Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 39

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 39
sagði alltof mikið um að fólk héldi að HIV smit væri ekkert mál eftir að lyfin komu. Þau væru vissulega mikil- væg, en margir þola þau ekki, áfengi og fíkniefni hindruðu notkun þeirra. Hún ræddi svo ástand fólks sem smitaðist, lýsti þeim ótta og angist sem í kjöl- farið fylgdi, hugsanir um dauð- ann mjög áberandi. Aðstand- endur væru afar mikilvægir í þessum hremmingum öllum. 1 mestri hættu nú eru fíkni- efnaneytendur, nefndi aðra ágættuhópa s.s. homma, atvinnulausa, heimilislausa. Hún sagði að ekki væri nógu haldgóð þekking til staðar varðandi öruggt kynlíf og notkun getnaðarvarna hvergi nærri nógu almenn. Kynnti rannsóknarniðurstöður úr evr- ópskri könnun. Tók ólík viðhorf og viðbrögð í Hollandi og Bretlandi sem dæmi. 75% notuðu smokka í Hollandi, 35% í Bretlandi. Nefndi ástæður sem lík- legastar væru: meiri samskiptafæmi og innileiki í Hollandi, minna rætt við foreldra í Bretlandi, kynfræðsla byrjar fyrr í Hollandi. Meiri nánd almennt milli unglinga og foreldra, öðruvísi fjölskyldustefna. Allt þetta bæri okkur einnig að skoða og huga að hér. Már Kristjánsson læknir ræddi viðhorf læknis. Hann minnti á vonleysið sem ríkti í byrjun starfs- ferils hans, dauðinn á næsta leiti. Vegna framfaranna er meiri bjartsýni í dag. Viðhorf samfélagsins önnur og fordómafull afstaða miklu meiri þá, úr fordómum hefur dregið. Lýsti inn í lyfjameðferð fyrr og nú og minnti á hve tækninni fleygði ört fram. Otvíræðir ávinningar hjá mörgum m.a. farið aftur að stunda vinnu. Bætt veirugreiningartækni haldist í hendur við nýju lyfin. Ný tækni enn við sjónarrönd, gef- ur nýja möguleika, meiri von. Dýr væri tæknin og meiri næmni í henni en það fjármagn skilaði sér vel til baka. En hvað sem þessu liði mættu menn ekki gleyma því hve margir ættu um sárt að binda vegna afleiðinga alnæmis, en bjartsýnin ætti þó að vera í fyrirrúmi. essu næst flutti Hanna María Karlsdóttir leikkona kveðju móður - Ólafar Markúsdóttur. Hún lýsti ferlinu á næman og áhrifaríkan hátt, viðbrögðum unglingsins, við- brögðum fjölskyldunnar sem sýnt hefði mikinn skilning. Þó hann væri nokkuð hraustur fyrstu árin heltók skelfilegur ótti hann við hið ókomna. Svo fór að halla undan fæti, fylgi- fiskar sögðu til sín, ótrúlega margar innlagnir á Sjúkrahús Reykjavíkur, þar sem starfaði frábært fagfólk. Svo komu nýju lyfin, sem ekki væru happaþrenna fyrir alla og dygðu honum ekki. Það koma góðir dagar og dýrmætir, nánd þeirra mæðgina orðið meiri og bænin hollt haldreipi. Læknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefði hvatt hann til að gefast aldrei upp, enda ætti hann vonina enn. Hún kvaðst þó hvekkt á löðrungum lífsins, en þakkaði dagana sem gefnir væru. Segið þið strax allt það fallega sem þið ætlið og eigið að segja, voru í raun lokaorð Ólafar. Ragnheiður málþingsstjóri las um Job, mæðu hans og þjáningar, mis- munandi líf hans sem ríks eða snauðs nranns. Færði þessa fornu litlu frá- sögn yfir á nútímamanninn. ildur Helgadóttir hjúkrunar- fræðingur nefndi erindi sitt: Alnæmi - hugur og hönd. Rifjaði upp hversu margt hefði gerst á 10 árum, en hún starfar einmitt á deild fyrir alnæmissmitaða. Þekking öll aukist gífurlega. Fólk var ótrúlega þröngsýnt enda voru spárnar hrikalegar. Hún kvað hin ábyrgðarfullu viðbrögð homma hafa skipt mjögmiklu. Ikringum 1990var ástandið verst og aðstaða þeirra skelfileg sem aðeins biðu dauða síns. Þó mikið veikir væru sýndu þeir ótrúlega mikil og góð viðbrögð, viðhorf þeirra allt sýndi lífsvon. Myndin í dag ólíkt betri, vonin meiri, þekkingin aukist, meira um fyrirbyggjandi að- gerðir. Muna þyrfti að hér væri um manneskjur að tefla, ekki sjúkdómstilfelli. Einar Þór Jónsson sagði eigin sögu. Hann kvaðst tala sem einn úr jákvæða hópnum, hefði aldrei dottið það í hug fyrir 10 árum að hann stæði hér sprelllifandi í dag. Hjá jákvæða hópnum hefði sjálfstyrkingin skipt mestu, það að tala í hvern annan kjark, námskeiðin verið afar dýrmæt. Erfiðast væri að halda hinum and- legaþrótti og sjálfsvirðingunni. Hann kvað sárvanta fagfólk frótt um HIV jákvæða. Norrænt samstarf hefði miklu skilað og þátttaka okkar þar góð. Hann kvað stjórnvöld á hinum Norðurlöndunum sýna betri skilning á félagslegu jafnrétti en hér. Aður voru aðstæður þær að um það eitt var að gera að halda í líftóruna, nú að halda í lífið og njóta þess. Margir og miklir harmleikir hefðu hins vegar gerst, en þar hefðu einnig komið í ljós æðru- leysi, kjarkur og styrkur. Ingi Rafn Hauksson þakkaði mönnum svo fyrir komuna, en þarna munu alls 90 manns hafa verið saman komnir. Alnæmissamtökin gáfu út mynd- arlegt afmælisblað af Rauða borðan- um, minntust svo 1. des. og 5. des. - afmælisdagsins myndarlega. Ný von, nýtt líf mætti vera merki dagsins hjá þessum ágætu samtökum sem Öryrkjabandalagið árnar allra heilla í sínu þarfa starfi og krefjandi um leið. Megi hinum erfiðu verkefnum fækka sem allra mest. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.