Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 20

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Qupperneq 20
Kynning framkvæmdastj óra Nýlega réði það ágæta félag Heyrnarhjálp sér nýjan framkvæmdastjóra. Það er Málfríður Gunnarsdóttir sem þar mun í stefni standa. Ritstjóri átti við hana stutt viðtal en sá góði siður hefur gilt hér í blaðinu að framkvæmdastjórar félaga okkar hafa fengið nokkra kynningu. Málfríður er einmitt frá síðasta aðalfundi fulltrúi Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra í stjórn Öryrkjabandalags íslands, en hún er einnig formaður þess félags. Aðeins skal stiklað á því stærsta varðandi menntun og starfsferil Mál- fríðar. Hún er með almennt kennarapróf og stúdentspróf frá Kennaraskóla íslands. Hún hefur í 5 ár stundað nám í sérkennslu, sérhæft sig í kennslu heyrnarlausra/skertra og barna og ungmenna með hegðunar- og tilfinn- ingatruflanir. Hún hefur einnig sótt ýmis námskeið og ráðstefnur sem faginu tengjast svo og í stjórnun og tölvuhæfingu. Málfríður vann rúman áratug við Heyrnleysingjaskólann, bar lengst af ábyrgð á ráðgjafarþjónustu skólans, stjórnaði einnig ýmsum námskeiðum og flutti fyrirlestra. 1991-1997var Málfríður í Ósló, fyrst við ráðgjöf og stuðning við heyrn- arskert börn, kennara þeirra og for- eldra, en síðar við nýja leiðandi stofn- un þar fyrir einhverfa, Nordvoll skole- og autismcenter. Starfaði heimkomin á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi sem deildarstjóri barna- sviðs og starfar þar er viðtalið fer fram. Málfríður hefur verið virk í félagsmálum, erfulltrúi menntamála- ráðuneytis í stjórn Heyrnar- og tal- meinastöðvar Islands og er stjórn- armaður í Samskiptamiðstöð heyrn- arlausra og heymarskertra. Málfríður er gift og á þrjú böm, tvö þau yngri eru fædd með mikla heyrnarskerð- ingu. I góðu viðtali við ritstjóra yfir veitingum vænum í vistlegu húsnæði Heyrnarhjálpar bar margt á góma og Málfríður Gunnarsdóttir. þess freistað að blaðfesta nokkur atriði. Málfríður er ráðin framkvæmda- stjóri frá 1. jan. þessa árs, hlutastarf til haustsins, en þá endurmetið, hversu starfshlutfall verður hátt. Hún segist taka við starfinu við dálítið sérstakar aðstæður, veikindi Jóhönnu S. Einars- dóttur og síðar andlát þeirrar afbragðskonu lamaði eðlilega mjög starfsemi félagsins. Vilji Málfríðar stendur markvisst til að byggja sem best upp. Hún segist nú leggja aðaláherslu í upphafi á það að fara sem best yfir og skilgreina ástandið, en Ijóst að verkefni skortir ekki. Hún kvað stjórnarfund hafa rætt forgangs- mál sem væru þau að bæta aðgengi sem best, hafa áhrif sem allra mest á góða og skjóta afgreiðslu heyrnar- tækja og annarra hjálpartækja, en hjá HTI er nú allt upp í ársbið eftir heyrn- artækjum. Málfríður kvað Heyrnar- hjálp vera í góðum tengslum við HTI, samstarfsvettvangur væntanlegur þar sem fulltrúar félags og stöðvar mundu hittast reglulega. Hún sagðist telja að Heyrnarhjálp ætti af afli að beita sér fyrir því við fjárveitingavaldið, að það veitti fullnægjandi fé til HTÍ þannig að stöðin gæti gegnt sínu hlutverki eins og til er ætlast í lögum um Heymar- og talmeinastöð Islands. En aftur að baráttumálum: Textun sem mest í sjónvarpi, ekki síst með tilliti til þess hve margt fólk myndi nýta sér slíkt, fólk sem ekki getur fylgst nægilega með tali. Málfríður nefndi það sérstaklega að í nánd væru kosningar og sjálfsagt réttlætismál að allir fengju kynningar notið fyrir þær. Þá er tónmöskva- kerfið eitt forgangsmála, að tón- möskvi verði á sem flestum stöðum sjálfsagður hluti aðgengis. Stjórn Heyrnarhjálpar hafði ein- mitt stefnt að því að árið í ár yrði ár tónmöskvans og það yrði reynt að framfylgja því. Vilji Málfríðar stendur til þess varðandi tónmöskv- ann að kynna möguleika hans í félags- starfi eldri borgara, þar sem mikil nauðsyn væri á því að salir þess fólks væru með tónmöskva. Málfríður lagði áherslu á að mörg þessara atriða kölluðu á sjálfsagða samleið Félags heyrnarlausra og Heyrnarhjálpar. Varðandi starf Heyrnarhjálpar kvað Málfríður mikla nauðsyn til bera að landsbyggðin verði ríku- lega inni í myndinni, auka þyrfti þjón- ustuna úti á landi, en ritstjóri minnist þess hve vel Heyrnarhjálp þjónaði landsbyggðinni áður á árum. Málfríður minnti á þann mikla fjölda sem Heyrnarhjálp þyrfti að ná til, félagar innan við 300, en talið væri að 10% fólks væri með skerta heym og um 8000 manns notuðu heyrnar- tæki hér á landi. Málfríður sagðist horfa til þess að geta veitt sem besta fræðslu um öll þau hjálpar- og heyrnartæki sem til væru og hvemig þau virkuðu, koma helst á námskeiðum fyrir fólk sem nota þarf þessi tæki, forvamaþátturinn væri einnig þýðingarmikill, upplýsa fólk um hætturnar. í því sambandi sagði hún að stór hluti heyrnar- skerðingar væri vegna hávaðaskaða. Að endingu sagðist Málfríður hlakka mjög til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem bíða. I því fælist umtalsverð áskorun að taka við slíku starfi. Hún vonar einmitt að nú sé góður tími framundan hjá Heyrnarhjálp og þess óskar ritstjóri einnig sem veit að mál muni í góðum mundum Málfríðar dafna og verða til farsældar. H.S. 20

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.