Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 30

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 30
Frá ritstióra: I BRENNIDEPLI Yfir sumartímann er ævinlega viss værð sólar og sumaryls yfir flestu fólki og rólegra um að vera hér á skrifstofum Öryrkjabandalagsins, en þegar sú önn rikir sem almennt er annars. Til að fyrirbyggja misskilning, þá er kyrrðin þó oftlega rofin af hvers konar erindum, alls konar vandamál- um af ólíklegasta tagi. Margirhrökkva við, þegar tryggingabætur breytast - lækka vegna hinnar árlegu endurskoð- unar hjá Tryggingastofnun ríkisins, þegar skattframtöl vegna tekna síðasta árs liggja ljós fyrir. Mér þykir ætíð á það skorta að skýring fylgi, svo hver og einn geti lesið út úr sinni breytingu ástæðuna, sem oftast er auðskilin þeg- ar að er gáð. Fyrir stofnunina og um- boð hennar yrði um verulegan verka- sparnað að ræða og margur misskiln- ingur mundi aldrei verða til. Þessu hefi ég komið á framfæri við rétta aðila og árétta það hér. Húsnæðismálin - vandamál vanda- málanna - segja til sín með vaxandi þunga þegar vetur nálgast og hausthrollur kvíðans fer um þá fjölmörgu sem enn bíða úrlausnar. Eftir sérstöku átaki í þá veru er vissulega beðið, því þrátt fyrir lottó- íbúðirnar, sem ævinlega eru að bætast við, lengist biðlistinn og lágmark er að þeirri þróun verði snúið við með markvissu átaki stjómvalda, t.d. fimm ára áætlun um 50 íbúðir árlega fyrir fatlaða. Þá færi máske að rofa verulega til. Þegar þess er gætt að biðlistar svæðisstjóma sýna ótrúlega krefjandi úrbótaþörf alltof margra, er dagljóst að ekki dugir annað en taka duglega til hendi og það blátt áfram verða stjórn- völd að gera. En þá er komið að hinu árlega haustverkefni okkar hjá Öryrkja- bandalagi íslands að fylgjast með fjárlagagerð og fylgja eftir af alefli auknum fjárveitingum til málefna fatlaðra. Eg sagði reyndar auknum - því hversu báglega sem menn bera sig og berja sér á brjóst og segja ríkis- kassann illa kominn, þá eru ein- faldlega þeir hlutir til sem hafa verið þannig á eftir um ótalin ár til baka, að þeir verða að fá aukningu ef ekki á illa að fara - ekki síst fyrir samfélaginu sjálfu. En að húsnæðismálum aftur. Á liðnu sumri var m.a. í kjölfar samninga sl. vors svo og lagasetningar og samn- inga þar um, tekin ákvörðun um láns- úthlutun til 700 íbúða á félagslegum grundvelli næstu tvö ár. Sérmál er það hversu hrapallega hallaði á lands- byggðina þar og má þó segja að oft hafi verið þörf en nú nauðsyn að rétta fólki þar örvandi húsnæðishönd. Hitt atriðið snertir okkur beint og óbeint, sem erum að snúast í húsnæðis- málum öryrkja og berum úrlausn þess vanda fyrir brjósti. I þessa úthlutun vantaði allt sem telja mætti félagslegt sérátak í þágu fatlaðra, þó ugglaust muni einhverjir fatlaðir njóta þessarar úthlutunar og raunar vitað að svo verður, en þar koma þá aðilar eins og sér í lagi Öryrkjabandalagið inn í myndina. En fyrst horfið er að hauststörfum út á við, er hollt að huga einnig að málum inn á við, því framundan er þríheilög helgi - dagur fatlaðra - ráð- stefna Þroskahjálpar og Öryrkja- bandalagsins sameiginlega - og svo aðalfundur Öryrkjabandalagsins. Frá því öllu er greint annars staðar í Fréttabréfinu, en vissulega skal það vonað að þessi þríheilagi viðburður verði til þess að skila okkur eitthvað áleiðis í þessari brýnu baráttu, sem ætíð kallar og knýr á. Lagagrunnur Öryrkjabandalags Islands hefur reynst farsæll og eftir 30

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.