Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Blaðsíða 42
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir,
framkvæmdastjóri íþrótta- og útbreiðslusviðs IF:
Framtíðarsýn
Frístundir fatlaðra m.t.t. íþróttastarfs
s
þróttasamband fatlaðra hefur
yfirumsjón með íþróttastarfi
fatlaðra á Islandi. Til þess að
fatlaðir geti nýtt sér tilboð sem í gangi
eru þurfa boðleið-
ir til þeirra að vera
skýrar.
IF hefurinnan
sinna raða 22
aðildarfélög sem
staðsett eru víða
umland. Þarsem
slík félög eru ekki
Anna Karólína til staðar er erf-
Vilhjálmsdóttir iðara fyrir jp að
“~~koma upplýs-
ingum á framfæri til fatlaðra íbúa.
Nauðsynlegt er að sérstakur tengiliður
sé á hverjum stað sem IF getur haft
samband við og sent upplýsingar til
ef þörf er á.
Markvissar boðleiðir eru grund-
völlurþess að íþróttastarfsemi fatlaðra
geti orðið árangursrík og sama hlýtur
að gilda um önnur frístundatilboð.
Skýrari boðleiðir.
Grundvöllur að
árangursríku starfi
Upplýsingar um ný tilboð, ný hjálp-
artæki, möguleika á þátttöku í spenn-
andi verkefnum, innanlands og
erlendis og upplýsingar um mögulega
aðstoð frá ÍF vegna þjálfunar og
kennslu fatlaðra eru til lítils gagns ef
þær ná ekki að berast til þeirra sem
málið varðar. Skrifstofa IF er í dag-
legum tengslum við alþjóðasamtök og
aðila erlendis sem starfa í sama
málaflokki. Sífellt berast því nýjar
upplýsingar til landsins sem geta oft
skipt verulegu máli fyrir fatlað fólk.
Þessar upplýsingar gera þó lítið gagn
ef þær komast ekki til skila nema að
takmörkuðu leyti. ÍF hefur ávallt lagt
mikla áherslu á skilvirk boðskipti
innan hreyfingarinnar en þessi mál eru
erfið og þurfa mikið aðhald.
Þrátt fyrir að svo virðist sem
flestallar hreyfingar og samtök eigi
við sama vandamál að glíma virðist
sem markviss umræða um stefnumót-
un í boðskiptaleiðum sé sjaldan í
gangi.
IF óskar eindregið eftir því að
átak verði gert í þessu máli í sam-
vinnu allra þeirra aðila sem starfa
munu að málefnum fatlaðra í fram-
tíðinni. Draga þarf fram mynd af
því hvaða hlutverki aðilar gegna,
hvernig málefni skarist og hvaða
leiðir séu bestar til árangursríks
samstarfs á hverju sviði. Skýrar
boðskiptaleiðir og skilvirkt sam-
starf þeirra sem starfa að málefn-
um fatlaðra skiptir miklu.
Bæjarfélög - sveitarfélög
Sú breyting sem verið hefur und-
anfarin ár og varðar búsetubreytingar,
frá stofnunum til smærri eininga og
sjálfstæða búsetu fleiri einstaklinga
hlýtur að kalla á aukna áherslu á
skilvirkni í upplýsingaflæði til
Ágæt viðbrögð
og afdráttarlaus
s
Ifrásögn af málþingi
Félags heyrnarlausra í
síðasta blaði kom fram að
sýslumannsembætti hér-
lendis hefði synjað konu
um þjónustu táknmáls-
túlks.
Þar var einnig greint
frá því að málið hefði ver-
ið sent til úrskurðar
dómsmálaráðuneytis.
Félag heyrnarlausra
fékk svo tilskrif frá Þor-
steini Pálssyni dóms-
málaráðherra 16. nóv sl.
þar sem ráðherra tilkynnir
að ráðuneyti hans hafi
mælt fyrir um það í
umburðarbréfi til allra
sýslumanna að heyrn-
arlausir einstaklingar
skuli eiga kost á ókeypis
þjónustu táknmálstúlka í
fyrirtöku máls sem þeir
eru aðilar að.
Með svari Þorsteins
dómsmálaráðherra fylgdi
ljósrit af umræddu um-
burðarbréfi og þykir rétt
að birta það orðrétt:
Allir sýslumenn
Af tilefni bréfs Félags
heyrnarlausra þar sem
athygli er vakin á því að
beiðni heyrnarlausrar
konu um þjónustu tákn-
málstúlks í fyrirtöku
sifjamáls hennar á
embætti sýslumanns á
kostnað þess hafi verið
synjað er eftirfarandi
tekið fram:
Með vísun til jafnrétt-
isákvæðis 65. gr. stjómar-
skrárinnar og megin-
reglna stjórnsýslulaga
nr.37/1993 hefur verið
ákveðið að heyrnarlausir
einstaklingar skuli eiga
kost á þjónustu táknmáls-
túlks á embættum sýslu-
manna vegna meðferðar
mála sem þeir eru aðilar
að og að kostnaður þar að
lútandi greiðist af við-
komandi embætti.
Hvorki er fyrirsjáanlegt
að þörf verði á þjónustu
táknmálstúlks í mörgum
málum né að sú þjónusta
verði umfangsmikil í
hverju einstöku máli. Ef
annað kemur í ljós mun
það verða tekið til skoð-
unar hverju sinni að frum-
kvæði sýslumanns.
Svo mörg voru þau orð
og vissulega fagnað-
arefni þegar svo myndar-
lega er á málum tekið.
Hafi dómsmálaráðherra
þökk fyrir svo afdráttar-
lausa afgreiðslu.
H.S.
42