Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 4
Skyggnst á bak við
Lottóhattinn
Rætt við Vilhjálm B. Vilhjálmsson framkvæmdastjóra Lottósins,
• • /
nýkjörinn formann Reykjavíkurdeildar LHS, fyrrverandi formann OBI -
og sterkan málsvara heyrnleysingja.
Lottóhatturinn geymir sitt-
hvað forvitnilegt annað
en vinninga. Að baki
stendur sá sem “sótti lottóið” og
heldur um stjórnvölinn. Vilhjálmur
tekur á móti mér á skrifstofu sinni
hjá Islenskri getspá. Handtakið er
fast, maðurinn þéttur á velli, traust-
vekjandi, enda víða kjörinn til for-
ystu.
Innandyra hjá Lottóinu er ekki
óhóf, þótt ætla mætti að fjármagn
væri til slíkra hluta. Bláir og hvítir
litir, ljóst beiki. Hvorki palesander
né dýr málverk. Aðeins plaggat með
Lottóhattinum fræga, sem fær
margan til að opna budduna.
Er lífið ekki eitt allsherjar lottó?
Stórir og litlir vinningar. Allir fá
sinn skerf. Spurningin er
alltaf að vinna sem best úr
því sem lífið úthlutar.
A meðan vinningstöl-
urnar hoppa á skjánum,
og menn bíða í ofvæni eftir
þeim stóra, - vita fæstir til
hvers leikurinn er gerður,
hvernig stórum hluta
ágóðans er varið.
“Eg sé ekki bjargráð
öryrkjans sem á sér engan
málsvara, skortir baráttu-
þrek, er hundinn við hjóla-
stól eða getur ekki staðið
fyrir sínu máli. Staða
Öryrkjabandalagsins
hefur gjörbreyst við að fá
fastan fjárhagsgrundvöll.
Lottóið er ótvíræð nauð-
syn fyrir samtökin.”
Þetta segir sá maður
sem gjörbreytti fjárhags-
stöðu Öryrkjabanda-
lagsins, og er málsvari
þeirra sem eiga erfitt með
að standa fyrir sínu máli -
Vilhjálmur á tvo heyrnarlausa
syni.
r það rétt, Vilhjálmur, að þú
hafir fundið lottóið úti í
Bandaríkjunum og komið með það
hingað?
“A vissan hátt má segja það,” segir
Vilhjálmur sem vill ekki gera of mikið
úr sínum hlut. “Eg var í einkaerindum
í Bandaríkjunum, þegar húsbóndinn
á heimilinu þurfti að skreppa út í búð
- til að kaupa lottómiða! Eg fór með
honum og keypti líka miða. Hann
útskýrði tilgang lottósins fyrir mér, og
þarna sá ég í fyrsta sinn tölurnar
dregnar út í sjónvarpinu. A leiðinni
heim í flugvélinni fór ég að hugsa um,
að þetta gæti verið eitthvað fyrir
Öryrkjabandalagið.
Heima færði ég þetta í tal við Odd
Ólafsson, þá 75 ára, en síungan í anda
eins og alltaf. Hann sagði strax: “Þú
verður að athuga þetta betur og fara
sem fyrst aftur til-Banda-ríkjanna.”
Hann var fljótur að sjá að þetta gæti
verið góð fjáröflunarleið. Hjá honum
var ekkert hik, þótt hér væri um
algjöra nýjung að ræða. Oddur hafði
síðan samband við íslenska sendiráðið
í Washington, sem kom okkur í tengsl
við rétta aðila.”
Vilhjálmur segir að deilt hafi verið
um það á Alþingi, hvort leyfa ætti lott-
óið. “Á þeim tíma hafði Iþróttasam-
band Islands einkaleyfi á talnaget-
raunum, en Öryrkjabandalagið sótti
um rekstur á bókstafagetraun.
Þegar Steingrímur Hermannsson
þáverandi forsætisráðherra
hafði lagt áherslu á að þessi
stóru samtök hefðu samstarf
um reksturinn, reyndist
Islensk getspá vera með
fyrsta beinlínutengda lottóið
í Evrópu.”
- Hvert er eignarhlutfall
Öryrkjabandalagsins í
lottóinu?
“Öryrkjabandalag Is-
lands á 40%, íþrótta- og
Ólympíusamband Islands
46.67% og Ungmennafélag
íslands 13.33%. Þessir þrír
aðilar eiga og reka lottóið
sem er einnig með Víkinga-
lottóið og Jóker. Islensk
getspá er með 220 sölustaði
út um allt land. Lottóið hefur
skilað 3.8 milljarða hagnaði
sem er greiddur beint til
eignaraðila. Þar af hefur 1.5
milljarður runnið til Ör-
yrkjabandalagsins. Islensk
getspá er nú grundvöllur
fyrir starfsemi ÖBI eins og
4