Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 80

Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 80
Listaverkið Þessi mynd af Laugarneskirkju er eftir Sólveigu Tinnu Leifs- dóttur. Hún er fimm ára (alveg að verða sex) leikskólastúlka á Hofi. Henni þykir vænt um kirkjuna sína sem blasir við henni út um stofu- gluggann. Þaðan hefur hún líka gaman af að fylgjast með hröfn- unum sem eru oft á sveimi við kirkjuturninn. Brandarar „Þetta er nú meira ruglið,“ sagði Kata. „Hér stendur: fylgdu öllum rauðu línunum með blýanti án þess að fara yr aðra línu eða lya blýantinum frá blaðinu. Auðvitað er þetta ekki hægt,“ bætti hún við. „Það sér hver heilvita manneskja.“ En Lísaloppa var ekki eins viss. Hún rýndi í teikninguna og sagði svo. „Réttu mér blýant, ég held að það sé hægt að leysa þessa þraut.“ Konráð á ferð og ugi og félagar 403 Getur þú leyst þessa þraut? ? ? ? ?? Sandra Sif Samúelsdóttir er tólf ára, að verða þrettán á þessu ári. Hún er í sjöunda bekk Húsaskóla í Grafar- vogi og hefur upplifað sögulega tíma síðustu vikur, eins og heims- byggðin öll. En hvernig var náminu háttað? „Ég var oftast í skólanum annan hvern dag og lærði í heimatölvunni hina dagana. Við krakkarnir á eldra stiginu notuðum forrit sem heitir Google Classroom og kennarinn sendi inn vikuáætlun yfir allt sem við þurftum að gera. Svo útskýrði hann allt fyrir okkur þegar við vorum í skólanum og ég gat líka alltaf sent honum tölvupóst ef mig vantaði hjálp. Svo þetta gekk bara vel. Heldurðu að þú hafir lært eins mikið og ef þú hefðir verið í skól- anum? Kannski ekki alveg en við lærðum helling samt, nema í list- verkefnum og saumum en mamma er að kenna mér að prjóna. Varst þú ein heima á daginn? Bróðir minn var stundum heima líka en hann er yngri og var meira í skólanum en ég. Mamma er kenn- ari og hún var að vinna heima einn dag í viku og stundum tvo. Svo kom pabbi oft heim í hádeginu, ég var aldrei alein heilan dag. Ef mér leiddist fór ég bara út að hjóla eða fann mér eitthvað að gera. Svafstu til hádegis þegar þú varst heima? Ekki fram að hádegi, frekar svona til hálf tíu. Ertu í tónlist eða íþróttum þegar allt er eðlilegt? Ég æfi handbolta og þjálfarinn sendi inn á fésbókar- síðu foreldranna hvað við ættum að gera, það voru styrktaræfingar eins og armbeygjur og líka útihlaup. Hvernig var svo að byrja eðlilegt skólahald síðasta mánudag? Það var mjög gaman að fara aftur í skól- ann og hitta alla en það var pínu erf- itt fyrir mig að vakna klukkan sjö. Munt þú muna alltaf eftir COVID- tímabilinu? Ekki spurning. Það er líka verið að segja okkur að skrifa um það. Þó ég horfði ekki á fund- ina þá fylgdist ég með og spurði mömmu og pabba mikið um þetta. Mér fannst sniðugt hvernig regl- urnar voru í búðum og svoleiðis. Fannst þú fyrir kvíða? Nei, ég held ekki. Ég var aldrei beint hrædd. Hvað ætlarðu að gera í sumar? Fara í sveitina og í útilegu og sumar- bústað. Verst að komast ekki í sauð- burð. Ef mér leiddist fór ég út að hjóla MAMMA ER KENNARI OG HÚN VAR AÐ VINNA HEIMA EINN DAG Í VIKU OG STUNDUM TVO. SVO KOM PABBI OFT HEIM Í HÁDEGINU, ÉG VAR ALDREI ALEIN HEILAN DAG. Sandra Sif Samúelsdóttir er flink með bolta enda æfir hún handbolta í nýju handboltahöllinni í Grafarvoginum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Af hverju fór kjúklingur- inn yfir götuna? Til að komast yfir götuna. Af hverju fór bóndinn yfir götuna? Til að leita að kjúklingnum sínum. Af hverju fór risaeðlan yfir götuna? Það var fyrir tíma kjúklingsins. Af hverju fór tyggjóið yfir götuna? Það var fast við fótinn á kjúklingnum. Af hverju fór froskurinn yfir götuna? Einhver hrekkjalómur hafði límt hann fastan við kjúkling- inn. Af hverju fór apinn yfir götuna? Það var banani hinum megin. 9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.