Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 21
Helgi Hróðmarsson, fulltrúi:
Orlofshús
• •
Oryrkjabandalag Islands á
aðild að nefnd á vegum
félagsmálaráðherra, sem
vinnur nú að því að koma fram með
tillögur um aukna möguleika fólks til
þess m.a. að taka
þátt í ferðalög-
um og tóm-
stundum. Eittaf
því sem bent var
á við undirbún-
ing skipunar
nefndarinnar var
að fjölmörg
launþegafélög
og samtök
launþega eiga
nú hundruð sumarbústaða, orlofs-
heimila og orlofsíbúða til afnota fyrir
félagsmenn sína. Þorri fatlaðra hefur
hins vegar engan rétt til afnota af
þessum bústöðum, þar sem þeir eru
ekki meðlimir í launþegafélögum.
Þótt þeim bjóðist af og til bústaðir til
í athugun
afnota fyrir velvilja eigenda, sitja þeir
ekki við sama borð og aðrir.
✓
Igegnum árin hefur verið leitað til
Öryrkjabandalagsins með fyrir-
spurnir um hvort bandalagið hafi á
sínum snærum sumarbústaði til afnota
fyrir öryrkja. Þetta mál hefur verið
tekið upp innan bandalagsins og vinna
farið af stað til að leita leiða til að auka
möguleika fatlaðra á þessu sviði.
Helgi Seljan og undirritaður fóru á
fundi fulltrúa BSRB og ASÍ til að leita
eftir möguleikum á því að öryrkjar
gætu fengið afnot af einhverjum af
orlofshúsum þeirra út um land.
Erindið hefur verið lagt fyrir aðildar-
félög samtakanna og væntum við
svars frá ASÍ fljótlega. Svar hefur
þegar borist frá BSRB þar sem leyfi
hefur verið gefið til þess að öryrkjar
geti notað húsin, en reyndar utan hins
hefðbundna orlofstíma, á sömu kjör-
um og þeirra félagsmenn. Nú standa
yfir viðræður við BSRB um notkun
húsa á orlofstímanum. Vonandi verð-
ur hægt að finna lausn á því sem báðir
aðilar geta sætt sig við. Sjálfsagt er
að athuga hvort ríkissjóður gæti greitt
niður gjald fyrir húsin, þannig að
leigan yrði á viðráðanlegu verði fyrir
öryrkja.
Þá hefur einnig borist erindi frá
Súðavík. Þar er bandalaginu boðið
að nýta raðhús yfir sumartímann fyrir
öryrkja. Þetta verður skoðað nánar á
næstunni innan bandalagsins.
Full ástæða er til að benda á að það
að lifa eðlilegu lífi er ekki ein-
ungis fólgið í því að njóta grund-
vallarþarfanna, þ.e. að hafa í sig og á
og rétt til náms og atvinnu. Það að
lifa eðlilegu lífi er einnig að njóta
tómstunda, menningar og lista, ferða-
laga og tímabundinnar dvalar utan
heimilis. Eitt af því sem í þessu felst
er að mikilvægt og sjálfsagt er að
öryrkjar fái notið orlofsdvalar með
viðlíka hætti og félagar í launþega-
samtökum. Því er það von okkar að
þessari tilraun verði vel tekið.
Helgi Hróðmarsson.
“Hjálparstofnun kirkjunnar hvetur ráðamenn
til þess að bæta svo net almannatrygginga að
þeir sem þurfa á því að halda geti skapað sér
mannsæmandi líf.”
Úrfréttatilkyrmingii Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Október 1998.
“í ljósi réttsýni og sanngirni er tímabært, að
ekki sé fastar að orði kveðið, að endurskoða
stöðu öryrkja, sérstaklega þeirra sem urðu
öryrkjar ungir.”
Úr forystugrein Morgunblaðsins.
Desember 1998.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21