Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Page 7
Fátt er eins mikilvægt og lestur til að örva þroska barna
og ungmenna. Lesfærni liggur öllu öðru námi til grundvallar.
Námsárangur ræðst að stórum hluta af lesskilningi. Til að
ná valdi á lestri er aðeins ein fær leið: lestur.
Lestur eflir orðaforðann, kveikir nýjar hugmyndir, eykur
skilning á lesmáli og bætir þannig skilning okkar á heiminum
öllum. Því meira sem við lesum því betra.
HVETJUM BÖRNIN
OKKAR TIL DÁÐA
HEIMSMET
2020
timitiladlesa.is
Foreldrar gegna lykilhlutverki í að örva lesskilning barna sinna.
Með því að hvetja þau til lesturs, lesa fyrir þau, ræða það sem
lesið er og opna heim bókanna færa foreldrar og forráðamenn
börnunum einhverja dýrmætustu gjöf sem hugsast getur.
Nú stendur yfir átakið Tími til að lesa. Öll þjóðin sameinast
um að setja heimsmet í lesnum mínútum á einum mánuði.
Þetta er kjörið tilefni til að blása börnunum lesanda í brjóst
með hjálp keppnisskapsins.
VIÐ HVETJUM FORELDRA TIL AÐ
HVETJA BÖRNIN SÍN TIL DÁÐA Í LESTRI, NÚNA OG ALLTAF.
#timitiladlesa