Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Page 42
Jessé ásamt Daphne móður sinni.
JESSÉ
✓
Iblaðinu sænska Handling sem
gefið er út af Svenska Handi-
kapporganisationerslnternationella
Bistandsförening kennir margra
góðra grasa en þema síðasta heftis
þessa rits er um réttindi barna í
Suður-Afríku. Ritstjóri greip niður
í annars fjölbreyttu efni ritsins og
staldraði við grein um hann Jessé
eftir Katarina Nyberg. Jesséerátta
ára drengur, sem býr með Daphne
móður sinni, Edmund föður sínum,
sem er rafvirki og bræðrunum
Ashley og David í litlu húsi í
úthverfi borgar í Suður-Afríku.
Það besta sem Jessé veit er
körfubolti. Körfuboltahetjan hans
er Magic Johnson, sá ameríski.
Jessé leikur sjálfur körfubolta og þá
fær hann lánaðan sérstakan hjóla-
stól. Hápunkturinn í körfuboltan-
um var körfuboltakeppni sem stóð
í viku. Eftir þá viku fór Jessé á
Rauða Kross sjúkrahúsið í meiri-
háttar aðgerð. Nú endurhæfir hann
sig eftir aðgerðina og er duglegur
við það enda langar hann að komast
aftur til félaganna og í skólann.
Jessé á engan hjólastól. Mamma
hans hún Daphne heldur á honum.
Það þarf hún að gjöra oft á dag og
Jessé vex og þyngist svo hún er
orðin slæm í bakinu af öllum
lyftingunum og burðinum.
Meðan hann var í þessar tvær
vikur á sjúkrahúsinu fékk
hann lánaðan hjólastól sem hann
ók á um allt á fullri ferð. En heima
eru engir peningar til fyrir hjóla-
stól. Það er alltof dýrt fyrir fjöl-
skyldu Jessés. Jesséfærvenjuleg-
an fötlunarlífeyri sem er að upp-
hæð um 6800 ísl. krónur á mánuði,
sem hvergi nærri er fyrir þörfum
hans.
Þessir fjármunir eiga að nægja
fyrir skólagjöldum, meðulum,
klæðum, fæði og heimsóknum til
lækna sem fyrir Jessé eru nauðsyn-
legar þriðja hvern mánuð. Það er
til annars konar lífeyrir, sem geng-
ur meira út frá þörf. Margir for-
eldrar þekkja hins vegar ekki þenn-
an rétt sinn, en til er stofnun sem
upplýsir fólk og hjálpar til með
umsókn, en eftir því þarf að ganga.
Jessé fer með strætisvagni í
skólann sem er sérskóli fyrir böm
með fatlanir. Uppáhalds námsefn-
ið er afrikaans, mál sem á rætur sín-
ar að rekja til Niðurlanda. Það er
talað af hinum hvítu íbúum en
einnig af mörgum svörtum.
Svo mörg vom þau orð, en lengi
mætti leita fróðleiks um börn í
Suður-Afríku í þessu ágæta
þemahefti.
HS.
Nýtt
tryggingaráð
✓
Avorþingi kaus Alþingi
nýtt tryggingaráð og það
skipa nú:
Benedikt Jóhannesson, Bolli
Héðinsson, Jón Gunnarsson,
Margrét S. Einarsdóttir og
Sigríður Stefánsdóttir.
Til vara eru: Elín Jóhanns-
dóttir, Eyrún Ingibjörg Sigur-
jónsdóttir, Petrína Baldurs-
dóttir, Svala Arnadóttir og
Valdimar Pétursson.
Aðsetur tryggingaráðs er hjá
Tryggingastofnun ríkisins
Laugavegi 114, Reykjavík.
Formaður ráðsins er Bolli
Héðinsson. Rétt er að minna á
það hér að lengi hefur það verið
baráttumál Öryrkjabandalagins
að því yrði með lögum tryggð
aðild að tryggingaráði.
Nú eru um 15 ár frá því máli
þessu var fyrst hreyft á Alþingi
af undirrituðum og oft síðan
hefur málið verið flutt á þingi
en ekki náð fram að ganga. Full
ástæða er til þess að fulltrúar
neytenda komi þarna að með
fullgildri aðild. H.S.
Enn af fyrrum Súperman
✓
13. tbl. Fréttabréfs ÖBÍ 1998 var
frásögn og viðtal við Christopher
Reeve, tekið upp úr Hello og þýtt af
Ingólfi Erni Birgissyni, ritstjóra
Klifurs. Barfyrirsögnina: Idraumier
hann aldrei í hjólastól. Nú hefur
Ingólfur Örn bætt um betur og enn
þýðir hann úr Hello eftirfarandi:
Fyrirsögnin er:
Christopher Reeve er
harðákveðinn að ganga á ný.
Christopher Reeve er nú í sérstöku
tilraunaverkefni sem hann vonar að
leiði til þess að hann geti gengið á ný.
Þessar myndir (í blaðinu Hello) sýna
hann hangandi í ólum meðan sérfræð-
ingar hreyfa fætur hans. Þó sumar
fréttir hafi gefið í skyn að leikarinn
gæti gengið núna leiðréttir Christop-
her það: “Því miður er það ekki rétt.
Ég er algjörlega lamaður frá hálsi og
niður”. En hann bætir við: “Eftir fimm
ár mun ég vera fær um að ganga á ný”.
42