Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 18

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 18
Lilja Þórhallsdóttir daufblindraráðgjafi: Daufblindrafélag Islands Daufblindrafélag íslands var stofnað 25. mars 1994. Tilgangur þess er að vinna að hvers konar menningar- og hags- munamálum daufblindra. í félaginu eru 32 félagar en samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið á Norður- löndum ætti fjöldinn að vera 40-70 manns á Islandi. Félagið er ungt og vand- inn er sá að eng- inn einn aðili sér um að greina daufblindu, segja má að daufblinda sé ekki til sem fötlun í greiningu og því er það tilviljun háð hver gengur í félagið. Það þyrfti að skrá fjölda daufblindra sérstaklega. Sett hefur verið á stofn verkefna- stjórn með fulltrúum frá DBFÍ, Blindrafélagi, Sjónstöð íslands, Félagi heyrnarlausra, Samskipta- miðstöð heymarlausra og Heymar- og talmeinastöð. Verkefnastjórnin ætlar að kanna fjölda eldri dauf- blindra á íslandi. Nú þegar hefur verkefnastjórnin látið þýða bækling “Þegar sjón og heyrn bregst”, sem er sérstaklega ætlaður starfsfólki í öldrunarþjónustu. Öldrunardeild Félagsþjónustunnar í Reykjavík tryggði fjármagn fyrir bæklingnum. Bæklingurinn verður gefinn út á næstunni. Meginmarkmið félagsins er að vera: * upplýsingamiðstöð um málefni daufblindra * styðja félagsstarfið almennt * kynna daufblindu t.d. í skólum og vinnustöðum, ekki síst þar sem daufblindir einstaklingar dvelja s.s. á sambýli * styðja nemendur sem eru að kynna sér og læra um daufblindu * styðja starfsfólk sem er að vinna með daufblindum og hjálpa þeim að finna lausnir * leita að daufblindum einstaklingum sem ekki fá þjónustu við sitt hæfi * vinna að bættri þjónustu við eldra fólk sem hefur orðið alvarlega sjón- og heyrnarskerðingu * taka þátt í þróun á þjónustu við daufblinda t.d. varðandi menntun og endurhæfingu með það fyrir augum að gefa þeim aukin lífsgæði * vinna að auknum réttindum dauf- blindra eins og t.d. í sambandi við túlkaþjónustu. Stjórn Félagið hefur fimm manna stjórn sem í sitja einn fulltrúi frá Blindra- félaginu, einn frá Félagi heyrnar- lausra og þrír daufblindir. Sam- kvæmt lögum Daufblindrafélagsins er það opið öllum daufblindum sama á hvaða aldri þeir eru. Hvað er daufblinda Einstaklingur er daufblindur ef hann er bæði alvarlega sjón- og heyrnarskertur. Sumir daufblindir eru algjörlega heyrnarlausir og blindir, aðrir hafa örlitla sjón og heyrn. Samsetning þessara fatlana hefur þannig í för með sér mikla einangrun og erfiðleika með sam- skipti, skynjun á umhverfi, aðgang að upplýsingum og komast leiðar sinna. Þetta eru helstu örðugleikarnir sem tengjast daufblindu. Hver daufblindur einstaklingur ætti í raun að vera bæði með túlka og leiðsögu- mann með sér. Hópar daufblindu Daufblindum má í raun skipta í þrjá hópa. Sumir eru daufblindir og glíma þá við ýmsar viðbótarfatlanir líka. Aðrir hafa orðið daufblindir seinna á ævinni, fæðast annaðhvort heyrnarlausir og verða svo blindir, eða fæðast blindir og verða heyrn- arlausir. Nokkrir eru fæddir með eðlilega sjón og heyrn en missa svo hvort tveggja vegna sjúkdóms, slysa eða elli. Daufblindir eru af báðum kynjum og á ýmsum aldri en með- limir í félaginu hjá okkur eru 35-50 ára. Bætt þjónusta Það þyrfti að gera nákvæma rannsókn á fjölda daufblindra ein- staklinga á Islandi. Einnig vantar nákvæma greiningu fyrir hvern einstakling þannig að hægt sé að veita honum þjónustu sem honum ber. Erlendis sjá greiningarteymi um slíka greiningu. Helst þyrfti að setja á fót þannig kerfi að hver daufblindur einstaklingur gæti fengið upplýsingar um málefni líðandi stundar, farið í heimsóknir, út að versla og gert allt það sem okkur hinum finnst bæði hversdagslegt og sjálfsagt. Þessir einstaklingar eru algjörlega upp á aðra komnir. Margir búa á sambýli, aðrir einir og þjónustan við þá er mjög mismunandi. Oft segja þau sjálf að heimur þeirra nái ekki lengra en hendurnar ná. Samskiptaleiðir Þær eru mjög mismunandi eftir hópum og velta til dæmis á því hvort viðkomandi hefur misst fyrr heyrn eða sjón. Helstu samskiptaleiðir daufblindra eru tal, táknmál, snerti- táknmál sem byggir á því að halda í hönd þess sem talar og skynja táknin á þann hátt, blindraletur og fingra- stafróf. Síðastliðinn vetur höfum við unnið mikið með tölvur fyrir dauf- blinda sem hefur verið mjög spenn- andi. Tölvurnar hafa í raun opnað mörgum nýjan heim, bæði í sam- skiptum og við upplýsingaöflun. Með tölvupósti hafa daufblindir getað átt samskipti hverjir við aðra gegnum blindralyklaborð án milliliða og talað saman í fyrsta sinn. Einnig hafa þeir átt kost á því í fyrsta skipti að tala við fólk sem kann þeirra samskiptaleiðir. Lilja Þórhallsdóttir. Lilja Þórhallsdóttir 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.