Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Síða 4
Arnór Pétursson form. Sjálfsbjargar-
landssambands fatlaðra:
Við aldahvörf
Iár fagnar Sjálfsbjörg,
landssamband fatl-
aðra, því að 40 ár eru frá
stofnun þess. 40 ár eru
ekki langur tími í Islands-
sögunni, en þrátt fyrir það
er það löng og merkileg
saga sem Sjálfsbjörg hefur
skrifað á þessum árum.
Eg trúi því staðfast-
lega að ef af stofnun
Sjálfsbjargar hefði ekki
orðið þá væri allt annað
hlutskipti sem fatlaðir
byggju við í dag.
I ávarpi í fyrsta
Sjálfsbjargarblaðinu sem
gefið var út í september
1959 segir Sigursveinn
D. Kristinsson:. „Það er
markmið samtakanna að
gera öllu fötluðu fólki
kleift að taka þátt í
félagslífi, sér og öðrum til
uppbyggingar. Heilbrigt
fólk á að vonum erfitt
með að gera sér ljósa
grein hve risavaxnar þær
hindranir eru, sem fatlað
fólk þarf stundum að
sigrast á, til að geta notið
þess að vera þátttakendur
í almennu lífi”.
A upphafsárum Sjálfs-
bjargar voru fatlaðir, sem
ekki gátu búið á eigin
heimilum eða hjá ættingj-
um, vistaðir til langframa
á sjúkrastofnunum eða
elliheimilum. Því hófst
fljótlega umræða um
byggingu heimilis fyrir
fatlaða.
Ég held að á engan sé
hallað þó sagt sé að þar
hafi Theodór A. Jónsson
farið fremstur í flokki og
ég held að hægt sé að
fullyrða að fyrir atbeina
og dugnað hans var ráðist
í byggingu Sjálfsbjargar-
hússins sem í dag er mið-
stöð þess starfs sem fer
fram á vegum landssam-
bandsins og sá homsteinn
sem það byggir á. Með
því hefur mörgum
fötluðum verið gert lífið
bærilegra og margir hafa
stigið þar fyrstu skrefin út
í lífið aftur eftir slys eða
alvarleg veikindi.
Eitt dæmi um fram-
sýni og næman
skilning Sjálfsbjargar á
þörfinni fyrir öflugri
baráttu og verkfærum til
að vinna að hagsmuna-
málum fatlaðra er að
Sjálfsbjörg hafði frum-
kvæði að stofnun Ör-
yrkjabandalags Islands.
I grein Guðmundar
Löve í Sjálfsbjargar-
blaðinu 1961 má lesa
eftirfarandi: “Það datt
engum í hug þegar Ólöf
Ríkarðsdóttir, ritari
Sjálfsbjargar hringdi til
Blindrafélagsins og
Sambands íslenskra
berklasjúklinga og boð-
aði til sameiginlegs fund-
ar með fulltrúum þessara
félaga, að þar færi fyrsti
vísir Öryrkjabanda-
lagsins.”
Síðar í sömu grein
segir: “Tveir lamaðir,
Arnór Pétursson
tveir lungnaveikir og
tveir blindir - hvað áttu
þeir sameiginlegt? Var
þetta tal um samstarf ekki
eitthvað óraunverulegt -
vonir, sem aldrei gátu
rætzt.” Þetta frumkvæði
Sjálfsbjargar varð samt til
þess að Öryrkjabandalag
íslands var stofnað og
allir vita hvaða hlutverki
það hefur gegnt í baráttu
og hagsmunamálum fatl-
aðra um áratuga skeið og
má þar sérstaklega nefna
að þúsundir fatlaðra hafa
fengið húsnæði við sitt
hæfi í gegnum Hússjóð
þess. Það var því eðlilegt
framhald og þróun sög-
unnar að Ólöf skyldi um
árabil vera formaður
Öryrkjabandalagsins og
til margra ára stjórnar-
maður í Hússjóði þess.
rátt fyrir 40 ára ötult
starf Sjálfsbjargar er
enn langt í land að fatlaðir
búi við full mannréttindi
og geti lifað lífinu með
reisn og virðingu. Vissu-
lega hefur margt breyst til
batnaðar t.d. eru fatlaðir
ekki lengur vistaðir á
sjúkrahúsum eða elli-
heimilum og bætur
almannatrygginga og
lífeyrissjóðsréttindi hafa
gert fjárhag fatlaðra betri
þó enn vanti mikið á að
það nægi fyrir brýnustu
lífsnauðsynjum.
Sjálfsbjörg, landssam-
bandið og aðildarfélögin
hafa verið svo lánsöm í
gegnum árin að eiga vís-
an skilning og stuðning
hjá fjölda íslendinga og
má þar m.a. nefna Holl-
vini Sjálfsbjargar og þá
fjölmörgu sem alltaf
kaupa happdrættismiða
samtakanna, en Hollvinir
og happdrættið stendur að
mestu undir rekstri lands-
sambandsins og eiga
þessir aðilar sérstakar
þakkir skilið. Viðhorfum
nú inn í nýja öld en hvað
hún ber í skauti sér er
vandi að spá. Ég vona og
trúi að með öflugu starfi
Sjálfsbjargar og annarra
aðildarfélaga Öryrkja-
bandalagsins muni al-
menningsálitið knýja
ráðamenn landsins til að
bæta kjör fatlaðra þannig
að þeir geti notið þess að
vera þátttakendur í al-
mennu lífi, eins og Sigur-
sveinn komst svo rétti-
lega að orði í ávarpi sínu.
Þá hafa hugsjónir og
markmið hinna miklu
frumkvöðla og hugsjóna-
manna Sjálfsbjargar loks
náð fram að ganga..
Arnór Pétursson
]
4