Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 16
„Viljinn
til að sigra”
Fimleikakonan Sang Lan getur kannski aldrei gengið aftur,
en hún trúir því af öllu hjarta að lífið hafi óteljandi möguleika
Ahorfendurnir voru allir
brosandi þegar Celine Dion
söng síðustu línurnar úr
lokalagi kvikmyndarinnar Titanic:
„My Heart Will Go On.” En sýningin
hennar tveimur vikum áður var ekki
endurtekningin af
hennarbestu sýn-
óundirbúin sýn-
ing í sjúkraher-
bergi á sjúkrahúsi
í New York, þar
sem söngvarinn
heiðraði Sang
Lan, kínversku
fimleikastúlkuna sem lamaðist 21.
Ingólfur Örn
Birgisson
ingum.
Þetta var
júlí 1997 eftir hrikalegt fall á Góð-
gerðaleikunum. Heimsóknin gerði
engin læknisfræðileg kraftaverk, en
hún gladdi Sang. „Þegar hún (Celine
Dion) fer til Hong Kong á næsta ári
mun ég finna leið til að ganga, ef það
er það sem þarf’, sagði hin harð-
ákveðna 17 ára stúlka í þýðingu
túlksins.
Stjörnuheimsóknin var einstakt
augnablik fyrir Sang, þar sem líf
hennar er talið í klukkutímum í lang-
dregnum líkamlegum æfingum til að
koma lífi hennar í eðlilegt horf á ný.
Strax eftir fallið mikla gat Sang ekki
einu sinni hreyft hendurnar. I dag
hafa læknar litla von um að hún fái
nokkra tilfinningu fyrir neðan brjóst-
kassann, þeir segja að það sé lfklegt.
Hún hefur aukið styrkinn í hand-
leggjum, öxlum og hálsi, henni tekst
núna með smáhjálp að borða, fara í
bað, klæða sig og ferðast um á sér-
búnum hjólastól. „Sumar hreyfingar
eru erfiðar,” segir Sang, en járnagi
og vilji hafa hjálpað henni til að
verða kínverskur meistari í fim-
„Hún sagði að ég væri mjög sterk,” segir Sang (með Celine Dion).
leikum 1997. „En,” bætti hún við
með litlu brosi, „fimleikar eru erfið
íþrótt.”
Heilsusamlegt líferni, sem
byrjaði 10 dögum eftir slysið,
byrjar klukkan 9 fyrir hádegi, með
tíma í sjúkraþjálfunardeildinni á
Mount Sinai sjúkrahúsinu og er til
klukkan 16:30. Iðjuþjálfinn Allison
Gurwitz, þjálfar Sang í hversdags-
legum aðgerðum, eins og að bursta
hárið á sér og að klæða sig. Til að
hindra að hún fái legusár, kennir
sjúkraþjálfarinn henni að velta sér til
hliðanna, svo hún geti snúið sér sjálf.
„Ef hún getur það ekki í fyrstu til-
raun, reynir hún aftur og aftur,” segir
sjúkraþjálfarinn. „Hún virðist ekki
kunna að gefast upp.”
Einn af hennar mestu sigrum er
að geta borðað sjálf. Jafnvel þótt hún
hafi litla tilfinningu í fingrunum og
geti ekki ennþá gripið um búsáhöld,
hefur hún fengið spelku sem gerir
henni kleift að halda utan um skeið,
stinga henni í matinn og færa hana
að munninum. „I byrjun var ég mjög
klaufsk við að borða,” segir Sang,
,,en mér gengur betur og betur eftir
að ég miðaði eitt sinn á nefið.” Sami
útbúnaður gerir henni kleift að bursta
í sér tennurnar, velja númer á síma
og mála með pensli.
Þrátt fyrir martraðir skömmu eftir
slysið hennar, þar sem Sang fannst
hún hrópa nafn á kínverskri fim-
leikakonu sem lamaðist í svipuðu
slysi fyrir fjórum árum, hefur leiðin
til baka verið léttari fyrir hana vegna
óbugandi léttleika hennar.
„Ekkert virðist geta bugað hana,”
segir Alice Lee, 15 ára gamall sjálf-
boðaliði sem les fyrir hana bíóaug-
lýsingar og lakkar neglurnar á henni.
Aðstoðin frá fjölskyldu hennar,
vinum og almenningi - ásamt
New York borg og Góðgerðaleik-
unum hefur skilað nú þegar 70.000
dollurum eða 4.830.000.000 krónum
til að hjálpa henni með húsnæði, mat
16