Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 92
Lífið í
vikunni
03.05.20-
09.05.20
ÉG TEL MIG HAFA
FERÐAST TÖLUVERT
EN ÉG ER SAMT ALLTAF AÐ
UPPGÖTVA EITTHVAÐ NÝTT.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
MIKILVÆGT AÐ VERA
SKAPANDI
Elín Hall gaf út lagið Augun mín
í byrjun mánaðar. Hún fór með
annað aðalhlutverkið í Lof mér að
falla og stundar í dag nám í leiklist
við Listaháskólann.
ÚR ÓFÆRÐ TIL AMAZON
Leikstjórinn Ugla Hauksdóttir fékk
stóra tækifærið í kjölfar sjónvarps-
þáttarins Ófærðar og hefur nóg að
gera í Bandaríkjunum. Hún heims-
frumsýnir stuttmynd á Spáni um
miðjan júní.
KYNNTUST Á BÍLASÖLU
Helgi Jean og Hjálmar Örn halda
úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Hæ
hæ – Ævintýri Helga og Hjálmars.
Á fimmtudaginn voru þeir með
sýningu í beinni, en þeir kynntust á
bílasölunni Brimborg fyrir 13 árum.
SPENNANDI VISTASKIPTI
Tannhrottarnir Karíus og Baktus
snúa aftur eftir samkomubann á
stærra sviði í Hörpu í dag og bíða
spenntir eftir að fá þar meira pláss
til að höggva holur í tennurnar á
Jens fyrir framan enn fleiri krakka.
Pælingin er að reyna að sýna lit með því að hvetja Íslendinga til að ferðast innanlands í ár og skoða og upplifa þá f lottu ferðaþjónustu
sem búið er að byggja upp á síðustu
árum,“ segir Katrín Magnúsdóttir
um verkefnið Styrkjum Ísland, sem
ætlað er að dæla íslensku blóði í
ferðaþjónustuna með gjafabréfum.
„Þegar faraldurinn byrjaði var
strax ljóst að tölurnar voru sláandi
og það versta í svona stöðu er að
gera ekki neitt, þannig að það er
ekki hægt að sitja aðgerðalaus, og
vonast eftir kraftaverki.“
Katrín er rekstrarstjóri hugbún-
aðarfyrirtækisins Godo sem heldur
utan um bókanir f lestra gististaða
og hótela á Íslandi þannig að á þeim
bænum rann fólki blóðið til skyld-
unnar.
„Þegar við horfðum á heilu
mánuðina þurrkast út hreinlega
beint fyrir framan nefið á okkur
ákváðum við að gefa vinnu okkar í
þetta verkefni og hjálpa þannig við-
skiptavinum okkar, fyrirtækjum,
fjölskyldum og einstaklingum sem
starfa í ferðaþjónustu um allt land,“
segir Katrín.
Ferðafrelsi
Grunnhugmyndin að baki átakinu
er gera fyrirtækjum og einstakling-
um auðvelt að kaupa einnar nætur
gistingu fyrir tvo með gjafabréfi
sem gildir á fjölmörgum gististöð-
um um land allt.
Þótt átakið sé rétt nýbyrjað segir
Katrín tilvonandi ferðalanga hafa
tekið því vonum framar, rétt eins
og mikill fjöldi ferðaþjónustufyrir-
tækja sem vill taka þátt.
„Við finnum mikla ánægju með
þetta framtak okkar,“ segir hún og
bendir á að eftir því sem fleiri taki
þátt verði það vitaskuld öf lugra.
„Það er ljóst að margir gististaðir
eru að bjóða upp á verð sem er tölu-
vert ódýrara en gengur og gerist og
virkilega ánægjulegt að sjá hvað
margir eru tilbúnir til að leggja sitt
af mörkum. Handhafinn ræður
síðan hvar og hvenær hann nýtir
bréfið þannig að ef þú ætlar að elta
veðrið í sumar geturðu farið í allar
áttir.“
Í allar áttir
„Við björgum ekki íslenskri ferða-
þjónustu ein og óstudd, en við vild-
um gera eitthvað til þess að hvetja
Íslendinga til að ferðast innanlands
og þótt við komum ekki í staðinn
fyrir þær þúsundir ferðamanna sem
hafa verið hérna þá er það okkar að
reyna að halda lífinu í þessu.“
Katrín er sjálf í startholunum, full
eftirvæntingar, enda væri hún einn-
ig á leiðinni út á land þótt allt væri
eins og vera ber. „Ég hef þá reglu að
ferðast helst ekki erlendis á sumrin
og geri það frekar á öðrum árstíma,“
segir hún en heldur því til haga að
Ísland sé þó ekki síður spennandi á
veturna en sumrin.
Allt landið er undir þegar Katrín
ferðast þótt aðdráttaraf lið sé
óneitanlega mest úr einni átt. „Ég
á ættir að rekja í Skagafjörð þannig
að einhvern veginn enda ég nú alltaf
þar. Allir vegir liggja þangað en mér
finnst í rauninni rosalega gaman að
ferðast bara hvert sem er,“ segir hún
og nefnir til dæmis Vestfirðina og
hálendið yfirleitt.
„Það er svo mikið í gangi alls stað-
ar og ég held að margir geri sér ekki
grein fyrir uppbyggingunni sem
orðið hefur í gistingu og þjónustu
á síðustu árum. Það ert svo margt
í boði hérna heima sem maður veit
ekki af. Ég tel mig hafa ferðast tölu-
vert en ég er samt alltaf að uppgötva
eitthvað nýtt.“ toti@frettabladid.is
Blóðgjöf í gjafabréfi
Starfsfólk Godo sá heilu mánuðina þurrkast út úr bókunarkerfum
viðskiptavina sinna og brá skjótt við með átakinu Styrkjum Ísland.
Katrín og samstarfsfólk hjá Godo gefst ekki upp þótt á móti blási í ferðaþjónustunni sem þau sérhæfa sig í, því þau
eru þegar byrjuð að smala Íslendingum saman í ferðalög um landið á vefnum styrkjumisland.is. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HOUSTON
hornsófi
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMELLTU Á VÖRU OG
ÞÚ FERÐ BEINT INN Í
VEFVERSLUN
DORMA.IS
SUMAR
tilboðin
Sumarið er
komið í DORMA
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
Zone og Affari og smávara
2-11 | RÚM 12–23 | Mjúkv
ara og dúnn 24–27 | Stólar
28–29 | Sófar 30–37 | Sve
fnsófar 38–39
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Sumarið er komið í DORMA
Verslaðu á dorma.is
Fallegur hornsófi í Houston línunni. Sófinn fæst hægri eða vinstri
(horn ófæranlegt) í tveimur litum. Armar eru meðalgrannir og
sófinn frekar í nettara lagi. Houston passar í flest rými bæði hvað
varðar stærð og stíl — sem er látlaus og glæsilegur. Seta og bak
sófanna eru lausar pullur sem sitja þó vel og renna ekki. Innra byrði
er úr endingargóðum, kaldpressuðum svampi, þá trefjafyllingu og
loks mjúku yfirlagi. Fætur sófanna eru frekar grannir en sterkir úr
svörtum viði. Houston hornsófi er nettur en samt er svo þægilegur.
*Bonded leður (leðurblanda) er blanda af ekta leðri og gervileðri.
Um þriðjungur áklæðisins í Houston er ekta leður sem er mun
hærra hlutfall en algengt er. Stærð: 270 x 210 x 85 cm
Fullt verð: 229.990 kr.
20%
AFSLÁTTUR
SUMAR
TILBOÐ
Aðeins 183.920 kr.
Tveir litir, brúnn og
koníaksbrúnn, hægri eða
vinstri tunga
9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð