Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Síða 36
Búrið - ljóð
/
Steindórs Ivarssonar
Aðfararorð:
Á liðnu ári gaf Steindór ívarsson út ljóðabók í fjórum köflum.
Fyrst fjallar höfundur um eigin ótta við að upplifa ást sem
samfélagið fordæmir og baráttu hans við að brjótast út úr “Búrinu”.
í öðrum kafla er lýst ástarsambandi tveggja einstaklinga. Þriðji
kaflinn fjallar um þegar annar þeirra smitast og deyr úr alnæmi og
síðasti kaflinn er svo þar sem höfundur horfir fram á veg sáttur við
það sem lífið býður. Hér á eftir fara sýnishorn úr hverjum kafla,
valin af ritstjóra.
Hróp Snjókorn
Snertu mig hvít og þögul
því ég er einmana féllu þau
líkami á andlit okkar í svörtu húminu
kysstu mig af hreinni mjöll
því ég er sært flugu englar
hjarta mót himni
huggaðu mig nú falla tár mín
því ég er sorgbitið á kaldan steininn
tár og engillinn þinn flýgur til himins
elskaðu mig því ég er hræddur Sátt
Snerting eftir síðustu vorrigningar geng ég berfættur
ofurhægt undir sáttmála Guðs
klæddust augun ásjónu þinni kyssi
í nótt græna dögg
tippluðu berfætt faðma
í syngjandi þögn bláma himins.
ótroðna slóð Steindór ívarsson.
elskuðu þig í hverju spori
Ógn
umferðar-
slysanna
Okkur hefur hingað borist skýrsla
um umferðarslys árið 1997, en
nýlega hafa í fréttum verið raktar
helstu tölur fyrir síðasta ár og þær
munu síður en svo betri. Það er
Umferðarráð sem gefur út þessa
skýrslu en Öryrkjabandalag íslands á
aðild að ráðinu og fulltrúi okkar þar
var Hafliði Hjartarson. Þama er mikið
safn upplýsinga og ekki tök á því hér
að rekja allt það fróðlega talnaflóð,
en að baki þess er mörg harmsagan,
sem geymir hina válegu atburði er
leiddu til dauða eða alvarlegra ör-
kumla svo alltof margra.
Vissulega er þetta mál okkar allra
en þar sem slys eru svo mikill og
válegur orsakavaldur ýmiss konar
örkumla þá er ekki hvað síst ástæða
til þess hér að huga að tölum.
Enn brýnni er þó heit hvatning til
allra að fara sem varlegast, vera á
varðbergi og fara með fullri gát,
spenna beltin og fara að öðm leyti í
hvívetna eftir umferðarlögum, eðli-
legum reglum í mannlegum samskipt-
um. Framkvæmdastjóri Umferðar-
ráðs Óli H. Þórðarson lætur fylgja
með skýrslunni nokkrar athyglis-
verðar tölur og á nokkrum þeirra tæpt
hér. Árið 1997 létust 15 í umferðar-
slysum og hlutfallslega flestir látast á
aldrinum 17-20 ára. Yfirliteryfirslys
á börnum á árunum 1975 - 1997 þ.e.
aldurinn 0-14 ára, alls slösuðust 3213
börn á þessum árum og 69 létust.
Harmsögurnar að baki em hræðilegar
og ættu ekki að láta neinn ósnortinn.
Árið 1998 slösuðust203 alvarlega
og það er til umhugsunar að í bjartasta
mánuði ársins, júnímánuði slösuðust
flestir.
Aftanákeyrslur voru um 18% slysa
með meiðslum, 244 ökumenn og
farþegar slösuðust þannig, þar af 6
mikið.
Þannig mætti áfram tína til ugg-
vænlegar tölur en nóg sungið að sinni.
Umsjónarmaður slysaskráningar
Umferðarráðs er Örn Þ. Þorvarðarson.
H.S.
36