Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 84

Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 84
ÞEGAR ÉG ER EINN HEIMA Á ÉG TIL AÐ TAKA FRAM GÍTAR OG RAULA EITTHVAÐ YFIR EINFALDAN HLJÓMAGANG OG ÞÁ VERÐUR KANNSKI TIL LAG.Guðmundur A ndr i Thorsson sy ng u r eigin ljóð við frum-samin lög sín á g e i s l a d i s k n u m Ót r yg g er ög u r- stundin. „Þegar ég var krakki, var kannski einn heima þá tók ég stundum í rælni fram ljóðabækur gömlu skáld- anna sem mamma hafði bent mér á, Pál Ólafsson, Þorstein Erlingsson, Kristján fjallaskáld – þjóðskáldin. Ég las ekki bara bækurnar heldur söng þau, söng upp úr þeim og upp úr mér, svona bulllög. Kannski er ég bara að gera þetta aftur, þú veist, tvisvar verður gamall maður barn. Þegar ég er einn heima á ég til að taka fram gítar og raula eitt- hvað yfir einfaldan hljómagang og þá verður kannski til lag. Svo hafa lögin safnast upp,“ segir Guð- mundur Andri. Sungið með Loga Guðmundur Andri er enginn nýgræðingur á tónlistarsviðinu. Hann hefur lengi verið söngvari hljómsveitarinnar Spaðar. Auk þess mynda hann og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, tví- eykið Þungir jafnaðarmenn og hafa komið fram hjá Samfylkingunni og sungið eigin útfærslu á tónlist Abba við góðar undirtektir. Lögin á geisladisknum voru hljóðrituð á síðasta ári. „Bassa- leikarinn í Spöðum, Guðmundur Ingólfsson, sem er snillingur og valmenni, tók lögin upp og kom mynd á þetta. Hann á heiðurinn af því hvernig lögin hljóma. Ég átti svo þessar upptökur og hvað átti að gera við þær? Ég ráðgaðist við Aðalstein Ásberg Sigurðsson hjá Dimmu og hann ákvað að gefa þetta bara út.“ Heiti disksins Ótrygg er ögur- stundin var upphaflega titill á þýð- ingu Thors Vilhjálmssonar, föður Guðmundar Andra, á leikritinu A Delicate Balance eftir Edward Albee. Þetta er fyrsta sólóplata Guð- mundar Andra. Beðinn um að lýsa Tregafull og fremur angurvær lög skáldsins Guðmundur Andri Thorsson sendir frá sér geisladisk þar sem hann syngur eigin ljóð við frumsamin lög. Hann er ekki að skrifa um þessar mundir en finnst líklegt að hann eigi eftir að skrifa sínar bestu bækur. Kannski er ég bara að gera þetta aftur, segir Guðmundur Andri Thorsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is lögunum segir hann: „Lögin eru öll hæg, tregafull og angurvær en það er ekki endilega vegna þess að ég sé svona tregafullur heldur allt eins vegna hins, að ég spila svo hægt á gítar.“ Hann kemur víða við í ljóðum sínum sem bera heiti eins og Þú ert hér, Ekki vera að gráta elskan mín og Tíminn og tekrúsin. Hann syngur á disknum hið sígilda ljóð Þorsteins Erlingssonar, Fyrr var oft í koti kátt, sem hann samdi nýtt lag við. „Lag mitt er í moll og það er tregafullt. Þarna er nefnilega verið að fjalla um það að „fyrr“ var oft í koti kátt, það er ekki lengur kátt hjá þeim sem þar talar.“ Það besta er eftir Guðmundur Andri gegnir nú anna- sömu starfi þingmanns en hann er einnig höfundur nokkurra skáld- sagna sem hafa hlotið afar góðar viðtökur. Spurður hvort hann sé að skrifa segir Guðmundur Andri svo ekki vera. Spurður hvort hann hafi ekki þörf fyrir það svarar hann: „Jú, en til þess þarf maður ákveðinn frið í sálinni og einbeitingu og inn- stillingu sem ég hef ekki núna og hef ekki haft um hríð. Áður en ég fór á þingið hafði ég ekkert skrifað um tíma. Það er talað um að andinn komi yfir fólk, en stundum yfirgefur hann fólk, og þá er bara gott að vera laus við hann.“ En mun andinn ekki koma aftur? „Alveg áreiðanlega. Ég held að ég eigi eftir að skrifa mínar bestu bækur eftir sjötugt,“ segir hann. „Ég er kominn með nokkrar hugmyndir og eina prýðilega sem ég ætla mér að skrifa næst.“ ERTU AÐ LEITA AÐ RYKGRÍMUM? Nældu þér í pakka með 20% afslætti Notaðu kóðann: KN20 á vefsíðu vefsjoppan.is AFSLÁTTARKÓÐI: KN20 10 STK. 5.520 KR. M.AFSL KN95 - FFP2 ≥95% filtering á smáögnum í andrúmslofti Prófunarefni: NaCL VEFSJOPPAN.ISSJOPPAN@VEFSJOPPAN.IS KN-95 FFP2 9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.