum og jafnvel
veikindi farið að gera vart við sig.
Líkamlegir og andlegir kvillar
Það er fjölmargt sem einkennir
lélega þarmaflóru eða að hún sé í
ójafnvægi. Rannsóknir síðari ára
hafa rennt styrkum stoðum undir
það hversu gríðarlega mikilvægt
er að þarmaflóran okkar sé í góðu
standi bæði hvað varðar líkamlega
sem og andlega kvilla. Það kannast
sennilega flestir við ýmiss konar
ónot sem við tengjum beint við
meltinguna. Það getur t.d. verið:
n Uppþemba eftir máltíðir
n Erfiðar hægðir
n Vindverkir
n Gyllinæð (tengist oft harðlífi)
n Sveppasýkingar
n Húðvandamál
n Tengsl þarmaflóru og
heilsunnar
Þarmaflóran er stöðugt breytileg
og er því stanslaust rannsökuð.
Síðastliðin ár hafa menn verið að
skoða þarmaflóru með tilliti til
síþreytu og ýmissa andlegra kvilla.
Í ljós hefur komið að þarma flóra
þessara hópa er ekki eins og hjá
þeim sem eru hraustir, sem gefur til
kynna hversu mikilvæg þarmaflór
an er. Að auki er stór hluti ónæmis
kerfis okkar staðsettur í meltingar
veginum og því er mjög mikilvægt
að huga að heilbrigði þarmaflór
unnar. Virkni og almennt heilbrigði
meltingarvegarins ræðst meðal
annars af samsetningu örveiru
flóru í þarmaflórunni. Ein leið til
þess að huga að heilbrigði melting
arvegs er að taka inn mjólkursýru
gerla á hverjum degi.
Hefur þarmaflóran
áhrif á þyngd?
Rannsóknir gefa til kynna að
nokkuð sterk tengsl séu á milli
ástands þarmaflóru og líkams
þyngdar. Í stuttu máli þá bendir
allt til þess þarmaflóra fólks sem
er grannvaxið sé önnur en hjá fólki
í yfirvigt. Þetta gefur okkur vís
bendingar um að fjöldi hitaeininga
hafi ekki allt að segja um þyngd
okkar, heldur hafi öflug og heil
brigð þarmaflóra einnig mikið um
það að segja.
Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir
og inntaka á öflugum mjólkur
sýrugerlum geta örvað vöxt hag
stæðra örvera í meltingarveginum
og haft þannig jákvæð áhrif á
líkamsþyngd okkar. Það er nefni
lega ekki málið að telja hitaein
ingarnar heldur skiptir höfuðmáli
hversu góð upptaka næringarefna
er og svo vinnsla líkamans á
næringunni í þörmunum.
Góðgerlar sem margfalda
sig í þörmunum
Prógastró Gull mjólkursýrugerl
arnir eru afar öflugir, en í hverju
hylki eru 15 milljarðar af gall og
sýruþolnum gerlastofnum.
Einn af þeim er L. acidophilus
DDS®1 en þetta er nafn á mjög
áhrifaríkum gerlastofni sem marg
faldar sig í þörmunum. L. acidop
hilus DDS®1 er talinn gagnlegur
fyrir alla aldurshópa.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsu-
búðir og heilsuhillur verslana.
Þarmaflóran er mikilvæg heilsunni
Öflug þarmaflóra er grunnurinn að öflugu ónæmiskerfi. Rannsóknir sýna að rekja megi ýmsa
líkamlega sem og andlega kvilla til lélegrar þarmaflóru. Inntaka góðgerla getur skipt sköpum.
Trefjaríkt fæði, gerjaðar afurðir og öflugir mjólkursýrugerlar geta örvað vöxt hagstæðra örvera í meltingarveginum og haft jákvæð áhrif á líkamsþyngd.
2 mánaða skammtur
Prógastró Gull er fæðu-bótarefni. Neysla fæðu-bótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilsusamleg lífernis.
Þetta bætiefni inniheldur glúkósamín og
kondtrótín súlfat en þessi tvö efni hafa
reynst mörgum vel fyrir liðina.
Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af
glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni
ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og
rósaldin (rosehips).
C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun
kollagens fyrir eðlilega starfsemi
brjósks.
Glucosamine
& Chondroitin
Complex
Fæst í Lyf og Heilsu, Apótekaranum og flestum stórmörkuðum.
Efni sem
bæklunarlæknar
mæla með
Nú í bætiefnaformi
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 9 . M A Í 2 0 2 0