Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1999, Page 43
fatlaðra frá t.d. samtökum eins og ÍF.
Dreifð búseta er eðlileg og sú þróun
sem átt hefur sér stað á síðustu árum
á þessu sviði hefur reynst vera til góðs
fyrir marga einstaklinga. Ekki má þó
gleyma því að forsendur verða að vera
til staðar og sú nauðsynlega aðstoð
sem á þarf að halda fyrir hvern ein-
stakling. Ýmis vandamál fylgja slrku
ferli sem þarf að taka á strax í upphafi.
Varðandi íþróttastarfið þá hefur
breyting á búsetu haft þau áhrif í
einstaka tilfellum að fatlað íþróttafólk
sem verið hefur mjög virkt í starfinu,
hættir að mæta á æfingar þrátt fyrir
að áhuginn sé enn til staðar. Astæður
þessa geta verið ólíkar og margar, en
aðalatriðið er að fundin verði leið til
að til þessa komi ekki, sé áhuginn til
staðar hjá þeim fatlaða sjálfum.
Starfsfólk sambýla hefur margt
tekið virkan þátt í íþróttastarfinu með
íbúum og svæðisskrifstofur og
landssamtök fatlaðra hafa stuðlað að
íþróttastarfi fatlaðra með því að skapa
aðstæður sem gera fötluðum kleift að
sækja æfingar og keppni t.d. með
ferðaþjónustu og liðveislutilboðum
Hlutverk IF og aðildarfélaga
þess felst m.a. í því að virkja sem
flesta til þátttöku. Dreifðari búseta
getur skapað hættu á að upplýs-
ingar til fatlaðra komist ekki til
skila. Hér er því mikilvægt að
marka skipulagt samstarf við aðila
s.s. svæðisskrifstofur, sveitarfélög,
landssamtök fatlaðra og aðra þá
sem málið varðar.
Aðgengismál:
Taka þarf tillit til þess að með
dreifðari búsetu munu fatlaðir sækja
fleiri staði en verið hefur og því líkur
á að aukinn þrýstingur verði settur á
ferlinefndir sveitarfélaga að sinna
hlutverki sínu varðandi það að skapa
fötluðum gott aðgengi m.t.t. laga og
reglugerða.
I dag eru ennþá margir fatlaðir sem
ekki komast t.d. á sundæfingar vegna
lélegs aðgengis.
Þó er sundíþróttin ein besta endur-
hæfing sem til. Þetta mál kemur til
SJÁ NÆSTU SÍÐU
“í LcFÓSI
RÉTTSÝNI
OG SANNGIRNI”
“Verstur er þó hlutur öryrkjanna, sem aldrei
hafa beðið um sína örorku en eru háðir þeim
smánarskammti sem hrekkur af borðum
allsnægtarinnar. ”
Ellert B. Schram, forseti Í.S.Í.
Október 1998.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJ AB ANDALAGSINS
43