Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Page 21
Frá ferðalaginu sem fjallað er um á bls. 19.
Arsskýrsla Vinjar
Síðla maímánaðar áttum við
Guðríður Ólafsdóttir félags-
málafulltrúi okkar hið ánægju-
legasta erindi í Vin, athvarf það fyrir
geðfatlaða sem Rauði kross Islands
rekur og er eðlilega afar mikið sótt.
Undirbúningur fyrir hádegisverð-
inn stóð sem hæst og yfirkokkurinn
þann daginn, Bjöm Hjaltason grúfði
sig af alúð yfir pottana.
Erindið sem við Guðríður áttum
varðaði styrkbeiðni frá gestum Vinjar
til Öryrkjabandalagsins vegna fyrir-
hugaðrar ferðar þeirra hér innanlands
íjúní.
Öryrkjabandalagið gat komið
myndarlega til móts við þessa beiðni
og við Guðríður einmitt komin sem
miklir aufúsugestir til að afhenda
forstöðukonunni, Björgu Haralds-
dóttur, styrkupphæðina. Eftir örstutta
afhending sem nokkur velfamaðarorð
fylgdu, drukkum við svo kaffi með
öðrum gestum athvarfsins og áttum
þar notalega stund.
Ekki fór það mála á milli hve ein-
læglega var hlakkað til ferðalagsins
og ljúft að mega styrkja ferðalangana
og það loforð tekið um leið af þeim
að Fréttabréf haustsins megi ferða-
söguna fá. Okkur barst svo hið ágæt-
asta þakkarbréf í kjölfarið.
En nóg um þennan ánægjulega
atburð og beint að ársskýrslunni
1998 sem hingað barst á borð. 303
einstaklingar komu alls í Vin, sumir
sjaldan, sumir nær stöðugt. Karlar
voru um 70% og konur um 30%.
Meðaltal gesta á dag 31.
Samtals gestakomur 8083 þar af
562 utan hins hefðbundna opnunar-
tíma. Matargestir voru í heildina tekið
3525. 60% gestanna búa einir, hinir í
sambýlum, á deildum eða með fjöl-
skyldu.
Sagt er frá 5 ára afmæli Vinjar í
febrúar 1998 með 100 manna kaffi-
samsæti.
Meginmarkmið sem fyrr að rjúfa
félagslega einangrun geðfatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu, fólk kemur að
eigin frumkvæði, tekur þátt í því sem
það hefur getu eða áhuga til. Lögð er
rækt við að halda umhverfinu hlýlegu,
samskipti byggð á gagnkvæmu trausti
og virðingu. Gestir taka m.a. þátt í
að elda hádegismat, haldnir eru hús-
fundir með þeim sem sækja vilja og
þar rætt m.a. það sem betur mætti fara.
Opnunartími á veturna er 9.30 -
16.30 en yfir sumartímann frá 9 - 16.
Minnt er á tvær málverkasýningar
gesta Vinjar, leikhúsferðir o.fl., getið
er um kór Vinjar sem sungið hefur
opinberlega. Ferðalög nokkur, með
öðrum að hluta. Mikið um heim-
sóknir nema, heilbrigðisstarfsmanna
og félaga í RKI svo dæmi séu tekin.
Góð samvinna er við Geðhjálp og
fjórir úr fastagestahópi Vinjar
sóttu m.a. norrænt geðhjálparmót í
Svíþjóð. Sjálfboðaliðahópur áfram að
störfum, sér um opið hús utan
opnunartíma, hafði opið 29
sunnudaga á árinu og einnig á
föstudaginn langa og á jólum.
Stöðugildi eru þrjú og hálft auk
starfsmanns í ræstingu 30 klst. á viku.
Ólöf Dóra Hermannsdóttir vinnu-
þjálfi hætti á árinu en Ingi Hannes
Ágústsson er í hálfri stöðu frá 1. okt.
'98.
Á margt annað er minnst í glöggri
og gefandi skýrslu, en athyglisverð
eru lokaorð skýrslunnar, orðrétt segir
svo: “Það er samdóma álit gesta og
starfsfólks Vinjar að fjárhagsleg og
félagsleg staða þessara einstaklinga
hafi aldrei verið jafnbág. Er það um-
hugsunarvert á þessum góðæristímum
sem talað er um”. Þetta eru orð sem
eiga að geymast þar til úr rætist veru-
lega.
ítarleg skýrsla er þökkuð, svipað
athvarf er í Dvöl í Kópavogi og frá
því greint áður hér. Rauða krossi
íslands er mikill sómi að þessari þörfu
starfsemi og fjármunum vart unnt að
veita í betri og dýrmætari verkefni.
Gestum og starfsfólki Vinjar er vel
þakkað fyrir hlýjar mótttökur, þeim
alls hins besta ámað í framtíðinni og
svo bíður ritstjóri þess (ritað í júní,
rétt fyrir ferðalagið góða) með
óþreyju að ferðasagan fæðist og berist
honum sem fyrst og best.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21