Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Side 8
krafti. Læknirinn minn, Gissur
Gottskálksson, samsinnti því um
daginn, að heilmikið væri eftir af mér
ennþá.”
- Áttu eitthvert uppáhalds sport
eða áhugamál?
“Golfið! Það sameinar svo margt,
útiveru, hreyfingu, göngu. Eg nýt þess
að fara út á golfvöll með konu minni
og ekkert keppikefli að spila heilan
hring, alveg eins hálfan, við förum
bara því oftar.
Ferðalög eru mikið áhugamál. Ég
hef verið svo blessunarlega heppinn
að störf mín hafa leitt mig um allan
heim, til Ástralíu, Hong Kong og
Hawai. Nú langar mig að fara að
ferðast með eldra fólkinu. Helst
myndi ég kjósa rólegar golfferðir.”
Annað áhugamál er garðrækt.
Konan mín á eftir að hlæja, þegar ég
segi að mér finnist gaman að vinna í
garðinum heima, henni finnst ég
sjaldan taka til hendi þar. Vilhjálmur
og eiginkona hans, Guðrún Árnadóttir
eru frumbyggjar í Árbænum. “Þar er
yndislegt að búa, logn í norðanátt,
gróðursælt og stutt að ganga í
Heiðmörk og Elliðaárdal.”
- Ertu jákvœður um framtíðina?
“Já, svo sannarlega. Ef við lítum
hálfa ölda aftur í tímann, þá sjáum við
að það er ekkert smávegis sem hefur
gerst. Menn eru svo vanir að tala í
neikvæðum tón, á sama tíma og land-
inn kaupir nýjabíla eins og aldrei áður
og 180 þúsund manns ferðast árlega
til og frá landinu. Á meðan svo er þá
er ekki hægt að tala um almenna
fátækt í landinu.”
- Hvað um utangarðsfólkið eða
öryrkjana sem rnargir eiga vart til
hnífs og skeiðar í allri ferðinni?
“Því miður munum við ávallt hafa
slík vandamál, en miðað við núver-
andi velsæld í þjóðfélaginu, þá er ekki
vafi í mínum huga að hægt er að bæta
kjör öryrkja og aldraðra á mannsæm-
andi hátt. Baráttan fyrir bættum kjör-
um þeirra sem minna mega sín virðist
endalaus.”
Vilhjálmur er kvaddur. Dyrnar á
Lottóinu ljúkast aftur. Lottóhatturinn
hefur fengið nýtt vægi. Héðan í frá
kaupi ég lottómiða og hlýt alltaf
vinning - vitneskjuna um að mitt litla
framlag styður þá sem minna mega
sín.
Oddný Sv. Björgvins.
HÖFÐINGLEG
GJÖF
eir tveir sjóðir, sem bandalagið
hefur í sinni vörslu, hafa
sannarlega mörgum að miklu
gagni komið, en mestu skiptir þó sú
aðstoð sem öryrkjar fá frá þessum
sjóðum, þó önnur verkefni séu góðra
gjalda verð.
Hlutverk sjóð-
anna eru þann-
ig ólík að
Sjóður Odds
Olafssonar
sinnir fjöl-
b r e y 11 a r i
verkefnum,
þannig mætir
einn af fimm
verkefna-
f 1 o k k u m
s j ó ð s i n s
öryrkjum
sérstaklega en
fjöldi úthlutana þannig þó umtals-
verður.
Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur
hefur hins vegar það sem megin-
verkefni að veita öryrkjum stuðning,
enda fer mikill meirihluti úthlutunar-
fjár sjóðsins til þess.
Sjóðirnir eru einnig með mismun-
andi fjármagn til ávöxtunar og lætur
nærri að fjármagn Oddssjóðs sé
tveimur og hálfum sinnum meira en
Sigríðarsjóðs, enda sinnir sá sjóður
dýrari og fjölbreyttari verkefnum.
En því er þessi þula höfð hér uppi
að sjóðum þessum báðum barst nú um
áramótin síðustu einstaklegahöfðing-
leg gjöf, sem eflir sjóðina vel til átaka
góðra.
Er skemmst frá því að segja að
aldraður hollvinur okkar hér, Sigur-
geir Steinsson, sem gengur þó oftar
undir nafninu Lilli, gaf sjóðunum
tveim húseign sína að Ránargötu 3 a
hér í borg, tvær hæðir, ris og kjallara.
Skal andvirðið skiptast jafnt milli
sjóðanna tveggja.
essi rausn Sigurgeirs er
sannarlega lofs virði og kemur
sér heldur betur vel fyrir sjóðina tvo.
Andvirði þessarar ágætu húseignar
mun bætast við höfuðstól sjóðanna og
með ávöxtun hans mun þetta færa
sjóðunum auknar ráðstöfunartekjur
og þannig verður unnt að gjöra fleir-
um betur til góða í úthlutun styrkja úr
sjóðunum báðum.
Sigurgeiri var svo af þessu tilefni
haldið huggu-
legt kaffisam-
sæti í febrúar-
byrjun þar sem
sjóðsstjórn-
irnar voru
mættar ásamt
formanni
Ö r y r k j a -
bandalagsins.
Þar voru
Sigurgeiri
færðar hinar
einlægustu
þakkir fyrir
gjöfina góðu,
bæði í lausu sembundnu máli. Hauk-
ur Þórðarson færði Sigurgeiri svo
forlátafallegan íslenskan stein frá
Öryrkjabandalagi Islands, en sjóðirnir
báðir í þess vörslu. Á steininn var
fagurlega letrað:
Sigurgeir Steinsson
Hjartanlegar þakkir fyrir
höfðinglega gjöf.
Öryrkjabandalag Islands.
Hinn síungi og hressi Sigurgeir
þakkaði fyrir sig og kvaðst vona að
þessi gjöf mætti að gagni koma. Fer
vel á því að Ijúka frásögninni með
einni vísu úr þakkaróði til Sigurgeirs:
Þín er rausnargjöfin góð
gagnast mun hún vel hjá þjóð.
Færir okkur fé í sjóð,
fólki mörgu að liði,
því sem hefur menntun góða að
miði.
Hér eru færðar hinar hlýjustu þakk-
ir fyrir frábæran stuðning við sjóði
sem hafa það að markmiði að létta
fólki lífsgönguna með því að gjöra því
fært að auka við þekkingu sína og
menntun, svo sem hugur hvers og eins
stendur til. Megi þér verða hver stund
sem best og blíðust, Sigurgeir.
H.S.
8