Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 19
SUMARFERÐ
VINJAR 1999
Mánudaginn 21. júní var lagt
af stað í hina árlegu sum-
arferð Vinjar. Ferðalangar
voru 20 talsins, 15 gestir, 4 starfsmenn
og bílstjóri. Leiðin lá
gegnum Hvalfjarðar-
göngin og áleiðis til
Akureyrar. Sóttist
ferðin seint m.a.
vegna þess að rútan
bilaði og þurfti að
bíða um 2 klst. eftir
annarri rútu. En menn
tóku því með stóískri
ró enda veður hið
besta alla leið. Þegar
til Akureyrar kom
voru Sigurhæðir, hús
Matthíasar Jochums-
sonar, skoðaðar undir
leiðsögn. Eftir að
hópurinn hafði komið
sér fyrir á hinni ágætu
gistiþjónustu Stórholti
1 var haldið í glæsileg
húsakynni RKÍ, Akur-
eyrardeild, þar sem
hópsins beið kvöldverður í boði deild-
arinnar. Voru þar einnig fyrir stjómar-
menn deildarinnar og Geðverndar-
félagsins. Seinna var Lystigarðurinn
skoðaður og rölt um miðbæinn í fögru
veðri.
Daginn eftir voru menn árrisulir
enda mikið á dagskrá. Fyrst skal nefna
Safnasafnið á Svalbarðsströnd. Fyrir
utan stórmerkilegt og skemmtilegt
safn beið hópsins kaffi og smurt brauð
í boði húsráðenda, skal tekið fram að
húsfreyjan Magnhildur Sigurðardóttir
er mörgum gestum kunn vegna starfa
hennar við geðhjúkmn. Síðan var ekið
til Dalvíkur með viðkomu á byggða-
safninu og áð í Hánefstaðalundi,
skógrækt Eyjafjarðar í Svarfaðardal.
I þeim fagra lundi var stofnsett
ferðafélag og allir ferðalangarnir
stofnfélagar. Mikil áform eru um
ferðalög þessa nýja ferðafélags og
framhaldsstofnfundur þegar ákveð-
inn. Ekið var áfram til Olafsfjarðar og
þar bauð RKÍ deildin okkur til
kaffisamsætis á hótelinu.
ar sem búið var að vigta rútuna
með dýrmætum farmi á Akureyri
var auðsýnt að óhætt yrði fyrir okkur
að leggja í akstur yfir Lágheiðina,
þrátt fyrir kaffisamsætið. Var það
mikið ævintýri, aðallega vegna 2ja
metra hárra skafla sem voru þar enn,
þrátt fyrir sumarsólstöður. Gekk ferð-
in vel og var ekið til Hóla í Hjaltadal.
Eftir sundsprett og afslöppun í sumar-
húsum var okkur boðið í grillveislu í
boði Skagafjarðardeildar RKÍ. Að
lokinni máltíð fór hluti hópsins á
hestbak, hinir áttu góða stund með
söng og viðeigandi sögu Galdra- Lofts
sem einn gestur Vinjar fór snilldarlega
með.
Síðasta dag ferðarinnar voru menn
árrisulir sem fyrr, en menn sváfu vel í
sveitakyrrðinni og ekki spillti fyrir að
okkar beið morgunverðarhlaðborð
framreitt af einum gestanna. Eftir
leiðsögn um Hólakirkju og vatnalífs-
sýninguna á staðnum fóru nokkrir í
sund en aðrir undirbjuggu brottför.
Ekið var til Hofsóss með viðkomu á
einum bæ, þar sem einn gestanna
færði húsfreyjunni að gjöf mynd eftir
sig sem þakklætisvott fyrir gott atlæti
í æsku. A Hofsósi var hið merka
Vesturfarasafn skoðað undir leiðsögn
framkvæmdastjóra safnsins. Eftir
viðkomu á Sölvabar í Lónkoti, sem
kenndur er við Sölva Helgason, var
ferðinni heitið til
Hvammstanga. Þar
var hópnum boðið að
þiggja veitingar og
skoða sambýli geð-
fatlaðra. Vöru mót-
tökur höfðinglegar
og staðurinn til
fyrirmyndar. Var nú
síðasti áfanginn eftir,
brunað til Reykja-
víkur og voru það
þreyttir en ánægðir
ferðalangar sem
komu þangað um
kl.20:00.
essi ferð var ákaf-
lega viðburðarík
og ánægjuleg.
Nærandi andlega og
ekki síður líkamlega.
Ferðafélagarnir voru
til fyrirmyndar, tillitssamir og gefandi.
Má t.d. nefna að ein úr hópi
reykingamanna, sem voru í
minnihluta, hafði með sér sérstaka dós
sem öllum stubbum var safnað í þegar
stoppað var í reykhléum. Einnig voru
menn mjög duglegir við leiðsögn og
fræddu hópinn jafnt og þétt um land
og sögu þeirra staða sem farið var um.
Viljum við þakka stjórnum og
félögum Akureyrardeildar, Skaga-
fjarðardeildar og Olafsfjarðadeildar
RKI svo og Katrínu Maríu Andrés-
dóttur svæðisstarfsmanni RKI Norð-
urlandi, sem skipulagði dagskrá ferð-
arinnar fyrir stuðning ,viðurgjörning
og ekki síst hlýlegar móttökur. Einnig
þökkum við Öryrkjabandalaginu fyrir
fjárstuðning til ferðarinnar og Guð-
mundi Jónassyni ehf. fyrir að veita
góðan afslátt á hópferðabílnum. Að
lokum þökkum við heimilisfólkinu að
Grundartúni 10, Hvammstanga, fyrir
móttökumar.
Ferðahópurinn.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19